Samningur menntamálaráðherra við Sturlu
Miðvikudaginn 28. mars 1990


     Guðmundur Ágústsson:
    Virðulegur forseti. Ég skal ekki hafa orð mín mörg. En ég harma þessa umræðu sem hér fer fram. Mér sýnist hún ekki þjóna öðrum tilgangi en að skemmta núv. og fyrrv. menntmrh. og fjmrh. Þetta mál þjónar ekki þeim tilgangi að sá maður sem hefur orðið fyrir barðinu á stjórnvöldum fái uppreisn æru.
    Í þrjú ár hefur þetta mál verið meira og minna hér fyrir Alþingi. Alltaf hefur Sturla Kristjánsson mátt þola það af þingmönnum að hljóta hin og þessi örlögin, þessi maður sem að ósekju, eins og fram kemur í undirréttardómi, var vikið frá starfi á mjög leiðinlegan og umdeildan hátt. Ég vil gera það að minni tillögu að við sýnum þessum manni, sem sannarlega rækti starf sitt af alúð og samviskusemi, þá virðingu að hann þurfi ekki að þola svona umræðu öllu lengur.
    Aðalmálið í þessu er ekki spurningin um þessa skýrslu. Um hana má deila mjög og það koma fram í henni mjög umdeild atriði. Þar er verið að draga enn á ný fram hvað hafi verið rétt og hvað hafi verið rangt í fari þessa manns sem er um að ræða. Málinu er eflaust af hans hálfu lokið. Við þingmenn erum svo lengi að átta okkur á staðreyndum að við gerum okkur ekki grein fyrir þeim mannlega harmleik sem þessi maður hefur þolað.
    Ég held að við ættum, eins og ég sagði áðan, að reyna að ljúka þessu máli í friði. Núna hefur það gerst að menntmrh. núv. og fjmrh. hafa samið við manninn og það þjónar ekki tilgangi að vera að ýfa það upp aftur. Sá samningur hlýtur að gilda, hann er búinn að binda ríkisvaldið samkvæmt lögum. Hins vegar er það allt annað mál hvort fjmrh. og menntmrh. hafi haft þessa heimild, sem ég dreg mjög í efa, þar sem dómur gekk og dómi skal hlíta. Það gekk dómur um það að Sturlu skyldu greiddar 1.400.000 kr. miðað við þá dagsetningu þegar samningurinn var gerður og að sjálfsögðu höfðu hvorki menntmrh. né fjmrh. heimild til þess að greiða annað en þessa fjárhæð. Um það held ég að sé engin spurning. Annað atriði er það hvort þetta hafi verið rétt af þessum háu herrum, fjmrh. og menntmrh., að gera þetta og um það snýst kannski umræðan.
    Ég ætla ekki að leggja neitt mat á það en vil að þetta komi fram, sem ég sagði hér í upphafi, að ég held að við eigum að reyna að leggja þessa deilu niður og hætta þeim umræðum sem hér hafa farið fram og þjóna þeim einum tilgangi að skemmta pólitískum öflum hér á Alþingi, þar sem takast á annars vegar Alþb. og hins vegar Sjálfstfl.