Tilhögun þingfundar
Miðvikudaginn 28. mars 1990


     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég tel alveg nauðsynlegt að fram komi í upphafi þessa fundar hversu lengi forseti hyggst halda þessum fundi áfram fram eftir kvöldi. Það tel ég alveg nauðsynlegt í ljósi þess að á morgun er mjög stífur dagur hjá þingmönnum þar sem þinghald hefst klukkan tíu í fyrramálið og ráðgert er að fundur í Sþ. standi fram á kvöld, það eru með öðrum orðum kvöldfundir tvo daga í röð, svo að alla vega í mínu tilfelli, sem tilheyri nú ekki ýkja stórum þingflokki, gefst ákaflega lítill tími til að undirbúa sig fyrir þann dag. Og ekki einungis fyrir þá umræðu sem fram fer um utanríkismál heldur stendur einnig flokkur minn fyrir utandagskrárumræðu sem einnig þarf að búa sig undir. Að ekki sé minnst á að persónulega þarf ég að mæla fyrir tveimur fsp. í fyrramálið. Ég tel því alveg einsýnt að þessi fundur í deildinni geti ekki staðið öllu lengur en til svona ellefu, en óska eftir því að hæstv. forseti upplýsi deildina um sín áform og hugmyndir í því efni.