Tilhögun þingfundar
Miðvikudaginn 28. mars 1990


     Forseti (Árni Gunnarsson):
    Forseti hefur hlýtt á þessar athugasemdir hv. þm. og mun gera það sem hann getur til þess að bæta úr því sem gagnrýnt hefur verið. Varðandi fundinn í kvöld endurtekur forseti það að hann hefur greint frá því að þessi fundur kunni að standa a.m.k. fram undir miðnætti.