Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
Virðulegi forseti. Mér þykir miður að hv. 5. þm. Norðurl. e. Jóhannes Geir Sigurgeirsson stóð ekki við sína fyrri tilvitnun til greinar Gylfa Þ. Gíslasonar því kjarni hennar er að sjálfsögðu að til þess að bæta sambúðina milli iðnaðar og sjávarútvegs sé gjald fyrir veiðileyfi áhrifaríkasta tækið. Ég vil ekki draga úr mikilvægi þess að hafa virka verðjöfnun í sjávarútveginum, það er hjálpartækið og hitt er aðalverkfærið.
En hins vegar er það rétt hjá hv. þm. að nú er mest þörf á að fá inn nýtt áhættufé í ullariðnaðinn. Þar er auðveldara um að tala en í að komast. Og því miður gengu dæmin sem reiknuð voru í fyrra ekki upp. Ég tek undir hvert orð með hv. 5. og 7. þm. Norðurl. e., að ullariðnaðurinn er mikilvæg grein. Gömul hefð, ný tækni og nýtt viðskiptavit þurfa helst að fara saman í þessari grein ef hún á að verða barn í brók. Því miður hefur þetta enn ekki tekist nógu vel, við verðum að játa það. Spurningin er sú hvort við höfum enn fundið rétt form fyrir samstarfið. Auðvitað er spuninn og bandframleiðslan undirstaðan fyrir öll hin fyrirtækin. Við verðum þess vegna að finna þeirri starfsemi öruggan rekstrargrundvöll. En þar er það grundvöllurinn sjálfur og störf fólksins og verðmætin sem sköpuð eru sem skipta máli en ekki fyrirtækin sem slík.