Halldór Blöndal:
Hæstv. forseti. Ég tek undir það að þróunarverkefnum í atvinnulífinu er ekki nægilega sinnt eins og sakir standa, rannsóknaverkefnum, markaðskönnunum og ýmsu fleiru. Ég vil í þessu sambandi minna á að meðan hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir var menntmrh. var samþykkt merk löggjöf hér á Alþingi sem eykur möguleika Háskólans til að sinna slíkum verkefnum, m.a. með því að ganga að samstarfsverkefnum með fyrirtækjum í atvinnulífinu.
Á hinn bóginn er ljóst að atvinnuvegirnir eða fyrirtækin hafa minna svigrúm en áður til að standa fyrir sjálfstæðri þróunar- og rannsóknastarfsemi vegna hinnar ömurlegu stöðu sem nú er í atvinnulífinu, hinnar bágu rekstrarstöðu eins og fram kemur m.a. í áætlun um tekjuöflun ríkisins á næsta ári ef við lítum á þá fjárhæð sem búist er við að renni í ríkissjóð vegna tekjuskatts af fyrirtækjum. Og ef við horfum til þeirrar afturhaldssömu stefnu sem hér hefur verið fylgt í skattamálum eftir að þessi ríkisstjórn tók við völdum. Vil ég í því sambandi sérstaklega harma það að ríkisstjórnin hefur staðið á móti allri aðlögun í skattamálum að hinum sameiginlega markaði sem opnast mun á árinu 1992. Þetta vakti sérstaka athygli okkar í fjh.- og viðskn. þegar lánsfjárlög voru undirbúin í nefndinni. Ég vil líka minna á að það stendur á því, hæstv. forseti, að hæstv. sjútvrh. gefi út reglugerð til að fylgja eftir þeirri breytingu sem varð á lögum um Fiskveiðasjóð Íslands nú á þessu þingi sem átti einmitt að stuðla að rannsóknaverkefnum í sjávarútvegi.