Fyrirspyrjandi (Friðrik Sophusson) (um þingsköp) :
    Ég kýs fremur ef hægt er að kalla þetta um þingsköp vegna þess að ég ætla að fjalla um þingsköp, ef það er hægt. ( Forseti: Ef hv. 1. þm. Reykv. óskar eftir að tala um þingsköp þá er það að sjálfsögðu leyfilegt.)
    Ég vil rifja það upp, virðulegur forseti, að þegar umræður fóru fram um fjárlög fyrir jól bar oft á góma það gjald sem við erum hér að ræða, svokallað jöfnunargjald. Það lá þá ljóst fyrir að ef 5% jöfnunargjald yrði lagt á allt árið mundi það gefa í tekjur 1000 millj. Þá kom fram að ætlun hæstv. ríkisstjórnar var að láta þetta gjald hverfa, annaðhvort í áföngum eða á miðju ári. Því var svarað í umræðum um fjárlög. Þess vegna mátti þingheimur auðvitað treysta því að þetta gjald félli niður.
    Nú kemur fram hjá hæstv. iðnrh. skoðun hans sem er sú að ekki þurfi með öðrum hætti en þeim að leggja fram í fjáraukalögum upphæð sem nemur 500 millj. kr. og þá hafi öllu réttlæti verið fullnægt í þessum efnum. Ég er ósammála því á grundvelli þingskapa og almennra laga og tel að miðað við þær yfirlýsingar sem fyrir liggi verði hæstv. ríkisstjórn að leggja fram nýjar upplýsingar áður en ákveðið er að framlengja þessum lögum og ná inn mun meiri tekjum en fjárlög gera ráð fyrir.
    Ég get ekki rökstutt þetta frekar en ef hæstv. ráðherra hefur rétt fyrir sér þýðir þetta að í raun og veru skipti engu máli hvernig umræður fara fram um fjárlög. Þá verða hv. alþm. að fara að nota allt önnur vinnubrögð en gert hefur verið hingað til. Á þetta vildi ég benda, virðulegur forseti, í umræðum um þingsköp því hérna er um að ræða að mínu mati verulega stefnubreytingu frá því sem hefur gilt hingað til þegar menn hafa samþykkt fjárlög. En í þessu dæmi spila saman annars vegar fjárlög og niðurstaða þeirra og hins vegar almenn lög um jöfnunargjald sem samþykkt voru 1978 og yfirlýsingar hæstv.
ráðherra um það að þeim lögum verði þannig beitt að aðeins ákveðin upphæð muni nást inn á yfirstandandi ári. Á þetta vildi ég benda, virðulegur forseti, því að hér er um að ræða mjög alvarlegt fráhvarf frá þeirri stefnu sem ríkt hefur í þessum málum.