Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Sanngjarn þingmaður eins og hv. 1. þm. Reykv. getur ekki farið fram á það að forseti leyfi honum að eiga efnislega samræðu við hæstv. ráðherra með því að tala um þingsköp. Forseti leyfir nú einungis að þingmaðurinn taki til máls um þingsköp, að mál hans sé sannanlega um þingsköp.