Fyrirspyrjandi (Ingi Björn Albertsson):
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að leggja fram fsp. á þskj. 771 til dómsmrh. um meðferð mála hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins sem hljóðar svo, með leyfi forseta:
,,Hver er venjulegur gangur mála hjá Rannsóknarlögreglunni frá því að kært er og skýrsla er tekin og þangað til máli telst lokið?
Eru brögð að því að kærumál séu látin liggja óafgreidd eftir skýrslutöku og engin frekari rannsókn fari fram? Sé svo, hver er skýringin á því?``