Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
Hæstv. forseti. Á þskj. 771 beinir hv. 5. þm. fsp., raunar í tveimur liðum, til mín:
,,Hver er venjulegur gangur mála hjá Rannsóknarlögreglunni frá því að kært er og skýrsla er tekin og þangað til máli telst lokið?
Eru brögð að því að kærumál séu látin liggja óafgreidd eftir skýrslutöku og engin frekari rannsókn fari fram? Sé svo, hver er skýringin á því?``
Sakarefni sem Rannsóknarlögreglan fær til rannsóknar eru æði margvísleg og ólík og upplýsingar sem liggja fyrir í sams konar málum á frumstigi rannsóknar svo breytilegar, bæði að magni og gæðum, að ómögulegt er að setja fram lýsingu á venjulegum gangi mála sem gildi um öll rannsóknarviðfangsefnin. Hér á eftir verður þó leitast við að gera nokkra grein fyrir rannsóknarferlinum í stórum dráttum og forsendum hans.
Kærur berast Rannsóknarlögreglunni með mismunandi hætti og eftir ólíkum leiðum eins og hér verður rakið en þó tæpast tæmandi.
Í fyrsta lagi eru það kærur einstaklinga, forsvarsmanna fyrirtækja og stofnana eða lögfræðinga þeirra sem berast rakleitt til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Það er í fyrsta lagi um að ræða ritaðar kærur sem berast í pósti eða eru afhentar í starfsstöð RLR. Í annan stað: Einstaklingur eða fyrirsvarsmaður, samkvæmt ofangreindu, kemur í starfsstöð RLR þar sem kæra hans er skráð. Og í þriðja lagi: Rannsóknarlögreglumaður er kvaddur á vettvang afbrots. Skráir hann þá og í framhaldi af frumkönnun kæru eða lýsingu á ætluðu afbroti. Flestar í þessum flokki eru kærur vegna tékkasvika eða fölsunar.
Í annað stað eru kærur sem berast frá lögregluliðum á aðalstarfssvæði RLR, þ.e. Reykjavíkur, Kópavogs og Hafnarfjarðar, kærur einstaklinga eða fyrirsvarsmanna samkvæmt framangreindu þar sem Rannsóknarlögreglan hefur ekki verið tilkvödd, kærur einstaklinga eða fyrirsvarsmanna samkvæmt áðurgreindu þar sem viðkomandi lögreglulið hefur kvatt Rannsóknarlögregluna til. Flestar í þessum flokki eru kærur um þjófnað, með eða án innbrots.
Í þriðja lagi eru kærur sem berast frá öðrum opinberum rannsóknaraðilum, frá ríkissaksóknara, kærur sem honum hafa borist og hann framsendir til meðferðar, frá ríkisskattstjóra, rannsóknardeild, og frá Ríkisendurskoðun.
Hvort þörf er á skjótum aðgerðum Rannsóknarlögreglunnar ræðst að nokkru leyti af því hvernig mál ber að höndum. Til skýringa má annars vegar nefna tilvik þar sem Rannsóknarlögreglan er kvödd á vettvang alvarlegs afbrots og hins vegar viðamikið og í sjálfu sér alvarlegt mál sem rannsakað hefur verið hjá ríkisskattstjóra og er sent til framhaldsmeðferðar hjá lögreglu. Ekki er líklegt að þörf sé skjótra aðgerða í síðara tilvikinu.
Hinn kærði eða hinir kærðu eru stundum nafngreindir í kærum og á þetta við um flestar
fjárdráttar- og fjársvikakærur. Miklu oftar eru hinn kærði eða hinir kærðu þó óþekktir, þ.e. ekki er ljóst þegar kært er hver hefur framið brotið þegar kært er og á þetta við um nær öll þjófnaðarbrot, svo dæmi sé tekið.
Um forgangsröðun verkefna er þetta að segja: Vegna þess hve mörg kærumál berast Rannsóknarlögreglunni verður þeim ekki öllum sinnt samstundis og því er óhjákvæmilegt að meta nauðsyn skjótra aðgerða eftir mikilvægi málefna, svo og einstakra sakarefna, og stýra vinnuframlagi til rannsókna eftir forgangsröðun að nokkru leyti. Við forgangsröðun er m.a. farið eftir eða tekið tillit til ákvarðana löggjafarvalds, fyrirmæla ákæruvalds eða óska dómsmrh. að þessu leyti.
Gildandi forgangsröðun málefna er þessi:
1. Sifskapar- og skírlífisbrot. Með lögum nr. 31/1988 var ákveðið að brot sem falla undir XXI. og XXII. kafla hegningarlaga, um sifskaparbrot og skírlífisbrot, skuli hafa forgang fram yfir önnur refsiafbrot hvað varðar rannsókn, ákærur og dómsmeðferð.
2. Önnur ofbeldisbrot í víðtækari merkingu, mál barna og ungmenna hvers konar.
3. Efnahagsbrot, einkum þau sem beinast gegn almannahagsmunum.
Innan þessa ramma skipa einstakar rannsóknardeildir sakarefnum í forgangsröð ef nauðsyn krefur.
Um úthlutun mála og lok rannsóknar segir þetta:
Eftir að kæra hefur borist Rannsóknarlögreglunni er henni vísað til meðferðar í viðkomandi rannsóknardeild með hliðsjón af efni hennar, en rannsóknardeildir eru fjórar talsins. Þar fer yfirmaður yfir kæruna áður en henni er úthlutað til rannsóknarlögreglumanns sem síðan annast rannsókn málsins. Miðar rannsókn hans að því að afla allra nauðsynlegra gagna til þess að handhafa ákæruvalds sé fært að ákveða að rannsókn lokinni hvort opinbert mál skuli höfðað og afla gagna til undirbúnings dómsmeðferðar. Rannsókn máls telst lokið þegar þessu marki hefur verið náð. Hafi tiltekinn aðili verið
kærður verður mál aldrei lagt til hliðar nema ríkissaksóknari hafi áður kynnt sér málavexti og ekki talið efni til frekari aðgerða. Geymi kæran og önnur gögn máls alls engar vísbendingar sem fara megi eftir getur verið að yfirmaður úthluti málinu ekki til rannsóknarlögreglumanns heldur geymi málið og verður það ekki tekið fram aftur nema nýjar upplýsingar berist.