Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Hæstv. forseti. Það er sjálfsagt að verða við óskum hv. þm. einstakra kjördæma og upplýsa þá um tilhögun snjómokstrar til hinna einstöku staða, og jafnvel í smáatriðum. Reyndar hef ég þegar átt fund með þingmönnum Norðurl. v. til að ræða snjómokstursmálefni þess kjördæmis og þessa staðar sérstaklega sem um er spurt. Ég hlýt þó að leyfa mér að benda á það, hæstv. forseti, að það yrði alltímafrekt og tæki nokkuð af fyrirspurnatímum hv. sameinaðs Alþingis ef allir hv. þm. tækju upp þann sið að leggja fram í ítarlegu máli fsp. um einstök smáatriði í snjómokstri t.d. til hvers einasta þéttbýlisstaðar á landinu. Ekki skorast ég þó undan því að upplýsa hv. þingmenn um þetta og svara spurningum, en vildi gjarnan og þá kannski í síðari tíma mínum hér á eftir fá að segja nokkur almenn orð um stöðu snjómokstrar vegna þess óhagstæða tíðarfars sem við búum nú við og höfum gert í vetur og hefur kostað mikla fjármuni.
Spurt er í fyrsta lagi: ,,Er það heppilegt fyrirkomulag að snjómokstursmaður þurfi að fara yfir 80 km leið frá Sauðárkróki í Fljót til að ryðja snjóþyngsta kaflann á svæðinu út á Siglufjörð?``
Það er augljóslega kostur í svona tilvikum að geta hafið mokstur frá sem flestum stöðum í einu þegar um langa leið er að ræða. Þess vegna eru snjómoksturstæki á leiðinni milli Sauðárkróks og Siglufjarðar að jafnaði staðsett á fjórum stöðum, þ.e. á hvorum enda, á Hofsósi og í Fljótum. Mokstur hefst frá þessum stöðum um sama leyti. Vörubíll fer frá Sauðárkróki, veghefill fer frá Hofsósi í átt til Siglufjarðar, hjólaskófla og snjóblásari fara frá Fljótum til Siglufjarðar og hjólaskófla fer frá Siglufirði. Yfirleitt er auðveldara að komast í Fljótin frá Sauðárkróki en frá Siglufirði þó leiðin sé lengri.
Í öðru lagi er spurt: ,,Er það rétt að snjómokstursmaður á Siglufirði megi ekki hefja mokstursaðgerðir fyrr en byrjað er að ryðja úr Fljótum í átt til Siglufjarðar?``
Svarið er nei, en almenna reglan er sú að byrjað er að ryðja á sama tíma frá Siglufirði og úr Fljótum af auðskiljanlegum ástæðum. Stundum háttar þó þannig til að það er óhjákvæmilegt að meta það báðum megin frá hvort yfirleitt sé unnt að moka leiðina viðkomandi dag, m.a. vegna tvísýnu um veður o.s.frv., og það er auðvitað engin skynsemi í því að leggja af stað með mokstur öðrum megin frá ef alls ekki er kleift vegna veðurs eða aðstæðna að moka alla leiðina frá báðum endum.
Í þriðja lagi er spurt: ,,Hvers vegna er snjóblásari ekki staðsettur á Siglufirði?``
Það mætti svara þessu þannig að ef ég mætti ráða því vildi ég auðvitað hafa snjóblásara sem víðast um landið. En svarið er þó: Vegagerðin hefur einn stóran snjóblásara í Skagafirði, hefur ekki yfir nema einum stórum snjóblásara að ráða. Þessi blásari er að jafnaði staðsettur í Fljótum og hans meginverkefni er að opna
veginn milli Fljóta og Siglufjarðar.
Hins vegar er hann einnig nauðsynlegur til að opna t.d. innansveitarvegi í Fljótum þar sem snjóþyngd er mikil og í vetur hefur blásarinn auk þess verið notaður við snjómokstur á leiðinni Fljót--Hofsós og allt inn í Viðvíkursveit og Hjaltadal. Væri blásarinn staðsettur á Siglufirði, þessi eini blásari sem við höfum yfir að ráða í Skagafirði, væri nýting hans annars staðar en í Siglufirði mun torveldari en nú er af auðskiljanlegum ástæðum.
Í fjórða lagi er spurt: ,,Hver er hugsanlegur sparnaður ríkisins með því að fækka mokstursdögum um einn á viku á leiðinni Fljót--Siglufjörður?``
Eftir að snjóþyngd er orðin mikil er sparnaðurinn eins og nú háttar til á bilinu 250--500 þús. kr. á dag á leiðinni Hofsós--Siglufjörður.
Hér ber þess reyndar að geta að margir vegir á landinu eru háðir sömu reglum og leiðin Hofsós--Siglufjörður, þ.e. reglurnar eru þannig að heimilt er að
opna oftar meðan snjólétt er en meginreglan segir til um. Í því erfiða tíðarfari sem ríkt hefur undanfarið hefur reynst óhjákvæmilegt, miðað við það fjármagn sem til ráðstöfunar er í vetrarviðhald eða snjómokstur, að draga úr þjónustu, þ.e. fara eftir reglunum og fella niður mokstur sem eingöngu er heimill á meðan snjólétt er á ýmsum vegum á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi. Reikna má með því að sparnaður við að fækka um einn mokstursdag á þessum vegum sé nú orðinn á bilinu 5--10 millj. kr. á hverri einustu viku.
Ég vil geta þess að það getur reynst óhjákvæmilegt ef ekki bregður til hins betra með tíðarfarið að breyta reglum eða sem sagt nýta heimildir til að fella niður snjómokstur á fleiri leiðum, enda er hann í sumum tilvikum að verða óviðráðanlegur vegna snjóþyngsla og tæknilega hreinlega ekki að verða unnt að framkvæma hann jafnvel þótt menn hefðu peninga til að borga fyrir það.