Utanríkismál
Fimmtudaginn 29. mars 1990


     Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Ástandið í alþjóðamálum er þessa dagana afar spennandi og margt að gerast í senn í utanríkis- og öryggismálum. Víða gætir bjartsýni en þó jafnframt hræðslu við hina nýju tíma, við hin breyttu viðhorf yfir því að áþján kommúnismans hefur verið létt af þjóðum Austur-Evrópu og að þær hafa nú fengið að kjósa á lýðræðislegan hátt að nýju.
    Ég átti þess kost fyrir örfáum dögum síðan að vera með nokkrum Austur-Þjóðverjum. Þeir lýstu því yfir hversu þeim létti mikið að geta nú í fyrsta skipti rætt við annað fólk frá öðrum löndum eins og þeim bjó í brjósti. Þeir gátu sagt að þá langaði til án þess að eiga von á því að hin illræmda leynilögregla væri nálægt, hin illræmda leynilögregla, Stasi. Þetta er ekkert merkilegt fyrir okkur út af fyrir sig því við höfum ekki þurft að búa við það að geta ekki sagt og gert það sem okkur fyndist rétt. En þetta er stór áfangi fyrir þjóðir sem hafa búið undir þessari áþján í 50 ára tímabil nærfellt.
    Frjálsu kosningarnar í Austur-Evrópu marka einnig tímamót. Þær marka tímamót fyrir alla hugsandi menn, enda eru úrslitin óvænt fyrir marga. Menn sem trúðu því að sósíalistar mundu vinna stórfelldan sigur í Austur-Þýskalandi stóðu undrandi frammi fyrir því að það voru fylgismenn hægri aflanna sem unnu stórkostlegan sigur. Og ástæðan var sú að þegar fólkið stóð eitt í kjörklefanum og gat valið eins og í hug þess bjó, þá kaus það hægri flokkana. ( Gripið fram í: Frjálslynda hægriflokkinn.) Það kaus frjálslynda hægri flokka já, að sjálfsögðu. Um það er ekki deilt.
    Það sama gerðist nú fyrir nokkrum dögum í Ungverjalandi. Og það sýnir að þegar fólkið fær að ráða kýs það ekki þau afturhaldssósalísku öfl sem hafa ráðið ferðinni í Austur-Evrópu. Sannleikurinn hefur nefnilega sigrað.
    Hér hefur skýrsla utanrrh. verið rædd allítarlega. Þar hefur víða verið komið við. Það hlýtur þó að vera meginverkefni á komandi ári að vinna að
frekari viðskiptum og samskiptum við hin nýfrjálsu ríki Austur-Evrópu og jafnframt að málefnum Evrópubandalagsins.
    Fyrir þinginu liggur tillaga um viðurkenningu Litáens. Þessi tillaga, sem borin er fram af Sjálfstfl. og frjálslyndum hægrimönnum, er ítrekun á því að sú þjóð sem þar býr og berst nú fyrir sjálfstæði sínu þarf á aðstoð að halda, aðstoð sem byggist á því að hún fái í orði og verki viðurkenningu á því að hún er sjálfstæð þjóð. Afstaða Svía nýlega kemur ekki á óvart. Svíar meta ekki málin með þessum hætti vegna þess að þeir hafa ávallt metið viðskiptahagsmuni sína við stóru ríkin í austri meira en fólkið sem er kúgað. Sú stefna sem hefur komið þar margoft fram hefur verið skaðleg. Það kemur því ekki á óvart að utanríkisráðherra Svíþjóðar, Andersson, skuli lýsa því yfir að stefna stjórnarinnar í Kreml, eins og hún hefur komið fram við hið nýja ríki sem nú hefur reynt að brjótast úr þeim hlekkjum sem á það voru lagðir á sinni tíð, sé rétt. Ég ætla ekki að fara að rifja upp þá

sögu því að hún er kunnari en svo að hana þurfi að ræða.
    Sameining Austur- og Vestur-Þýskalands hlýtur líka að vera til umfjöllunar, þær breytingar sem munu verða þegar Þjóðverjar sameinast í einu ríki að nýju. Það er alveg ljóst að það munu verða tímamót í sögu Evrópu þegar þjóðin sem var sundrað með múrnum verður sameinuð að nýju. Fyrir okkur hér á Íslandi hefur þetta mikla þýðingu, bæði efnahagslega og einnig hefur það þýðingu að því leyti til að það verður breytt heimsmynd sem mun blasa við eftir það.
    Ég tel að við hljótum að vaka yfir öllu því sem er að gerast núna. Við munum skoða mjög náið hvað er að gerast. En mikilvægt er að við hlaupum ekki á okkur, mikilvægt er að við förum okkur hægt. Það mikilvægi varnarstöðvarinnar á Íslandi, sem hefur verið, er aldrei meira en nú. Það er alveg ljóst að meðan sú hernaðaruppbygging sem hefur haldið áfram, og hefur ekki verið dregið úr á Kolaskaga og á sér stað nú er áhyggjuefni fyrir okkur. Það er viðurkennt og nokkuð ljóst að á Kolaskaga er stærsta víghreiður jarðar. Og það er líklegt að það muni stækka fremur en hitt ef Eystrasaltsríkin verða að fullu sjálfstæð. Þetta eru staðreyndir sem við getum ekki látið fara fram hjá okkur. Við hljótum að hafa áhyggjur af því að ekki skuli dregið úr þeim mikla vígbúnaði sem er á þessu svæði.
    Á undanförnum árum höfum við átt mikið og gott samstarf innan Atlantshafsbandalagsins og munum vafalaust eiga það í náinni framtíð. En það hlýtur að verða einhver breyting á því þó við sjáum ekki í dag hvernig það verður í náinni framtíð. Stjórnmálamenn í Vestur-Evrópu leggja áherslu á að við förum okkur hægt að þessu leyti, ekki hvað síst Vestur-Þjóðverjar sem gera sér grein fyrir því að það var fyrst og fremst vegna styrkleika Atlantshafsbandalagsins og efnahagslegs styrkleika Vestur-Evrópu sem múrinn féll og kommúnistar gáfust upp.
    Ef við lítum á það mál sem hlýtur að verða töluvert mikið til umræðu hér á næstu mánuðum, þ.e. Evrópubandalagið, hljótum við að vera opnir fyrir tillögum og að það sé kannað eins vel og hægt er hvaða leiðir séu mögulegar. Hvað varðar Ísland er auðvitað langfarsælast ef við getum verið utan
Evrópubandalagsins. En það þýðir auðvitað ekki að við getum, án þess að kanna það mjög náið, varpað því frá okkur hver hinn möguleikinn er. Ég minni enn einu sinni á ræðu eða réttara sagt grein Uffe Ellemann-Jensen sem birtist í Morgunblaðinu þriðjudaginn 27. mars. Þær skoðanir sem þar koma fram getum við tæplega látið fara fram hjá okkur án þess að skoða þær mjög náið. Og ég mun, með leyfi forseta, vitna til þessarar greinar. Þar segir ráðherrann:
    ,,Þessi grundvallaratriði í þróun sýna með skýrum hætti að Evrópubandalagið er sú þungamiðja sem þróun Evrópu mun taka mið af á komandi árum.`` Og Uffe Ellemann-Jensen segir enn fremur: ,,Ég skal ekki tala neina tæpitungu. Ég tel það mjög vafasamt að hægt verði að uppfylla þær væntingar sem mörg EFTA-ríkin hafa um árangur viðræðnanna.

Mikilvægasta atriðið verður möguleiki landanna utan Evrópubandalagsins til að hafa áhrif á ákvarðanir sem teknar eru í bandalaginu. Í þessu samhengi er nauðsynlegt að tjá sig skýrt. Það er ekki hægt að gera hið ómögulega. Raunveruleg áhrif er aðeins hægt að hafa með aðild. Öðruvísi getur þetta ekki orðið.`` Og í lok greinarinnar segir Uffe Ellemann-Jensen enn fremur:
    ,,Styrkjum þátt Norðurlandanna í mótun nýrrar samvinnu í Evrópu. Styrkjum rödd Norðurlandanna í evrópsku samstarfi. Við skulum, með þessum hætti, gefa norrænni samvinnu raunhæft inntak og algerlega nýja vídd í evrópsku samstarfi. Við megum ekki treysta á tálvonir. Við verðum að nýta okkur tækifærin sem gefast. Ný Evrópa er í burðarliðnum. Þungamiðja hennar er í samstarfi Evrópubandalagsins þar sem allir deila með sér skyldum og ábyrgð. Þeir sem vilja hafa áhrif hljóta að taka þátt í samstarfinu heils hugar að fullu.``
    Þetta voru orð utanríkisráðherra Danmerkur og þau hljóta að vekja mann til umhugsunar. Ef sönn eru hljótum við að verða að hugsa á öðrum nótum. Engu að síður verðum við að fara hægt í sakirnar og rólega. Það liggur ekkert á, því við hljótum að vilja vera örugg um það að við tryggjum hagsmuni Íslands eins og kostur er.
    Ég vil minnast hér á Norðurlandasamvinnu sem er á bls. 41 í skýrslu utanrrh. Það sem þar kemur fram er um víðtæka samvinnu milli Norðurlandanna sem hefur leitt til mjög náinnar sameiningar, ef við getum sagt það, á ýmsum sviðum, svo sem með löggjöf með ýmsum hætti, menningartengslum og ýmsu samstarfi sem löngu er kunnugt um hér. Það væri auðvitað of langt mál að fara mjög náið út í það samstarf. Það er hins vegar vel til athugunar hvort sumir liðir í því starfi eru ekki heldur of miklir að viðum. Má vel skoða þá hluti þannig að við lendum ekki í því sem oft hefur verið varað við að hér verði úr bákn svo stórt að ekki verði við ráðið.
    Hæstv. forseti. Það er einnig svo að ég get ekki annað en rætt einn liðinn til viðbótar. Það er Evrópuráðið. Þótt lítið fari fyrir því starfi sem þar er unnið og það virðist ekki býsna viðamikið í hugum okkar og við verðum e.t.v. ekki mjög vör við það, hefur það engu að síður haft töluvert áhrif á starf okkar og stjórnmálalíf á Íslandi. Það má segja að eitt af því sem Evrópuráðið hafi fram yfir önnur samtök er að það er ekki yfirþjóðlegt. Þar hefur skapast grundvöllur fyrir öll ríki Vestur-Evrópu til samstarfs og nú einnig fyrir Ungverjaland, Pólland, Tékkóslóvakíu, Júgóslavíu og Búlgaríu. Þetta víðtæka samstarf hefur átt þátt í því að stjórnmálamenn og fólk frá hinum ólíku þjóðlöndum hefur kynnst og áttað sig á því að landamæri segja ekki allt. Því þegar allt kemur til alls eiga þjóðir Evrópu margt sameiginlegt og miklu meira en menn í fljótu bragði gera sér grein fyrir. Þó tungur skilji þjóðir eiga þær saman menningarlega arfleifð sem á margan hátt í fjölbreytni sinni tvinnast saman í hinum ýmsu þjóðlöndum Evrópu.

    Í skýrslu hæstv. utanrrh. er einnig fjallað um ýmis svæðisbundin deilumál, svo sem Mið-Austurlönd, Suður-Afríku, Níkaragúa og Panama. Í þessum umræðum hefur nokkuð verið vikið að Ísrael og hefur réttilega verið komið inn á að þar hefur verið um vaxandi vandamál að ræða. Við getum ekki litið fram hjá því að ýmislegt af því sem Ísraelsmenn hafa gert samræmist ekki þeim hugmyndum sem við hér á Vesturlöndum höfum um hvernig eigi að vinna að málum. En þetta er ekki einfalt mál og það er erfitt að finna lausn á því. Það verður auðvitað ekki gert nema Arabaríkin viðurkenni Ísrael og hægt sé að ganga með tryggum hætti frá því að Ísraelsmenn geti treyst því að Arabar geri ekki árás á Ísraelsríki. Hv. 2. þm. Austurl. kom inn á það að Bandaríkjamenn hafa nú nýlega samþykkt stórfelldar fjárveitingar til að styrkja nýjar byggðir Gyðinga sem munu flytjast til Ísraels og hafði áhyggjur að því. En það sem hann minntist ekki á var hvaðan þessir menn eru. Hvaðan eru þeir og af hverju eru þeir að koma til Ísraels? Jú, þessir menn koma frá Sovétríkjunum, en eins og allir vita hefur í Sovétríkjunum verið við lýði stefna sem mundi vera kölluð Apartheit ef ekki væri um Sovétríkin að ræða. Gyðingar eru meðhöndlaðir eins og þeir væru svertingjar í Sovétríkjunum og aðrar þjóðir eru jafnvel fluttar nauðungarflutningum á milli landshluta. Það eru ástæðurnar fyrir því að Gyðingar eru að flýja. Þeir eru að fara vegna þess að þeir hafa ekki átt möguleika á því að búa í Sovétríkjunum og hafa orðið fyrir ofsóknum. Þetta er
ekki einfalt mál og er heldur ekki með þeim hætti að við getum algerlega fordæmt allt sem gerist í Ísrael frekar en í mörgum öðrum ríkjum.
    Það er líka athyglisvert að undanfarið hafa farið fram kosningar víðar en í austantjaldsríkjunum. Má minna á kosningarnar sem fóru fram í Suður-Ameríku en þar sigruðu hægri menn alveg óvænt, sem segir töluvert um hvað fólkið vill í rauninni.
    Ég hef talsvert mikið efni sem ég gæti rætt um. Ég gæti rætt um Evrópubandalagið, sem auðvitað er þörf á. En það hlýtur að bíða frekari tíma
því að hér er mjög takmarkaður tími til umræðu þó það sé ekki að sjá á öllum þingmönnum. Ég get þó ekki yfirgefið þennan ræðustól án þess að minnast á þróunarsamvinnuna. Það hefur komið fram að fjármunir til hennar eru frekar litlir og væri því nauðsyn á að auka þá starfsemi. Ég hef heyrt þeirri hugmynd fleygt, m.a. af hv. 3. þm. Norðurl. e., hvort möguleiki væri á því að þeir fjármunir sem hér eru notaðir til þróunarsamvinnu yrðu settir beint til aðila eins og þjóðkirkjunnar vegna þess að þar er mun betri nýting á þeim fjármunum sem fyrir hendi eru. Það verður ekki komist hjá því að minnast aðeins á þetta, en það er auðvitað ein þeirra hugmynda sem gætu þýtt það að þeir fjármunir sem eru lagðir til þessarar starfsemi mundu nýtast betur.
    Þá hljótum við aðeins að líta á þau málefni sem varða hafréttarmál, en hafsbotnsmálefni hafa verið töluvert til umræðu í utanrmn. og varða mjög framtíð okkar eða kröfur okkar um landsvæði í kringum

Ísland, bæði við Rockall og svo hins vegar norður af Íslandi. Það þarf að vera mjög vakandi í þessum málum og passa upp á að okkar réttindi falli ekki niður og við náum þeim rétti sem við teljum okkur eiga.
    Ég vil að endingu segja það að við frjálslyndir hægrimenn erum bjartsýnir og vongóðir um betri daga á alþjóðavettvangi og vil minna á það að skyndilegt hrun kommúnismans hefur glætt vonir manna um bætt mannlíf á komandi árum. En það gildir enn hið fornkveðna að gáttir allar skyldi um skyggnast áður en gangi fram. Það er því mikilsvert að við stígum hvert skref af öryggi, hægt og með þeim hætti að við tryggjum öryggi okkkar um ókomna framtíð og tryggjum málefni okkar á alþjóðavettvangi, bæði í viðskiptum og í varnarmálum en brennum okkur ekki á því að hlaupa upp til handa og fóta og henda frá okkur því sem við höfum án þess að vita hvað við tekur.