Ásgeir Hannes Eiríksson:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. utanrrh. fyrir mjög yfirgripsmikla og góða skýrslu og góðan málflutning hér í þingsölum. Þetta er það langt og mikið mál og kemur hann víða við að það mundi taka mig sennilega annan eins tíma og hæstv. ráðherra notaði til þess að gera því einhver skil þannig að ég vil nú eingöngu stikla hér mjög á stóru.
Það sem ég tel vera mál málanna í dag, EB--EFTA umræðan, er rædd hér á öðrum vettvangi þannig að um hana þarf ekki að fjölyrða hér í dag að mínu mati. En ekki verður skilið við Evrópu án þess að fagna þeirri bylgju sem þar gengur yfir, þeirri bylgju sem er að brotna hér á ströndum Íslands sem við sjáum og heyrum þessa dagana í hinni pólitísku umræðu sem er að myndast í sambandi við kosningar til sveitarstjórna. Hins vegar get ég sjálfs mín vegna ekki annað en minnst aðeins á varnarsamninginn. Vegna þeirra merkilegu breytinga sem eru í heimsmálunum er sjálfsagt að endurskoða varnarsamninginn og laga hann að breyttum viðhorfum. En út af fyrir sig er það að sjálfsögðu efni í heila og sérstaka umræðu.
En úr því að ég minnist hér á varnarsamninginn og herstöðina má rifja upp að ekki er langt síðan hér voru til umræðu persónuupplýsingar og njósnir í því sambandi. Ég vil ljúka þessu stutta spjalli mínu með því að leyfa mér að lesa aðeins úr gögnum sem ég hef undir höndum sem staðfesta einhvers konar gagnasöfnun og upplýsingasöfnun erlendra aðila. Málið snertir grunaðan mann í sakadómsrannsókn frá árinu 1976. Þar biður rannsóknardómari um ýmsar upplýsingar og, með leyfi forseta, vil ég lesa hér upp hluta af því sem beðið er um:
a. Listi yfir fyrri refsingar.
b. Listi yfir sakamál sem hann hefur verið viðriðinn.
c. Fangelsisvistir.
d. Bifreiðar sem hann hefur átt.
e. Vopn í eigu hans.
f. Upplýsingar bandarísku stöðvarinnar.
Það er um þennan lið sem ég hnýt. Um þetta hnýt ég. Hvað eru upplýsingar bandarísku stöðvarinnar? Og hver er bandaríska stöðin í þessu sambandi?
Lögmaður í þessu sakadómsmáli skrifar bréf ári seinna þar sem hann óskar eftir að fá ýmsar útskýringar á því máli sem hann er að vinna við. M.a. óskar hann eftir nánari útskýringum á þessum f-lið í bréfi rannsóknardómarans og, með leyfi forseta, ætla ég að lesa upp úr þessu bréfi lögmannsins:
,,Upplýsingar bandarísku stöðvarinnar hafa ekki verið lagðar fram og er þess krafist að þær verði nú lagðar fram. Nauðsynlegt kann að reynast að taka skýrslu fyrir dómi af þeim sem nafngreindir eru í þessu skjali.
Ég geri ráð fyrir að með bandarísku stöðinni sé átt við varnarliðið en væntanlega kemur það í ljós. Getur það orðið tilefni annarrar rannsóknar og varðar hagsmuni þjóðarinnar allrar.``
Þetta er úr bréfi lögmanns á þessum tíma og vil ég ekki orðlengja það meir. En þetta er viðkvæmt mál sem snertir marga. Þetta er sársaukafullt mál. Þessa vegna vil ég ekki fara nánar út í málavöxtu hér en ég er reiðubúinn til þess að sýna viðkomandi ráðherrum þessa pappíra. Þetta staðfestir að upplýsingum um Íslendinga er safnað. Og það sem meira er, það er sótt í þennan upplýsingabrunn frá dómurum í sakadómi Reykjavíkur þegar verið er að rannsaka sakamál. Þeim er því fullkunnugt um þennan upplýsingabanka. Því spyr ég: Hvaða upplýsingar eru þetta? Um hverja eru þær, um hvaða menn og með hvers leyfi er þeim safnað?
Það er stutt síðan ég fékk heim til mín bréf frá lækni sem vildi kanna svefntíma sonar míns og við söfnuðum upplýsingum um svefntíma drengsins í heila viku. Síðan þurfti leyfi, samþykki okkar foreldranna fyrir því að læknirinn mætti geyma þessar upplýsingar og hagnýta sér þær. Ég spyr: Þarf engin slík leyfi til þess að stöðvar, sem virðast vera erlendar stöðvar hér á landi, safni upplýsingum um Íslendinga sem síðan eru hagnýttar á þann hátt að meira að segja íslenskur sakadómur óskar eftir upplýsingum frá þessum stöðvum?
Virðulegi forseti. Það verður ekki lengra.