Utanríkismál
Fimmtudaginn 29. mars 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Þar sem hér hafa borist óskir um að fresta þessum fundi skal við því orðið. En til þess var einmitt margumrætt samkomulag gert að hindra að svona færi, að örfáir þingmenn legðu undir sig allan fundartíma í fyrstu umferð málsins og síðan kæmi að því að menn gerðust þreyttir og vildu ekki halda lengur áfram.
    Þrátt fyrir þetta skal nú þessum fundi frestað og fundur hefst kl. 2 á morgun. Þessum fundi er frestað.