Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseti neðri deildar hefur ritað eftirfarandi bréf, dags. 30. mars 1990:
,,Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstfl., hefur ritað mér á þessa leið:
,,Þar sem Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl., er á förum til útlanda í opinberum erindum og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni með skírskotun í 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, Árni Johnsen blaðamaður, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.``
Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Árni Johnsen hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð hann velkominn til starfa.