Utanríkismál
Föstudaginn 30. mars 1990


     Eiður Guðnason:
    Virðulegi forseti. Það hefur verið næsta fróðlegt að fylgjast með þessari umræðu hér um skýrslu utanrrh. og ég held að þessi umræða gefi okkur tilefni til þess að huga svolítið að vinnubrögðum á hinu háa Alþingi, kannski einkanlega þegar verið er að ræða skýrslu sem þessa. Hér var í upphafi reynt að setja eins konar ramma utan um umræðurnar til að gera þær skipulegri og markvissari en það fór kannski eins og við var að búast að tímamörk héldu ekki mjög nákvæmlega og er svo sem ekkert við því að segja. En ég vil ekki liggja á þeirri skoðun að ég held að það standi þingstörfunum mjög fyrir þrifum hvað ræðutími er lítt heftur, hvað skilvirkni er lítil í störfum þingsins, hvað umræður eru ómarkvissar og fara út um víðan völl. Það hefur komið mjög glöggt í ljós í þessari umræðu. Það er eins og við hv. þm. gleymum því ærið oft að það er ekki hversu lengi við tölum heldur hvað við segjum sem kannski skiptir meginmáli. Ég held, og ég hef sagt það hér áður, að við þurfum að athuga okkar gang og íhuga þessi vinnubrögð betur vegna þess að umræður um skýrslu utanrrh. sem var flutt hér í alllöngu máli, eru í rauninni engar umræður þegar hér kemur hver hv. þm. á fætur öðrum og talar í eina og hálfa klukkustund eða allt að því. Þá eru þetta engar umræður. Þetta eru einhvers konar einstaklingsbundnar messur. Og ræður sem standa í eina og hálfa klukkustund eru yfirleitt ekki mjög góðar ræður. Ég held því að við þurfum að athuga okkar gang.
    Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að verða langorður við þessa umræðu. Ég ætla að drepa hér aðeins á örfá atriði sem hér hefur áður verið vikið að. Það væri vissulega hægt að nefna margt annað en ég ætla ekki að gera það á þessu stigi máls. Hæstv. utanrrh. vék hér að norrænni samvinnu. Umræðan um hana hefur auðvitað verið venju fremur mikil hér á landi eftir að haldið var þing Norðurlandaráðs hér. Ýmsir hafa orðið til að láta í ljósi efasemdir um
ágæti Norðurlandasamvinnunnar. En ég skildi hæstv. utanrrh. á þann veg að hann drægi ekki í efa gildi þess að starfa náið og mikið með Norðurlöndunum þrátt fyrir tímabundin einstaklingsupphlaup eins og hjá danska utanríkisráðherranum sem skemmst er að minnast. En auðvitað er það svo í norrænni samvinnu að þar þarf að staldra við, skoða málin í ljósi nýrra tíma og ýmsu þarf að breyta.
    Það hefur verið gagnrýnt oftlega og m.a. í þessum umræðum að norræn samvinna feli í sér mikla skriffinnsku og mikið embættismannafargan. Ég held að sú gagnrýni sé ekki á rökum reist. Við vitum það að öll alþjóðleg og fjölþjóðleg samvinna felur það í sér að notað er töluvert mikið af pappír. Ég held að norræna embættismannakerfið sé ekki stórt eða viðamikið miðað við það sem það skilar. En auðvitað þurfum við að vera reiðubúin á hverjum tíma að endurskoða þetta. Ég held þó að við eigum ekki að draga úr áherslunni á norræna samvinnu og ég held að við eigum ekki að draga úr því fjármagni sem fer til norrænnar samvinnu. Ég held að þvert á móti megi

auka framlög á ýmsum sviðum eins og til sameiginlegra verkefna á sviði norrænna menningarmála sem hafa skilað Íslendingum mjög miklu.
    Hér var, virðulegi forseti, haldin næsta löng ræða um skýrslu okkar sem skipum íslensku þingmannanefndina í Evrópuráðinu. Með fullri virðingu fyrir þeim sem ræðuna flutti verð ég að segja að mér fannst hún fulllöng og þar fannst mér líka blandast saman ýmislegt sem ekki tilheyrði beint skýrslunni. Ég hafði skilið það svo að þeir hv. þm. sem flyttu skýrslur af hálfu alþjóðanefnda þingsins flyttu skýrslur en geymdu sín persónulegu sjónarmið um utanríkismál þar til síðar í umræðunni. En þar sem mjög ítarlega hefur verið farið yfir þessa skýrslu ætla ég ekki sérstaklega að gera hana að umtalsefni í löngu máli.
    Ég ætla aðeins að minna á það að Evrópuráðið hefur auðvitað hlotið mjög aukið mikilvægi núna síðustu missiri. Það var svo að með tilkomu Evrópubandalagsins og hinnar miklu pólitísku starfsemi sem fram fer á þess vegum fannst mönnum sem drægi úr mikilvægi Evrópuráðsins. Með þeim miklu atburðum sem nú hafa gerst í austanverðri álfunni hefur Evrópuráðið auðvitað hlotið alveg nýja stöðu og nýtt mikilvægi þegar það er fyrirsjáanlegt að bæði Ungverjaland og Pólland verða fullir aðilar að Evrópuráðinu áður en langt um líður. Við getum þá minnst þess í leiðinni að það var ekki fyrr en á síðasta vori, fyrir ári síðan, að Finnar urðu fullir aðilar að Evrópuráðinu og höfðu þá haft þar gestasæti í mörg ár þannig að Evrópuráðinu hefur tvímælalaust vaxið ásmegin, mikilvægi þess hefur aukist og á áreiðanlega enn eftir að aukast.
    Í því sambandi vil ég sérstaklega nefna hvað okkur er það mikilvægt að geta fylgst vel með því sem þar er að gerast. Hins vegar er það vandamál sem við þurfum að íhuga hér að það er vissum erfiðleikum bundið fyrir íslenska alþingismenn að taka fullan þátt í nefndastarfi á vegum Evrópuráðsins. Til þess eru fundir einfaldlega of tíðir. Það tekur of langan tíma og kostar mjög mikið ef menn ætla að fylgjast með því öllu alveg út í hörgul. Þess vegna skiptir miklu máli að velja og hafna og fylgjast með því sem skiptir máli. En
við stöndum hér, þetta þjóðþing 63 þingmanna, andspænis því vandamáli að við tökum fullan þátt í alþjóðlegu samstarfi á mörgum vettvangi. Það hefur komið í ljós hér við skýrsluflutning. Við getum nefnt Alþjóðaþingmannasamtökin, Þingmannasamband Atlantshafsbandalagsins, Norðurlandaráð, Evrópuráð, Sameinuðu þjóðirnar og fleira. Þessi störf taka æ meiri tíma. En ég undirstrika að það er mikilvægt að þessum störfum sé sinnt, það er mikilvægt að stóll Íslands sé ekki auður, ég tala nú ekki um þegar verið er að fjalla um mál sem beinlínis hafa mikla þýðingu fyrir okkur. En í þessu efni er okkur vandi á höndum, bæði að því er varðar tíma og kostnað.
    Ég ætla að nefna hér dæmi um mál sem eru til meðferðar í þeim nefndum sem ég á sæti í í

Evrópuráðinu, þ.e. landbúnaðarnefnd sem hefur innan sinna vébanda undirnefnd sem fjallar um sjávarútvegsmál. Þar er nú verið að ræða tillögur um ástand fiskstofna í ám og vötnum í Evrópu og sérstakt fiskverndarátak sem verið er að gera til þess að uppræta mengun og bjarga fiskstofnum í ám og vötnum sem beinlínis eru í útrýmingarhættu vegna mengunar og af ýmsum öðrum ástæðum. Einhverra hluta vegna tekur Ísland ekki þátt í þessu átaki sem hófst núna í síðustu viku og það gera raunar ekki nærri því öll lönd sem eru aðilar að Evrópuráðinu.
    Önnur tillaga er á döfinni í ráðinu sem fjallar um fiskveiðar í höfunum. Það er auðvitað mjög mikilvægt fyrir okkur að fylgjast með framgangi þess máls og sjá til þess að þar séu engin ákvæði sem við getum ekki unað við og helst að
þar séu ákvæði sem við erum mjög ánægðir með. Vinnan við þessa tillögu er komin mjög skammt á veg, en hún verður til umfjöllunar í ráðinu áreiðanlega fram á næsta haust a.m.k.
    Annað mál vil ég nefna sem lokið var í ráðinu nú í lok september. Það var tillaga sem fjallaði um framtíð hvalveiða. Það mál var búið að vera nokkuð lengi á döfinni í Evrópuráðinu og voru tilnefndir tveir umsjónarmenn eins og gert er þar með málinu. Annar þeirra var Kjartan Jóhannsson, fyrrv. alþm., sem nú gegnir sendiherrastörfum. Upphaflega fjallaði þessi tillaga beinlínis um fordæmingu á hvalveiðum og átti að leiða til þess að Evrópuráðið lýsti stuðningi við það að öllum hvalveiðum yrði hætt. Ég fullyrði það að Kjartani Jóhannssyni hafi m.a. tekist að beina málinu inn á aðrar brautir, þær brautir að menn huguðu að framtíð hvalastofnanna í heimshöfunum og hlutverki þeirra í lífkerfinu í höfunum. Þegar tillagan kom svo til umræðu og endanlegrar samþykktar á Evrópuráðsþinginu í september voru þar vissulega uppi mjög margar brtt. sem hefðu komið sér illa fyrir okkur ef samþykktar hefðu verið, tillögur öfgamanna úr ýmsum áttum sem líta á hvalveiðar eins og hver önnur morð, liggur mér við að segja, og það að borða hvalkjöt sé lítið betra en að leggja sér til munns mannakjöt. En samþykkt var á Evrópuráðsþinginu sérstök ályktun um framtíð hvalveiða í heiminum. Vegna þess, virðulegi forseti, að sú ályktun er fremur stutt og hefur aldrei áður verið formlega kynnt á Alþingi held ég að rétt sé að lesa hana hér og skal nú ekki lengja mál mitt mjög. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Evrópuráðsþingið gerir sér grein fyrir mikilvægi heilbrigðra hvalastofna í lífkerfi hafanna og er sannfært um að aðildarríki Evrópuráðsins hafi mikilvægu hlutverki að gegna við að tryggja framtíð hvalastofnanna.
    --- Minnir á samþykkt Evrópuráðsþingsins nr. 798 frá 1977, um verndun lífrænna auðlinda hafanna, og samþykkt nr. 674 frá 1978, um verndun lífrænna auðlinda í Norðaustur-Atlantshafi og Miðjarðarhafi, þar sem sérstök áhersla var lögð á nauðsyn þess að horfa á lífkerfið sem heild.
    --- Leggur áherslu á að hvalastofnunum sé nægur

gaumur gefinn ásamt fiskstofnum og öðrum lífverum í höfunum þegar unnið er að stefnumótun varðandi skilning, stjórn og nýtingu auðlinda sjávar, einkum og sér í lagi nú um stundir þegar mörg ríki eru að auka umsvif sín í og á sjó.
    --- Viðurkennir að Alþjóðahvalveiðiráðið hefur átt mikilvægan þátt í að efla alþjóðlegt samkomulag um rétta nýtingu og verndun hvala og aukið skilning á hvölum og hlutverki þeirra í lífkerfi sjávar.
    --- Hvetur allar þær ríkisstjórnir sem hlut eiga að máli til að hlíta í einu og öllu ákvörðunum Alþjóðahvalveiðiráðsins og beita sér fyrir nauðsynlegum verndaraðgerðum.
    --- Viðurkennir að vísindaveiðar skuli því aðeins eiga sér stað að vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins sé viss um að viðkomandi stofnum sé ekki stofnað í hættu og með veiðunum megi afla mikilvægra upplýsinga.
    --- Gerir sér grein fyrir að einhvern tíma í framtíðinni kunni að verða nauðsynlegt að endurmeta stöðuna til að tryggja það að jafnvægi haldist í lífkerfi hafanna.
    --- Hvetur stjórnir aðildarríkja Evrópuráðsins til:
    1. Að auka stuðning við Alþjóðahvalveiðiráðið þannig að það verði sem hæfast til að gegna þeim störfum sem samþykktir þess gera ráð fyrir.
    2. Að leggja áherslu á að styrkja starf vísindanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins til að bæta þær upplýsingar sem ákvarðanir eru byggðar á og auka áhrif nefndarinnar á ákvarðanir.
    3. Að beita sér fyrir eða efla, eftir því sem við á, rannsóknarverkefni sem fela ekki í sér hvaladráp en sem beinast að því að afla aukinnar þekkingar á hinum ýmsu hvalastofnum og hlutverki þeirra í lífkeðju hafanna með samvinnu aðildarríkjanna og í samstarfi við Alþjóðahvalveiðiráðið.
    4. Að virða ákvörðun Alþjóðahvalveiðiráðsins frá 1982 um núllkvóta að því er varðar allar hvalveiðar í ábataskyni 1986--1990 og vinna að því að þetta bann haldist eftir 1990 ef vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins mælir með því og beita áhrifum sínum til að hvetja allar aðrar þjóðir, hvort sem þær eiga aðild að Alþjóðahvalveiðiráðinu eður ei, til að gera slíkt hið sama.
    5. Að móta stefnu á vegum Alþjóðahvalveiðiráðsins að því er varðar hugsanlega framtíðarveiði úr hvalastofnum sem ekki eru í hættu að því tilskildu að veiðarnar byggist á vel grunduðu mati á eiginleikum stofnins.
    --- Að jafnvægi í lífkerfi sjávarins sé ekki stofnað í hættu.
    --- Að tekið sé eðlilegt tillit til þarfa og hagsmuna þeirra frumbyggja sem stunda hvalveiðar.
    --- Að vísindaveiðar séu í lágmarki.
    --- Að refsiaðgerðum verði beitt gegn þeim löndum sem ekki virða þessa stefnumótun.
    --- Að vinna að því að valdsvið Alþjóðahvalveiðiráðsins verði aukið svo það nái einnig til smáhvala, höfrunga o.s.frv. með það fyrir augum að banna dráp þeirra.``

    Hér lýkur þessari tilvitnun, virðulegi forseti. Þetta er samþykktin eins og hún var endanlega afgreidd og ég held að hún sé þannig að við getum vel við hana búið. Ég vek athygli á því að samþykkt var breytingartillaga frá undirrituðum varðandi 4. tölul. í því sem ég taldi upp hér síðast, þ.e. þar sem fjallað var um að vinna að því að áfram verði í rauninni veiðibann eða núllkvótar eftir 1990. Þar var að okkar tillögu bætt inn ,,ef vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins mælir með því.`` Og þannig var tillagan samþykkt.
    Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að segja mikið meira hér. Það hefur verið rætt töluvert um sameiningarþróunina sem nú á sér stað í Evrópu. Ég vil bara lýsa því yfir að þar erum við Íslendingar á réttri leið, að hafa samstarf við EFTA-ríkin og taka fullan þátt í samningaviðræðum um hugsanlegt evrópskt efnahagssvæði. Við hvorki getum né viljum útiloka okkur frá því sem þarna er að gerast og alveg burt séð frá því hvað gerist og hvernig þátttakendur við verðum í þessu samstarfi þurfum við að vinna hér mjög mikið samræmingarstarf á öllum sviðum, bara ef við ætlum að selja okkar vörur og halda áfram að flytja inn vörur frá Evrópu. Ég lýsi fullum stuðningi við það sem hæstv. utanrrh. og ríkisstjórnin og einstakir ráðherrar hafa verið að gera í tvíhliða viðræðum og í EFTA-viðræðunum, fullyrði að þar erum við á réttri leið.
    Það hefur hins vegar verið sorglegt í þessum viðræðum að hlusta á fulltrúa Alþb. gera grein fyrir sínum sjónarmiðum sem ég vona svo sannarlega að séu ekki sjónarmið flokks hans. Hann hefur opinberað sérstöðu sína og kannski hefur formanni flokksins mistekist að draga flokkinn inn í nútímann eins og þyrfti en hv. 2. þm. Austurl. Hjörleifur Guttormsson er enn þá fastur í freðmýrum fortíðarinnar og talar þaðan. Og einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að jafnvel kunni svo að vera að forusta Alþb. sé bæði í þessu máli og ekki síður í stóriðju- og virkjunarmálum að einangrast frá þjóðinni. Og út af fyrir sig harma ég það ekki en það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir þá ágætu menn.
    Að lokum, virðulegi forseti, var hér nokkurt upphlaup á dögunum þegar hv. 2. þm. Austurl. hljóp hér eina ferðina upp í ræðustól til þess að fullyrða eftir útvarpsfregnum, lausafregnum að því er virðist, að sennilega væru stórfelldar símahleranir og persónunjósnir stundaðar á Keflavíkurflugvelli. Ég tel að í ræðu sinni hafi hæstv. utanrrh. skýrt frá vettvangsathugun í því máli sem hnekkir öllum þeim fullyrðingum þannig að þar stendur ekki steinn yfir steini. Hv. 2. þm. Austurl. hefur bara enn einu sinni, því miður er hann ekki viðstaddur hér í salnum núna, orðið ber að því að hlaupa í ræðustól með órökstutt fjölmiðlafleipur. Ég held að þetta hafi komið mjög skýrt og greinilega í ljós enda þótt hv. 2. þm. Austurl. kæmi hér í ræðustól að máli utanrrh. loknu og léti að því liggja að það væri ekki víst að þetta væri allt saman öldungis rétt og lét meira eða minna að því liggja að samt kynni það enn að vera svo að þarna

væru stundaðar stórfelldar símahleranir og persónunjósnir.
    Það væri vissulega hægt að tala hér langtum lengra mál, virðulegi forseti. Ég ætla ekki að gera það. Ég hef nefnt nokkur atriði sem mér finnast máli skipta. Margt fleira mætti hér segja og einkanlega hefði kannski verið ástæða til að fjalla meira um Evrópumálin og það sem þar er að gerast en hæstv. utanrrh. hefur þegar gert því máli glögg og ítarleg skil og ég hef lýst fullum stuðningi við það sem verið er að gera í þeim efnum og læt því máli mínu lokið.