Anna Ólafsdóttir Björnsson:
Virðulegi forseti. Utanríkismálaumræða sú, sem staðið hefur síðan á hádegi í gær, er um margt ólík annarri utanríkismálaumræðu sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Þar ráða mestu þau miklu tíðindi sem orðið hafa í Evrópu, gerbreyting á þjóðskipulagi hálfrar álfu á örfáum mánuðum. Friðarmálin eru mönnum vissulega ofarlega í huga á þessum umbrotatímum og þíðan á alþjóðavettvangi er meiri en menn hafa þorað að vona. Kannski væri réttara að tala um leysingar.
Það er því dapurlegt að heyra af munni hæstv. utanrrh., sem því miður er ekki hér til að heyra orð mín, tal um aukið mikilvægi herstöðvar Atlantshafsbandalagsins samfara breyttri heimsmynd. Í öðru orðinu talar hann um mikilvæga eftirlitsstöð með friðnum. Í hinu orðinu bendir hann á að hafið í kringum Ísland sé mikilvæg herflutningaleið fyrir Atlantshafsbandalagið. Er þetta okkar hlutur í friðnum og þíðunni að mati hæstv. utanrrh.? Sú yfirlýsing sem fram kemur í skýrslu hæstv. ráðherra bendir óneitanlega til þess. Þar segir, með leyfi hæstv. forseta:
,,Hnattstaða Íslands gerir það að verkum að við niðurskurð og samdrátt í herafla Atlantshafsbandalagsins á meginlandi Evrópu kann mikilvægi liðsaukaflutninga frá Bandaríkjunum og Kanada á hættu- og ófriðartímum að aukast vegna hins landfræðilega mismunar á bandalögunum tveimur.``
Það er áhyggjuefni að á sama tíma skuli hæstv. ríkisstjórn ekki vera reiðubúin til að taka af skarið og leggja þá áherslu á kjarnorkuvopnalaus svæði á norðurslóðum sem nauðsynleg er. Það er slegið í og úr í skýrslu hæstv. utanrrh. Þar segir:
,,Með því að samskipti austurs og vestur hafa afgerandi áhrif á forsendur kjarnorkuvopnalauss svæðis er augljóslega varhugavert að reyna að draga saman niðurstöður af starfi hópsins fyrr en séð er fyrir endann á þeim miklu
breytingum sem nú eru í gerjun. Á þessari stundu skal hins vegar ósagt látið hvort hinar öru breytingar í alþjóðastjórnmálum sem heimurinn verður vitni að þessa dagana muni hafa áhrif til þess að flýta eða tefja störf vinnuhópsins um kjarnorkuvopnalaust svæði.``
Ég vil minna á að sú þróun sem varð í Austur-Evrópu á sl. ári átti rætur í eindreginni afstöðu sem þorri fólks tók. Það vildi breytingar. Leikur nokkur vafi á því að þorri fólks hér á landi vill kjarnorkuvopnalaus svæði í höfunum umhverfis landið, á fiskimiðunum í kringum okkur, lífsbjörginni sjálfri? Væri ekki meiri sæmd í því að taka afdráttarlausa afstöðu í stað þess að velkjast í vafa?
Fleiri atriði í ræðu hæstv. utanrrh. væri vert að drepa á. Einkum væri freistandi að fara nokkrum orðum um þá smánarlegu frammistöðu Íslands á alþjóðavettvangi að vera enn þá víðs fjarri einsprósentsmarkinu sem sett hefur verið í
þróunaraðstoð. Frammistaðan er sífellt verri og nú er svo komið að aðeins 0,05% af þjóðarframleiðslu okkar fer til þróunaraðstoðar. Ég deili þeim áhyggjum með fleiri þingmönnum hér.
Ég hef ætlað mér hér í dag að leggja megináherslu á annað en þessi mjög svo mikilvægu mál sem ég hef drepið á nú. Það vill allt of oft gleymast að auk friðarmála og viðskipta snúast samskipti þjóða í æ ríkari mæli um vinnu fólks, skilgreinda sem vinnuafl af hálfu þeirra sem líta á hana sem auðlind til eigin brúks, en með áherslu á félagsleg réttindi og vinnuaðbúnað af ýmsum toga ef maður sér hana frá sjónarhorni þess sem leysir af hendi vinnuna. Og þar eiga konur raunar drjúgan skerf í vinnuafli heimsins. Þetta er ekki síst raunin nú þegar flutningar á vörum og þjónustu eru orðnir mjög greiðir og það sem er að gerast í einu landi hefur áhrif á önnur lönd til hins betra eða hins verra, meir en nokkru sinni fyrr. Mál þessi hafa komist í brennidepil, og þó ekki sem skyldi, í umræðunni um evrópskt efnahagssvæði. Launamál og félagsleg réttindi eru þau mál sem minnst er vitað um hvernig þróast í því frjálsa flæði fjármagns sem virðist öðru fjórfrelsi fremur eiga greiða leið um Evrópu framtíðarinnar, a.m.k. í þeirri mynd sem dregin hefur verið upp fram til þessa. Skilgreiningin, vinnuafl í þágu fjármagnseigenda, er því miður allt of oft það sjónarhorn sem notað er í þessari umræðu og það gefur skekkta og skerta mynd af raunveruleikanum. Ekki síður en linsa á myndavél sem sýnir þröngt sjónarhorn. Útgangspunkturinn á vitanlega að vera fólkið í löndum Evrópu og raunar alls heimsins, velferð þess og lífskjör.
Ein er sú skýrsla sem hefur nokkra sérstöðu meðal þeirra sem fluttar hafa verið í þessari umræðu að því leyti að þar er þetta sjónarhorn með í myndinni, en það er skýrsla hæstv. félmrh. um 76. Alþjóðavinnumálaþingið í Genf 1989. Í umræðum á sl. ári er hæstv. félmrh. flutti skýrslu sína frá 75. Alþjóðavinnumálaþinginu kom fram að skýrslur þessar hljóta sjaldnast nokkra umræðu á Alþingi. Vera má að tímasetning skýrslunnar í þinglok síðasta þings hafi einhverju ráðið um að svo varð ekki þá frekar en endranær. Því ekki efa ég að hv. þm. hafi áhuga á málefnum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar, stofnunar sem ekki síst gegnir því mikilvæga hlutverki að styðja við bakið á þeim þjóðum
sem skammt eru á veg komnar í að gæta hagsmuna vinnandi þegna sinna. Ég heyri að það eru ekki allir hér sem deila þeirri trú minni og það verður að sjálfsögðu hver að gera grein fyrir sinni skoðun.
Að vísu gengur misvel að fá þjóðir til að staðfesta samþykktir á sviði vinnumála eða einstakar greinar en það rýrir ekki gildi samþykktanna, heldur kortleggur stöðu mála. Meðal verkefna Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og þinga hennar er einmitt að fylgjast með framkvæmd alþjóðasáttmála ýmissa aðila um vinnumálefni, svo sem Sameinuðu þjóðanna og Evrópuráðsins.
Í fylgiskjali IV með skýrslu hæstv. félmrh. nú eru birtar athugasemdir nefndar óháðra sérfræðinga við
framkvæmd Íslands á Félagsmálasáttmála Evrópu. En Ísland fullgilti sáttmálann í heild, að því er mér hefur sýnst í einhverjum plöggum, árið 1981. Það vakti reyndar sérstaka athygli mína að Ísland hefur ekki gengist undir skuldbindingar skv. nokkrum greinum þessa sáttmála, m.a. varðandi 7. gr., er fjallar um rétt barna og ungmenna til verndar og 8. gr. er fjallar um rétt vinnandi kvenna til verndar. Þætti mér gott ef einhver gæti gert mér grein fyrir því hverju þetta sætir. En greinarnar hljóða svo:
,,7. gr. Börn og ungmenni eiga rétt á sérstakri vernd gegn líkamlegri og siðferðilegri hættu sem að þeim steðjar.
8. gr. Í sambandi við barnsburð og önnur tilvik, eftir því sem við á, eiga konur rétt á sérstakri vernd í starfi.``
Ég fæ í rauninni ekki séð hvað er því til fyrirstöðu að þessar greinar sitji við sama borð og aðrar greinar sem nefndar eru í þessari skýrslu.
Margt áhugavert kemur fram í þessum athugasemdum, bæði varðandi þau ákvæði sem Ísland telst framfylgja svo og þar sem athugasemdir eru gerðar. Þótt Ísland standi e.t.v. vel að vígi miðað við ýmis önnur lönd í heiminum langar mig að drepa á nokkur atriði í þessu sambandi.
Í 4. gr. sáttmálans er fjallað um rétt verkafólks til kaups er veiti því og fjölskyldum þess sómasamleg lífskjör. Þessu ákvæði telst Ísland framfylgja. Mig langar að setja stórt spurningarmerki við mat það sem lagt er á hvað er sómasamlegt. En raunar kemur fram í umsögn nefndarinnar að hana skorti ítarlegri upplýsingar frá Íslandi, m.a. um meðallaunatekjur og lægstu laun. Kannski það skýri niðurstöðurnar.
Fram kemur í skýrslunni varðandi 2. gr. sáttmálans að upplýsingar vantar einnig um hvernig unnið sé að því að stytta vikulegan vinnutíma. Ég verð að játa að mig fýsir einnig að fá slíkar upplýsingar. Og ég geri ráð fyrir að sama máli gegni um flesta aðra þingmenn.
Varðandi viðurkenningu á rétti karla og kvenna til sama kaups fyrir jafnverðmæt störf undrast ég mjög að upplýsingar hafa verið gefnar um að einungis 10% launamunur sé á milli karla og kvenna ef litið er fram hjá aukavinnu, því þá rýkur munurinn reyndar upp í 40%. Vísað er til niðurstöðu kannana Þjóðhagsstofnunar sem birtar voru í skýrslu fyrir örfáum árum, en ég hlýt að spyrja: Hvað með aðrar kannanir sem leitt hafa í ljós aðrar og mun svartari staðreyndir um launamun kvenna og karla á Íslandi? Hér er eitthvað bogið við upplýsingar um vinnumálefni á Íslandi eða er e.t.v. eitthvað bogið við skilgreiningar á því hvað séu jafnverðmæt störf?
Ég tek undir það með hæstv. félmrh. að brýnt er að marka samræmda stefnu um málefni er snerta aðbúnað fjölskyldunnar. Eins og fram kemur í athugasemdum sérfræðinganefndarinnar við 16. gr. sáttmálans vantar sárlega upplýsingar um ýmislegt er þessi mál varðar og verður ekki við það unað öllu lengur að svo sé. Þótt ekki hafi það farið ýkja hátt í almennri umræðu veit ég að innan
verkalýðshreyfingarinnar hafa menn haft verulegar áhyggjur af athugasemdum sérfræðinganefndarinnar um rétt manna til þess að vera ekki í stéttarfélögum. Í athugasemdum nefndarinnar kemur m.a. fram eftirfarandi:
,,Nefndin veitti sérstaka athygli athugasemdum í íslensku skýrslunni og viðbótarupplýsingum sem skýrðu ástandið hvað varðar rétt launamanna til að stofna eða ganga í stéttarfélög.
Hún veitti því fyrst og fremst athygli að samkvæmt túlkun Hæstaréttar í desember 1988 á 73. gr. stjórnarskrár Íslands er mönnum ekki tryggður réttur til að vera ekki félagar í stéttarfélagi. Auk þess taldi rétturinn að alþjóðlegir samningar, svo sem Evrópuráðssamningurinn um verndun mannréttinda og mannfrelsis, sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um almenn og pólitísk réttindi o.s.frv., ógiltu ekki sjálfkrafa ,,staðfest`` ákvæði stjórnarskrárinnar.`` Og litlu aftar:
,,Nefndin veitti því enn fremur athygli að samkvæmt lögum nr. 64/1981 eiga aðeins félagar í stéttarfélögum rétt á atvinnuleysisbótum. Með tilliti til þess að það að svipta launamann rétti til fjárhagslegrar verndar ef hann er atvinnulaus er óverjandi ráðstöfun, sem hefur þann tilgang að neyða hann til að ganga í eða vera áfram í stéttarfélagi, hlaut nefndin að komast að þeirri niðurstöðu að ofangreind lög brytu í bága við anda og bókstaf 5. gr. sáttmálans.``
Þetta er aðeins fátt eitt af því sem drepið er á í þessu sambandi og að lokum vil ég grípa niður hér aðeins neðar.
,,Nefndin hafði veitt því athygli í fyrri skýrslu frá Íslandi að:
-- Aðeins stéttarfélög höfðu rétt til að fara í verkfall. Launamenn, sem áttu ekki aðild að almennum samningi stéttarfélags um kaup og kjör, gátu fellt niður vinnu samkvæmt eigin ráðningarsamningi, en slík vinnustöðvun taldist ekki verkfall samkvæmt ákvæðum laga nr. 80/1938.``
Í framhaldi af þessu er síðan vikið að verkfallsrétti opinberra starfsmanna og skorti á nákvæmum útlistunum á því hverjir hafa rétt og hverjir ekki. Hið mætasta mál, þ.e. sá hluti þessara athugasemda en ég mun ekki tíunda það nánar að svo stöddu.
Umræða af þessu tagi er að mörgu leyti ný á Íslandi og von að þessi óvenjulega sýn í samfélagi sem hefur þrátt fyrir allt ríka hefð fyrir stéttarfélögum komi slíkar athugasemdir mönnum ókunnuglega fyrir sjónir og ýmsum þyki áherslurnar orka tvímælis. Það má glögglega finna í ávarpi Ásmundar Stefánssonar á þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem birt er sem hluti fskj. II með skýrslu hæstv. félmrn. Ég vil leyfa mér að vitna til orða hans þar sem hann segir:
,,Meðal iðnvæddra þjóða er tekjum einnig misskipt og í hagsveiflum síðari ára hefur gætt alvarlegrar tilhneigingar til niðurskurðar á félagslegri þjónustu. Sterk markaðshyggja og pólitísk andstaða gegn viðleitni til jöfnunar og gegn allri starfsemi hins opinbera hefur aukið þessa tilhneigingu. Jafnframt hefur í ýmsum löndum verið rekinn harður áróður gegn verkalýðsfélögum. Þau hafa verið ásökuð fyrir að
trufla markaðskerfið, halda uppi of háum launum og gera óraunhæfar kröfur um félagslegt öryggi.`` --- Mig langar að skjóta hér inn, hver vill meta hvað eru óraunhæfar kröfur um félagslegt öryggi? En ég held áfram tilvitnun minni: ,,Með yfirgangi og ásókn bæði af hálfu atvinnurekenda og stjórnvalda hefur dregið hættulega úr styrk verkalýðssamtakanna í fjölmörgum iðnvæddum ríkjum.``
Hér læt ég þessari tilvitnun lokið en Ásmundur Stefánsson er þarna vissulega að vísa til þess sem ég gat um áðan. Þótt ég hafi stytt tilvísunina mjög bendi ég á að þetta má allt saman lesa í þeirri skýrslu sem hér er til umfjöllunar. Ég er hins vegar ekki í vafa um það, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, að umræða af þessu tagi mun leita sífellt meira á okkur í framtíðinni, einkum vegna tilkomu evrópsks efnahagssvæðis, og við neyðumst til að takast á við þennan veruleika.
Það kom fram í máli hv. 1. þm. Suðurl. hér í gær að hann taldi þróun mála í Austur-Evrópu vera sigur markaðsbúskaparins, eins og hann sagði orðrétt. Ég vísa á orð Ásmundar Stefánssonar um að sterk markaðshyggja og pólitísk andstaða gegn viðleitni til jöfnunar og gegn allri starfsemi hins opinbera hefur aukið á tilhneigingu til niðurskurðar á félagslegri þjónustu og harður áróður er jafnframt uppi gegn verkalýðsfélögunum. Þetta er sú tilvitnun sem ég var áðan með og þar sem ég stytti þá tilvitnun mikið endurtek ég þetta nú til að enginn velkist í vafa um við hvað ég á. Ég verð að játa að mér finnst það háskalegt ef í nafni frelsis yrði gerð atlaga gegn samtökum vinnandi fólks undir því yfirskini að tryggja frelsi þess fólks en þetta væri í raun atlaga gegn samtakamætti fólks. Með því er ég ekki að mæla með því að skylda eigi fólk til að vera í verkalýðsfélögum, en ég hlýt að benda á hve háskalegt það gæti orðið ef atvinnurekendur fara að beita þeim rökum að þeir vilji ekki ráða aðra til vinnu en fólk sem nýtur þess eina frelsis að vera utan stéttarfélaga.
Það má margt misjafnt segja um stéttarfélög hér á landi á meðan þau tryggja mönnum ekki lágmarkslaun sem nægja til framfærslu. Og við vitum hverjir raðast í lægstu taxtana. Það eru konur. Þetta merkir einfaldlega að við verðum að bæta félögin en ekki það að hver og einn eigi að fara út í einkabaráttu fyrir eigin kaupi og kjörum og þar væri ég nú hrædd um að konur færu enn frekar halloka en nú er. Ekki hafa þær samtryggingu karlanna á bak við sig.
Ég get ekki látið hjá líða að geta um þann hluta skýrslunnar er fjallar um kæru Alþýðusambands Íslands á hendur íslensku ríkisstjórninni til Alþjóðavinnumálastofnunarinnar þótt þar sé um næstum tveggja ára gamalt mál að ræða og forsendur kærunnar sem betur fer ekki lengur fyrir hendi, verkfallsbann og bann við launahækkunum. Við erum þó enn að súpa seyðið af áhrifum þessara aðgerða ríkisstjórnarinnar, ekki síst fólkið sem eftir sat í neðstu launaflokkunum, úrræðalaust. Það eru konurnar.
Þótt nefndir þær er fjölluðu um kæruna hafi komist að þeirri niðurstöðu að brýna þjóðarnauðsyn hafi borið
til að grípa til þessara aðgerða fékk ríkisstjórn Íslands þungar ákúrur vegna málsins og þeim megum við ekki gleyma. Þar kom m.a. fram að þetta var í níunda sinn á tíu árum að slíkt mál eða sambærilegt hafði komið upp, af einhverju tagi, og ástæða til athugasemda. En áður en ég vík að þeim finnst mér nauðsynlegt að líta aðeins á mat Ásmundar Stefánssonar á því hvort þessi brýna þjóðarnauðsyn var nú fyrir hendi og skýringar hans á því hvernig sú stórfurðulega túlkun varð til. Með leyfi forseta mun ég hér hafa síðustu tilvitnun ræðu minnar:
,,Fyrir sléttu ári neyddist Alþýðusamband Íslands til að leita til Alþjóðavinnumálastofnunarinnar vegna bráðabirgðalaga sem ríkisstjórn Íslands
setti 20. maí 1988, fáeinum dögum eftir að Alþingi lauk störfum. Þau lög voru augljóst brot á samþykkt 87 og 98, en Ísland hefur staðfest báðar þær samþykktir. Með lögunum var samningsréttur algjörlega afnuminn í ellefu mánuði, fram til 10. apríl 1989 (síðar breytt til 15. febr.) og þann tíma voru, eins og segir í lögunum, ,,verkbönn, verkföll, þ.m.t. samúðarvinnustöðvanir og aðrar aðgerðir sem ætlað er að knýja fram aðra skipan mála en lög þessi mæla fyrir óheimilar``. Einnig var í lögunum skýrt ákvæði sem bannaði atvinnurekendum að hækka ,,laun, þóknanir og hlunnindagreiðslur hvers konar umfram það sem samið hefur verið um í kjarasamningum og kveðið er á um í lögum þessum.`` Og áfram segir: ,,Í niðurstöðum stjórnarnefndar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar frá því í febrúar sl. er tekið fram að ,,Lögin frá 20. maí 1988 takmörkuðu augljóslega rétt samtaka atvinnurekenda og launafólks til frjálsra kjarasamninga á meðan lögin voru í gildi.``"
Og síðan getur Ásmundur um að níu sinnum á tíu árum hafi löggjafinn gripið inn í gerða samninga eins og áður gat. Það bendir vissulega til þess að löggjafinn hafi of ríka tilhneigingu til afskipta af kjarasamningum á Íslandi. Síðan heldur Ásmundur áfram:
,,Stjórnarnefndin tók undir það sjónarmið okkar sem mestu skiptir að ,,endurtekin beiting laga til að hafa stjórn á efni samninga í framtíðinni grefur undan trú launafólks á gildi aðildar að verkalýðsfélögum. Félagar þeirra eða mögulegir félagar þeirra geti talið að það sé lítið gagn í því að styðja eða ganga í samtök sem hafa þann megintilgang að gera kjarasamninga við atvinnurekendur ef löggjafinn nemur þá úr gildi hvað eftir annað.``
Þó nefndin tæki þannig undir meginefni ásakana okkar og lýsi í tilmælum sínum áhyggjum sínum vegna lagaafskipta íslenskra stjórnvalda af kjarasamningum taldi hún að þjóðarnauðsyn hafi borið til lagasetningarinnar á síðasta ári.
Sú niðurstaða er greinilega mörkuð af því annars vegar að Ísland hefur fram að þessu haft hreinan skjöld og hins vegar að trúnaður hefur verið lagður á rangfærslur íslensku ríkisstjórnarinnar um svokallað samráð við samtök launafólks. Ekki er ólíklegt að frekar hafi verið lagður trúnaður á rangfærslur ríkisstjórnarinnar fyrir þá sök að sá stjórnmálaflokkur
sem harðast hafði gagnrýnt lagasetninguna þegar hún gekk yfir var orðinn þátttakandi í ríkisstjórn þegar ríkisstjórnin gaf svar sitt. Ég vil hins vegar ítreka að þótt þetta gefi til kynna að um viðurkennda staðreynd sé að ræða er sú sannarlega ekki raunin og ég treysti því að sérfræðinganefndin sannreyni að ríkisstjórnin fór með rangt mál.``
Svo mörg voru þau orð. Ég tek að vísu ekki undir þau orð Ásmundar Stefánssonar að Alþb. hafi gengið harðast gegn þessari íhlutun. Það gerði Kvennalistinn, að mínu mati, en að öðru leyti vil ég vekja athygli á þessum orðum hans og hans mati á því hvað hér væri á ferðinni.
Ég læt nú máli mínu lokið, hæstv. forseti, þótt tilefni sé til þess að drepa á margt fleira í nefndri skýrslu með það í huga hvernig samstarfi okkar við Alþjóðavinnumálastofnunina verður best fyrir komið. Ég tel að þrátt fyrir ýmsa agnúa sé slíkt alþjóðlegt samstarf ákaflega lærdómsríkt, veki spurningar sem mann fýsir að fá svör við.
Ég ítreka það enn að það eru ekki síst hagsmunir kvenna sem tryggja þarf á vinnumarkaði heimsins og með það í huga vona ég að á komandi árum verði öflugri umræða um vinnuréttarmál, félagslega þjónustu og þann veruleika sem við kunnum að komast í snertingu við. Veruleika afturfarar í málefnum vinnandi fólks, jafnvel í Evrópu sem oft telur sig standa framarlega í þessum efnum.
Að lokum vil ég lýsa ánægju minni með nýja og breytta samþykkt um frumbyggja og ættflokka í sjálfstæðum ríkjum. Í þeim texta er ýmislegt áhugavert þótt ég reki það ekki frekar hér. Mér þótti þó ekki við hæfi að fara hér úr ræðustól án þess að nefna það.