Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Borist hafa eftirfarandi bréf frá hæstv. forseta Nd. Hið fyrsta er dagsett 28. mars 1990 og hljóðar svo:
,,Matthías Bjarnason, 1. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda af heilsufarsástæðum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Einar Kr. Guðfinnsson, taki sæti á Alþingi í forföllum mínum.``
Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Annað bréfið er dagsett 29. mars 1990 og hljóðar svo:
,,Ólafur Þ. Þórðarson, 2. þm. Vestf., hefur ritað mér á þessa leið:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Vestfjarðakjördæmi, Pétur Bjarnason fræðslustjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Þriðja bréfið er dagsett 2. apríl 1990 og hljóðar svo:
,,Jón Sæmundur Sigurjónsson, 5. þm. Norðurl. v., hefur ritað mér á þessa leið:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Alþfl. í Norðurlandskjördæmi vestra, Birgir Dýrfjörð, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.``
Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Allir þessir hv. þm. hafa áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og ég býð þá velkomna til starfa.