Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins rifja það upp af því að það hefur ruglast hér í umræðunum nokkuð að það var á árinu 1981 sem Alþingi samþykkti langtímaáætlun í vegagerð, til tólf ára, undir forustu þáv. samgrh. Steingríms Hermannssonar. Og það var einmitt í sambandi við þá áætlun að tekin var sú ákvörðun að taka sérstaklega hættulega vegi undir svokallað Ó-verkefni. Það hittist einmitt svo á að þetta voru allt saman verkefni sem voru tengd Ó-inu. Það voru Ólafsvíkurenni, Óshlíðin og Ólafsfjarðarmúli. Það var gerð um þetta langtímaáætlun sem unnið hefur verið eftir og ég er að rifja þetta hér upp vegna þess að þegar við ræddum vegáætlunina 1989, á síðasta ári, þá varaði ég sterklega við breytingum á þessu atriði í langtímaáætluninni. Ég var ekki þar með að tala gegn þeim stórverkaákvörðunum sem núv. hæstv. samgrh. lagði fram en ég varaði við því að það væri rétt tímasetning þar sem við ættum svo mikið eftir í hinu almenna verkefni við vegagerð, að það væri ástæðulaust annað en að ætla stórverkum stað í nýrri langtímaáætlun sem lögum samkvæmt á að vera búið að leggja fram. Og undir þetta var tekið en því miður var sú ákvörðun tekin að breyta þessu ákvæði langtímaáætlunarinnar í vegáætlun 1989 og setja stórverk inn undir sérstökum lið, færa saman almenna vegakerfið eins og slitlög og almenna uppbyggingu veganna og taka Ó-verkefnin út og láta þau hverfa úr vegáætluninni en taka í staðinn stórverk, sem eru jarðgöng, stórbrýr og Reykjavíkursvæðið o.fl.
Ég hygg að hv. þm. Karvel Pálmason hafi greitt sitt atkvæði með vegáætluninni 1989 og þar með þessari breytingu. Ég er ekki þar með að segja að það eigi að hætta við þessi verkefni, þau eru að sjálfsögðu í gangi og Ólafsfjarðargöngin eru ljóst dæmi um það og vonandi verður haldið áfram með Óshlíðina eins og áætlað hefur verið og þörf er fyrir því ég hygg að þörfin fyrir að hraða úrbótum í Óshlíðinni sé jafnvel meiri en menn almennt gera sér grein fyrir, það sýna slysa- og óhappaatvik.
En hvers vegna er ég að tala um þetta hér? Vegna þess að ég óttast að einmitt þessi stefnubreyting, sem hæstv. ráðherra fékk samþykkta á Alþingi mótatkvæðalaust á síðasta ári, eigi eftir að draga dilk á eftir sér. Þar á ég við að það er svo mikið eftir af stórverkum í hinu almenna vegakerfi af þeirri einföldu ástæðu sem margoft hefur verið talað um hér þegar við erum að ræða um vegáætlun, að stærstu og dýrustu verkin í almenna vegakerfinu hafa verið látin bíða. Menn hafa reynt að nýta tæknina til þess að flýta slitlögum á vegakerfið og tekið það sem var ódýrast í uppbyggingunni víðast hvar í kjördæmum landsins. Við þurfum ekki að litast lengi um hringinn í kringum landið til þess að sjá að það eru alls staðar eftir dýru og fyrirferðarmiklu verkin í almenna kerfinu sem taka miklu meira fjármagn en það sem búið er að gera. Og það er einmitt þetta sem ég varaði við í fyrra.
Hins vegar kom skýrt fram í vegáætluninni sem
samþykkt var 1989 að þessi stefnumörkun byggði á því að það aukna fjármagn sem rynni til vegagerðar færi í þessi verkefni þannig að almenn verkefni og bundin slitlög héldu sínum hlut að mestu. Þetta var svarið við þessari gagnrýni og ég sé að hæstv. samgrh. hefur sett þetta í grg. á ákveðinn máta og þá hlýt ég að minna á það að þegar við förum að fara ofan í þennan frekari niðurskurð, sem átti ekki að vera á dagskrá nú en er það vegna þessara sérstöku aðstæðna sem ég ætla ekki að ræða meira, verðum við að gæta að því að stórverkin sem eru í gangi taki ekki stærri hlut þannig að almenna verkefnið verði skert meira en í samræmi við þetta. Og það er það sem ég tel að bíði fjvn. þegar við fjöllum nánar um þetta mál.
Ég vil aðeins endurtaka það að auðvitað er ágætt að hæstv. samgrh. undirstrikar að hann hyggist óska eftir tilskipan í nefnd til að endurskoða m.a. langtímaáætlunina. Þetta var krafa sem var samþykkt með samþykkt vegáætlunar 1989 og átti þá þegar að hefja undirbúning á þessari endurskoðun því að því er beinlínis lofað í gildandi langtímaáætlun í vegagerð.
Þess vegna hlýt ég að hvetja hæstv. ráðherra til þess að láta ekki dragast að hefja þessa endurskoðun nú þegar og þetta verði ekki aðeins orðin tóm heldur verði gengið í það að fá þessa nefnd virka þannig að hún geti hafið störf sem hún átti raunar að hefja síðsumars 1989 skv. samþykkt hér á hv. Alþingi. Þetta tel ég að sé þess vegna tímabært að rifja upp og hvetja hæstv. ráðherra til þess að framkvæma þetta því að þetta er ekkert smámál. Það verður ekki tekið upp úr einhverjum pappírum að nú skuli vera gerð ný langtímaáætlun til 10--12 ára. Á bak við slíka endurskoðun er gífurleg vinna og þar þurfum við að nýta Vegagerð ríkisins sem býr yfir þessum upplýsingum og þekkingu og hefur margt í sínum fórum sem til þarf til þess að gera þetta að veruleika á stuttum tíma. En til þess þarf eigi að síður tíma, það vitum við öll, því að öll stórvirki í vegagerð, hvað sem þau heita, hvort þau eru sérmerkt eða ekki, þurfa miklar rannsóknir og mikinn undirbúning til þess að hægt sé að vinna að framgangi þeirra á eðlilegan máta.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa hér langt mál vegna þess að þetta mál kemur til fjvn. og þar höfum við að sjálfsögðu möguleika til að afla þeirra upplýsinga sem til þarf. En ég taldi rétt að rifja þetta upp vegna þess að þessi ákvörðun um Ó-vegina, sem var mikilvægt spor og eitthvert besta verk sem var gert á sínum tíma að ákveða að taka þessa hættulegu vegi út úr, þessu var breytt á sl. ári með samþykki sjálfsagt allra þingmanna á hv. Alþingi. Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða um þetta. Ég get látið það koma fram að ég harma mjög að það skuli hafa þurft að kúvenda í þessu máli svona snögglega eftir að búið var að ná samkomulagi um það að taka inn nýja stefnu hæstv. núv. samgrh. um þessi stórvirki og þessar tilfærslur og yfirlýsingar um að niðurskurður tekjustofna Vegagerðar ríkisins heyrði sögunni til. Þetta er því slæm lending hjá hæstv. ráðherra. Hins
vegar er ekki um annað að ræða en sætta sig við þetta, en það er hægt að bæta
úr þessu með því að hraða endurskoðun og eins það að við áttum okkur á því að sumir þessara stórverkaáfanga mega ekki takmarka frekar almenna vegagerð miðað við vegáætlunina eins og hún var samþykkt.