Yfirstjórn umhverfismála
Þriðjudaginn 03. apríl 1990


     Pálmi Jónsson (frh.) :
    Herra forseti. Ég hafði hafið að ræða þetta mál hér við 2. umr. fyrir nokkru síðan en frestaði þá ræðu minni að ósk forseta. Ég lét þess getið að þá voru þær kringumstæður, sem var á síðdegisfundi, að fáir hv. alþm. voru í salnum og svo er enn. Ég hef fullan skilning á því að hæstv. umhvrh. þurfi að sinna persónulegum erindum sínum í banka og geri ekki athugasemdir við það, en mér þykir mjög leitt að á reglulegum fundartíma Alþingis skuli svo fáir hv. alþm. vera viðstaddir þessa umræðu. Hér eru nú í salnum einungis fjórir stuðningsmenn hæstv. ríkisstjórnar að meðtöldum hæstv. forseta. Ég vil taka það fram að hæstv. umhvrh. hefur verið viðstaddur þessa umræðu á þann hátt að ekki er hægt að finna að því, en mér finnst að í rauninni skipti meira máli að sá hæstv. ráðherra sem flytur þetta frv., hæstv. forsrh., geti séð sér fært að vera við umræðuna.
    Hér er nú í salnum, sem að sjálfsögðu hefði átt að vera við alla þessa umræðu, hv. frsm. meiri hl. allshn., sá er mælti fyrir áliti meiri hl., en það er vitaskuld algjör nauðsyn að sá hv. þm., sem málsvari meiri hl. nefndarinnar, sé viðstaddur umræðu af þessum toga. Ég beini því til hæstv. forseta að ef kringumstæður hæstv. forsrh. eru með þeim hætti að hann geti setið hér, þó ekki væri nema hinn reglulega fundartíma sem stendur ekki skemur en til kl. 4, væri mér vitaskuld þökk á því.
    Ég vil láta það koma hér fram að afstaða tveggja stjórnarandstöðuflokka í þessu máli er ákaflega skýr og glögg. Þar á ég við afstöðu Sjálfstfl. annars vegar og afstöðu Frjálslynda hægriflokksins hins vegar. Þetta kom vitaskuld skýrt fram í afar yfirgripsmikilli og fróðlegri ræðu hv. 5. þm. Vesturl. sem hér var að ljúka máli sínu. Svo vill til að ég var næstur á mælendaskrá, eins og í ljós er komið, á eftir hv. þm., og ég hef hlýtt með athygli á hans ræðu sem markar auðvitað mjög skýrt afstöðu hans og hans flokks til þessa máls. Því miður hafa
hv. þm. og þar á meðal hv. þm. stjórnarliðsins lítt sinnt því að hlýða á þessa ræðu, jafnglögg og yfirgripsmikil og hún var. Með sama hætti hefur afstaða Sjálfstfl. komið afar skýrt fram í umræðum um þetta mál og hið fyrra mál sem þessu er tengt, þ.e. frv. til laga um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands.
    Ljóst er að þessir tveir flokkar eru gjörsamlega andvígir þessum málatilbúnaði öllum. Ljóst var við meðferð hins fyrra frv., frv. til laga um breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands, að þessir tveir flokkar voru því frv. gjörsamlega andvígir og töldu algerlega óþarft og til tjóns fyrir stjórnkerfið að stofna nýtt ráðuneyti, nýtt umhverfisráðuneyti. Nær hefði verið að gera breytingar á lögum um Stjórnarráð Íslands sem fælu það í sér að fækka ráðuneytum. Það er þó skoðun okkar sjálfstæðismanna að það beri ekki að stefna að breytingum í þá átt með einhverju naumu meirihlutavaldi hér á Alþingi hvort sem sá meiri hluti væri skipaður sjálfstæðismönnum ásamt öðrum eða

myndaður af einhverjum öðrum flokkum. Um slíkar breytingar þarf að nást víðtæk samvinna vegna þess að þær breytingar sem þær fela í sér á stjórnkerfinu eiga að þjóna Alþingi og framkvæmdarvaldinu sem Alþingi skipar hverju sinni og það framkvæmdarvald er af hinum ýmsu flokkum og lýtur ekki lögmálum þess að sveiflast eftir meiri hluta sem myndast á Alþingi hverju sinni. Þær breytingar sem knúðar voru í gegn voru með þeim einkennum að þar var með meirihlutavaldi knúin í gegn breyting sem okkur, sem vorum þar í minni hluta og stjórnarandstöðu, þótti til óheilla.
    Nú er þetta staðreynd, þessi breyting var gerð, og nú er þetta frv. hér til meðferðar og hæstv. umhvrh. er kominn í salinn og það er mér auðvitað til ánægju að hafa hann hér fyrir augum.
    Miðað við þessa staðreynd er einnig ljóst að þessir tveir flokkar eru andvígir því frv. sem hér er á ferðinni um verkefni þessa nýja ráðuneytis því að ég vænti þess að sú skipan sem nú er á lögum um Stjórnarráð Íslands verði ekki framtíðarskipan, þar verði gerðar breytingar á við fyrstu hentugleika en þá væntanlega með meira samkomulagi en nú hefur verið.
    Við teljum því að ástæðulaust sé, og verra en það, að fara í miklar breytingar á verkefnum ráðuneytanna sem lúta skipulagi sem nýlega hefur verið sett og væntanlega verður ekki viðvarandi heldur stendur um skamman tíma eða jafnvel til bráðabirgða. Á hinn bóginn hefur það komið fram að þessir tveir minnihlutaflokkar á Alþingi, Sjálfstfl. og Frjálslyndi hægriflokkurinn, hafa lagt fram eða fulltrúar þessara flokka í allshn., brtt. við frv. sem eru þess efnis að með því að þær verði samþykktar teljum við fært að hleypa þessu máli áfram í gegnum þingið. Þessar brtt. koma fram á þskj. 726 og ég þarf ekki að rekja þær hér vegna þess að frsm. minni hl., hv. þm. Ólafur G. Einarsson, skýrði þær í sinni ræðu fyrr í þessum umræðum. Einnig kemur fram skýrt mörkuð afstaða þessa minni hl. í nál. á þskj. 725. Þar eru dregin fram nokkur atriði sem eru þess eðlis að ástæða er til að vekja enn á þeim athygli vegna þess hve þessi umræða hefur dregist á langinn. Og þó svo að hv. 5. þm. Vesturl., sem var rétt að ljúka máli sínu, hafi farið mjög ítarlega yfir ýmsar umsagnir um
frv. er hægt að draga þetta saman í örstuttu máli sem einnig er gert í nál. minni hl. á þskj. 725. Þar kemur fram að verulegur þorri þeirra sem sent hafa umsagnir um frv. er andvígur því ellegar hefur við það sterkar athugasemdir.
    Í nál. er í fyrsta lagi nefnd ályktun búnaðarþings þar sem segir m.a. að fulltrúar á búnaðarþingi telji ósættanlegt með öllu að umhverfisráðuneytinu verði falið að annast gróðurvernd eins og lagt er til í 2. og 3. mgr. 1. gr. frv. og einnig að umhverfisráðherra geti fyrirskipað friðunar- og uppgræðsluaðgerðir. Þar kemur einnig fram sterk andstaða við það að færa frá landbrn. aðrar stofnanir landbúnaðarins eða hluta af starfsemi þeirra, enn fremur starfsemi sem ekki hefur fengið mikla athygli í þessum umræðum, svo sem eins

og eyðing refa og minka og eyðing vargfugls. Það er rétt að menn taki eftir því að þessar varnaraðgerðir samkvæmt lögum eru ekki endilega tengdar einhverri sérstakri náttúruvernd. Þær eru fyrst og fremst tengdar atvinnuvegi, landbúnaðinum. Eyðing refa og
minka er tengd landbúnaðinum vegna þess að þessi dýr eru starfsemi og búfé á vegum landbúnaðarins hættuleg. Um minka er auðvitað það að segja að þeir eru skaðræðisdýr í náttúrunni og hafa haft gífurleg áhrif á náttúrufar landsins, dýralíf landsins, einkum fuglalíf, en einnig á fiskstofna í ám og vötnum sem einnig eru beint tengdir landbúnaðinum.
    Ég minnist þess frá því ég var á unglingsaldri og fram yfir tvítugsaldur að þá voru allir smálækir og skurðir fullir af seiðum og smásilungi. Nú sést þetta hvergi nokkurs staðar í mínu nágrenni. Hvers vegna? Þessi seiði og smásilungur voru urriði og sjóbirtingur í uppvexti. Sjóbirtingur og urriði hrygnir sem sé ekki með árangri á lygnu vatni heldur í straumvatni, í lækjum. Og þarna var þessi fisktegund að alast upp. Nú er þetta alveg horfið og það er minkurinn sem hefur eytt þessum fiski gersamlega, alls staðar þar sem ég þekki til.
    Ég bý við veiðivatn og það má segja að það sé hreinn viðburður ef lengur veiðist sjóbirtingur við það veiðivatn sem áður var um það bil helmingur af veiðinni. Bleikjan getur hins vegar hrygnt á lygnu vatni, á kyrru vatni og þess vegna hefur hún lifað af. Minknum hefur ekki tekist að eyða henni.
    Að þessu leyti er minkurinn beint tengdur landbúnaðinum. Það skal hins vegar viðurkennt að áhrif hans á náttúrufarið, dýraríkið er einnig miklu meira og kemur þar við fleiri aðila heldur en landbúnaðinn. Ég minnist þess að þegar ég var á yngri árum og meðan heyjað var heima hjá mér á Akri á engjum var í slægjulandi allt löðrandi í andarungum. Það var löðrandi í ungum óðinshana og lóuþræls. Nú sést varla önd við Húnavatn og það sést varla óðinshani, hvað þá þórshani. Þar eru fáeinir lóuþrælar. Minkurinn hefur náð að eyða þessum stofnum, að mestu leyti, á stórum svæðum landsins.
    Kannski má bæta því við þetta um fuglalífið að á sama tíma og þessar breytingar hafa orðið hafa aðrar fuglategundir fjölgað sér með ólíkindum. Það eru einmitt mávategundir, jafnvel hrafnar, en þó ekki síður gæsir og álftir sem hefur fjölgað svo mjög að veldur gífurlegu tjóni á gróðurlendi. Ég hygg að beit gæsa og jafnvel álfta á hálendi landsins hafi leitt til þess að þar er nú snauðara um að litast á haustdögum, jafnvel svo að gróður er uppurinn.
    Um vargfugl og svartbak er það að segja að eyðing þessara tegunda er einnig að verulegu leyti beint tengd landbúnaðinum. Mávar hafa reynst verulegir skaðvaldar fiskstofna í uppvexti. Ég hef ekki hirt um að setja á mig hversu mörg seiði hafi verið talin úr einum svartbak sem skotinn var skömmu eftir að seiðum var sleppt í veiðiá en þau voru ótrúlega mörg, auk þess sem þessar fuglategundir hafa valdið og valda verulegu tjóni t.d. á sauðfé og þegar í stað komið til skjalanna ef eitthvað ber út af hjá skepnum.

Það liggur þess vegna fyrir að eyðing á þessum vargfuglum og vargdýrum, sem enginn er að tala um að eyða gjörsamlega úr náttúrufarinu en að halda þeim í skefjum, er beint tengd landbúnaðinum, a.m.k. að miklu leyti þó að það snerti einnig aðra aðila til viðbótar.
    Í nál. minni hl. á þskj. 725 eru, eins og ég áður sagði, dregin fram nokkur af þeim atriðum sem fram koma í umsögnum, dregin fram afstaða nokkurra aðila. Þar segir t.d. að meiri hluti stjórnar Hollustuverndar ríkisins sé andvígur flutningi þessarar stofnunar yfir í hið nýja umhverfisráðuneyti og að sömu afstöðu hafi framkvæmdastjóri þeirrar stofnunar. Heilbrigðiseftirlitið allt, forstöðumaður heilbrigðissviðs og Heilbrigðisfulltrúafélagið eru á sama hátt andvíg þeirri breytingu sem frv. gerir ráð fyrir. Forstöðumaður rannsóknastofu Hollustuverndar telur það svið tvímælalaust eiga heima undir heilbr.- og trmrn. Forstöðumaður eiturefnaeftirlits tekur ekki sterkar til orða en svo að hann hefur efasemdir um að breytingin sé skynsamleg. Sömu sögu er að segja um Geislavarnir. Forstöðumaður þeirrar stofnunar er andvígur flutningi sinnar stofnunar. Veðurstofustjóri telur flutning Veðurstofunnar frá samgrn. óskynsamlega ráðstöfun. Siglingamálastjóri er andvígur ákvæðum frv. er varða þá stofnun sem hann veitir forstöðu. Ráðuneytisstjóri í heilbr.- og trmrn. er andvígur flutningi Hollustuverndar og Geislavarna ríkisins undir umhverfisráðuneyti. Landlæknir er sömu skoðunar og einnig ráðuneytisstjóri
heilbr.- og trmrn. Skógræktarstjóri segir áætlunina aðskilja þætti sem ekki verði sundur skildir og lýsir andstöðu sinni við flutning Skógræktar ríkisins. Því má bæta við að Skógræktarfélag Íslands, sem er samtök félaga á vegum einkaaðila, aðila sem með áhugastarfi hafa sinnt skógræktarmálum hér á landi af mikilli alúð í nær 60 ár, er einnig andvígt frv. Landgræðslustjóri segir gróðurvernd óaðskiljanlegan hluta landgræðslu og lýsir andstöðu sinni við að flytja þætti af starfsemi þeirrar stofnunar undir umhverfisráðuneyti. Og ráðuneytisstjóri landbrn. er, svo sem hér hefur margoft komið fram, mjög andvígur frv.
    Hv. 5. þm. Vesturl. hefur ítrekað spurt tóman stól hæstv. landbrh. hvort hann sé ekki þeirrar skoðunar sem fram kemur í umsögn landbrn. og ritað er undir af æðstu starfsmönnum þess ráðuneytis. Hinn tómi stóll hæstv. landbrh. hefur ekki svarað, en ég segi fyrir mína parta: Ég tel að ekki geti leikið neinn vafi á því að þegar æðstu starfsmenn eins ráðuneytis svara með afdráttarlausum hætti sé það einnig skoðun ráðherrans.
    Ég var eitt sinn ráðherra í þessu ráðuneyti og ég segi alveg afdráttarlaust að aldrei hefði komið til mála að það ráðuneyti sendi frá sér umsögn sem væri í andstöðu við mig sem ráðherra. Og ég fullyrði að engum starfsmanni þess ráðuneytis á þeirri tíð hefði komið til hugar að senda frá sér ályktun um þýðingarmikið efni sem ekki var borin undir mig sem ráðherra, og hvort ég væri henni ekki samþykkur. Svo

kann að vera að með nýjum herrum komi nýir siðir og ef hinn auði stóll hæstv. landbrh. mætti svara hér í þessum sal yrðu svör hans eitthvað með öðrum hætti en mín, kannski loðin eða hvarflandi eins og stundum vill henda frá hæstv. ráðherrum núv. hæstv. ríkisstjórnar. Hins vegar kæmi mér sannarlega á óvart ef sá hæstv. ráðherra, sem hér á að sitja í hinum auða stól landbrh., treysti sér til að lýsa því yfir að hann hefði aðra skoðun en þá sem fram kemur í umsögn æðstu starfsmanna hans ráðuneytis, að yfirlýsingar þess ráðuneytis færu í bága við vilja ráðherrans. Það getur hreint ekki borið sig, það væri óhugsandi. Það væri þá eitthvað skrýtin yfirstjórn á því heimili.
    Þessi aðalatriði hafa komið fram í þessari umræðu og vegna þess hvað hún hefur dregist á langinn þykir mér rétt að draga nokkurn hluta af þeim umsögnum sem fram hafa komið hér fram í svo stuttu máli sem ég hef gert. Það er nærri sama hvar gripið er niður í þessu máli, menn reka sig á vegg andstöðunnar, andstöðu við frv., andstöðu við þær fyrirætlanir sem hér eru á ferðinni. Sá veggur andstöðunnar er ekki mjög á veikum fótum. Hann birtist í þeim fjölda umsagna sem hér hefur verið vitnað til og sumpart hafa verið raktar allítarlega af hv. 5. þm. Vesturl.
    Nú er það svo að þeir sem gefið hafa þessar umsagnir eru ekki neinir ómerkingar. Þeir sem gefið hafa umsagnir um frv. hafa lagt mikla vinnu í sitt viðfangsefni. Þeir hafa ýmsir hverjir skrifað ítarlegar umsagnir, umsagnir sem krefjast þess að í þær hafi verið lögð vinna og alúð. Og það eru þessir menn tilbúnir að gera vegna þess að þarna eru yfirleitt menn á ferðinni sem gerst þekkja til þeirra málasviða sem um er verið að fjalla. Þetta eru menn sem hafa haft forustu fyrir starfi að gróðurverndarmálum, landgræðslumálum, skógræktarmálum, málum á vegum heilbrigðiseftirlits, hollustuverndar, svo að dæmi séu tekin, ég tala nú ekki um veðurstofustjóra og Veðurstofu sem enginn skilur nú hvers vegna ætti að fara undir umhverfisráðuneyti. Þar eru einnig menn sem hafa haft yfirumsjón með mengunarvörnum í sjó og á ýmsum sviðum þeim sem ætlast er til samkvæmt þessu frv. að falli undir hið nýja umhverfisráðuneyti og hæstv. umhvrh. og þá eru þeir sem gerst þekkja til mála algerlega andvígir frv. Ég endurtek það að þetta eru þeir sem hafa margir hverjir áratuga starfsferil að baki, áratuga starfsferil í vinnu að þessum þýðingarmiklu málum. Þeir vita hvar skórinn kreppir. Þeir vita hvernig best er að halda á málum til að árangur verði af starfi. Þeir vita að það þarf að hafa samstarf við hagsmunaaðila. Þeir hafa þurft að rækja þetta samstarf. Þeir hafa þurft að tala á milli manna. Þeir hafa þurft að beita áróðri. Og þeir hafa þurft að leggja fram krafta sína til þess að árangur verði. Þeir kunna tökin á þessu verki. En þeir vita að sé raskað samstarfi og yfirstjórn þeirra sem fara með hagræna hluti þessara mála, svo sem eins og á vegum landbúnaðarins og þeirra sem eiga síðan að sinna eftirlits-, uppgræðslu- og verndunarstarfi, er leiðin opin til árekstra og vandræða. Þá er verið að fara í slóð sem er villugjörn og hætt er við að leiði út í

ógöngur vegna árekstra. Þetta vita þessir menn og þeir byggja sínar umsagnir á mikilli þekkingu, mikilli reynslu og langvarandi starfi.
    Í ljósi þessa er það sérkennilegt þegar pólitískir aðilar, hæstv. forsrh. og hv. 3. þm. Austurl. Jón Kristjánsson, mæla með því að þetta frv. verði samþykkt. Hæstv. umhvrh. hreiðrar um sig í því skjólinu að hann sé bara að hugsa um það hvað hann fái í sinn hlut og lítur lítið til annarra átta. Látum svo vera. Við skulum leyfa honum að baða sig í því ljósinu og ég geri engar sérstakar athugasemdir við það. En hæstv. forsrh., sem flytur frv. og sést ekki hér og hirðir ekki um að vera við þessa umræðu, telur sig þess umkominn og þeir piltungar sem sett hafa þetta frv. á blað, sem ég gerði nokkuð að
umtalsefni við 1. umr., telja sig þess umkomna að segja fyrir um þessi mál með meiri þekkingu og meiri visku en þeir sem sjálfir hafa starfað að þessum málum, margir hverjir um áratuga skeið. Þetta er með ólíkindum. ( Forseti: Vegna þeirra óska sem fram hafa komið frá hv. 5. þm. Vesturl. og hv. ræðumanni sem hér stendur hefur forseti gert ráðstafanir til þess að forvitnast um ferðir hæstv. forsrh. Hann er á mjög áríðandi fundi þessa stundina uppi í Ráðherrabústað en hefur lofast til þess að reyna að vera hér um kl. 5 og þá er forseti tilbúinn að reyna að veita öðrum hvorum hv. þm. orðið þannig að þeir geti komið spurningum á framfæri við hæstv. forsrh. Hæstv. landbrh. er kominn í salinn þannig að nú er tími til að beina spurningum til hans eins og fram hefur komið hjá hv. 5. þm. Vesturl. Forseti verður hins vegar að taka það fram út af ummælum um hæstv. forsrh. að hann hefur setið glettilegar slímusetur undir þessari umræðu sem nú er orðin 27 klukkustunda löng.)
    Ég þakka hæstv. forseta þessar upplýsingar. Ég tek það hins vegar fram, vegna þess að mér er ekkert um það gefið að lengja þessa umræðu að óþörfu, að mér er ekkert ljúft að fara að endurtaka einhverja kafla ræðu minnar á þeim tíma sem hæstv. forsrh. kann að þóknast að vera í salnum. Og þess vegna er það mál allt mjög óhönduglegt og það er alveg ljóst að ef hæstv. forsrh. og hæstv. landbrh., sem hv. 5. þm. Vesturl. hefur spurt spurninga, treysta sér ekki til að vera hér viðstaddir á eðlilegum þingfundartíma, svo sem nú er, hlýtur það auðvitað að leiða til þess að umræðan lengist að óþörfu, mér t.d. til stórrar skapraunar því að mér er ekkert um það gefið að þurfa að fara að endurtaka það og tyggja það upp aftur einhvern tíma seinna í annarri ræðu eða seinna í ræðunni sem ég er áður búinn að segja. Við erum hér auðvitað ekki til þess heldur eru menn hér til þess að sinna sínum þingskyldum.
    Ég held að ég haldi nú áfram ræðu minni þó að hæstv. forsrh. sé ekki væntanlegur fyrr en kl. 5. Það má þó kannski segja það, sem ég ætla alls ekki að endurtaka með jafnskýrum og afdráttarlausum og ítarlegum hætti og ég gerði út af spurningum hv. þm. Inga Björns Albertssonar um afstöðu hæstv. landbrh., sem ég talaði áðan um, við tóman stól hans, hv. 5. þm. Vesturl. kemur auðvitað sínum spurningum á

framfæri á eigin spýtur, að ég lýsi því sem afdráttarlaust minni skoðun að þegar æðstu starfsmenn eins fagráðuneytis, í þessu tilliti landbrn., láta frá sér fara umsagnir um þýðingarmikil mál hlýtur þar að koma fram einnig skoðun hæstv. ráðherra. Og það eru þá breyttir siðir í því ráðuneyti frá því að ég var þar ráðherra fyrir allmörgum árum ef þeir stjórnarhættir eru ekki viðhafðir á því heimili. Það hefur þá eitthvað ruglast þar með yfirstjórnina síðan á þeim tíma. En nóg um þetta. Ég hyggst halda áfram ræðu minni hvað sem þessu líður eins og ekki hafi í skorist.
    Ég vil segja það út af afstöðu Sjálfstfl., sem ég hef drepið á í aðaldráttum og fram kemur í nál. og brtt. frá hv. minni hl. allshn. og um leið er afstaða Frjálslynda hægriflokksins, að þessi afstaða byggist vitaskuld á grundvallaratriðum. Þessi afstaða er ekki mótuð eitthvað út í loftið, eitthvað út í bláinn. Þessi afstaða byggist á grundvallaratriðum. Þessi grundvallaratriði eru m.a. þau að ástæðulaust sé og til hins verra að stofna ráðuneyti um þessi verkefni. Það er á hinn bóginn afstaða Sjálfstfl., sem fram hefur komið í frv. hér í þessari hv. deild, að samræma beri yfirstjórn umhverfismála í einni stjórnarráðsdeild og við höfum lagt til að henni verði valinn staður í samgrn. Þessi er í megindráttum afstaða Sjálfstfl. og við höfum rökstutt hana rækilega sem ég þarf ekki að endurtaka hér. Hins vegar er rétt að vekja á því athygli eigi að síður að í ýmsum þeirra umsagna sem fram hafa komið frá þeim stofnunum sem hér eiga hlut að máli og búa yfir allri þeirri reynslu sem ég hef hér lítillega greint frá kemur fram augljós stuðningur við þessa leið Sjálfstfl.
    Ég er ekkert að undrast það vegna þess að afstaða okkar byggist á fleiri grundvallaratriðum, m.a. þeim að nauðsynlegt sé að yfirstjórn í umhverfismálum, í einstökum þáttum umhverfismála, sé með þeim hætti að saman fari yfirstjórn á nýtingu, gæslu og varnaraðgerðum náttúruauðlinda. Þetta er grundvallaratriði í þessu máli en ekki, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir, að kljúfa í sundur, annars vegar komi nýting náttúruauðlinda og svo hins vegar gæsla, eftirlit og varnaraðgerðir. Ef þetta er klofið í sundur leiðir það til þess að verið er að vinna skemmdarverk, það er verið að skilja að hluti sem ekki má sundur skilja, eins og skógræktarstjóri orðaði það réttilega. Og ef þetta er gert verður reynslan hin sama og hefur orðið á Norðurlöndunum, að umhverfisráðuneyti hafa orðið gífurlega fjölmenn bákn, hlaðið upp starfsliði, 3000 manns í Danmörku, á þriðja þúsund manns í Noregi, og þrátt fyrir það hefur árangurinn orðið ómarkviss, árekstrar hafa orðið við hagsmunaaðila og fagráðuneytin hafa starfað að þessum málum með öðrum hætti og án tillits til umhverfisráðuneytisins. Í vaxandi mæli hafa einstök fagráðuneyti, til að mynda landbúnaðarráðuneytið danska, nú nýverið sett á laggir að nýju sérstaka deild til þess að fást við umhverfismál. Þetta eru einnig þau grundvallaratriði sem fram koma til að mynda í hinni margnefndu Brundtland-skýrslu og þetta er einnig það grundvallaratriði sem fram kemur í áliti hins nýja

foringja
vestur-þýskra jafnaðarmanna, Oskars Lafontaine, sem kann að verða, að manni skilst eftir því sem fréttir herma, kanslaraefni þess flokks næst þegar kosið verður í Vestur-Þýskalandi. Grundvallaratriðin í afstöðu Sjálfstfl. eru því ekki einungis í samræmi við það sem þeir sem gerst þekkja til hér heima á Íslandi telja eðlilegt, heldur eru þau einnig í samræmi við alþjóðlega stefnu í þessum málum. Þessi stefna okkar sjálfstæðismanna er því ekki mótuð eitthvað út í bláinn, en hún er gjörsamlega í andstöðu við frv. sem hér er á ferðinni.
    Ég held að naumast þurfi að ræða, þó að rétt sé að fara um það örfáum orðum, að afstaða okkar þýðir vitaskuld ekki það að við viljum draga eitthvað úr því sem gera á í náttúruvernd og umhverfismálum. Við leggjum ríka áherslu á það að þeim málaflokki sé sinnt í auknum mæli. Við leggjum mikla áherslu á það að efla og vernda náttúruauðlindir og að náttúran og hið almenna umhverfi mannsins, hvar sem er í þjóðfélaginu, verði verndað svo sem kostur er. Við leggjum afar þunga áherslu á varnir gegn mengun í víðum skilningi þess orðs því að mengun er víða hvar til staðar. Og við leggjum mikla áherslu á það að umhverfi sé ekki spillt nema sem allra minnst. Auðvitað hljótum við alltaf að breyta umhverfinu eitthvað, en það á ekki gera það að óþörfu og það á að forðast að gera það nema sem allra minnst.
    Við leggjum sem sagt mikla áherslu á þennan málaflokk og ég tek þetta aðeins fram til þess að forðast að verða núið því um nasir að ég hafi engan áhuga á þessum málum og að Sjálfstfl. hafi ekki áhuga á þessum málum. Það hefur auðvitað margkomið fram og ég tel ekki þörf á að eyða að því fleiri orðum.
    Nú hefði ég kosið að fara örfáum orðum um ræðu hv. frsm. meiri hl. allshn. og undrast það að hann skuli ekki vera hér í salnum. Ég beini því til hæstv. forseta að ég kann ekki við að tala við þennan hv. þm., sem hér er í forsvari fyrir stjórnarmeirihlutann og fyrir þessu máli, án þess að hann sé viðstaddur. Hér kemur hv. 3. þm. Austurl. í salinn, en ég taldi ófært að halda áfram ræðu minni án þess að hann væri hér viðstaddur vegna þess að ég ætlaði að víkja örfáum orðum að ræðu hans þegar hann mælti fyrir nál. meiri hl.
    Ég hlustaði mjög grannt á þessa ræðu og ég hefði fyrir löngu getað aflað mér hennar því að auðvitað er búið að prenta hana, það er það langt síðan hún var flutt, en ég hef ekki hirt um það vegna þess að ég tók niður nokkra punkta úr þessari ræðu frsm. Og ég verð að segja það að ræðan varð mér undrunarefni.
    Í fyrsta lagi var algjörlega ófullnægjandi grein gerð fyrir þessu máli af hans hálfu, gjörsamlega ófullnægjandi. Hann las þó upp frá hvaða aðilum hefðu borist umsagnir og þeir voru 52 talsins. Hann las einnig upp hverjir hefðu komið til viðræðna við hv. allshn. og þeir voru 26 talsins. Það voru sem sé nálega 80 aðilar sem ýmist höfðu sent umsagnir um þetta mál eða komið til viðræðna við hv. allshn., og

þetta las hv. 3. þm. Austurl., frsm. allshn., skilmerkilega upp. Undan því skal ekki kvartað. Hins vegar kom ekkert einasta orð um það í hans máli hversu margir af þessum nálega 80 aðilum vildu styðja frv. eða mæla með því og hversu margir væru á móti því. Það forðaðist þessi hv. þm., frsm. meiri hl. allshn., alveg eins og heitan eldinn að nefna. Hins vegar hefur komið í ljós síðar, vegna hins ítarlega málflutnings hv. 5. þm. Vesturl., að flestir þessara aðila eru andvígir frv., hafa við það sterkar athugasemdir eða álit þeirra felur í sér beina andstöðu.
    Þetta gengur svo langt að mér verður á að spyrja hv. 3. þm. Austurl.: Hversu margir eru það eiginlega sem vilja mæla með þessu máli af þeim 78 aðilum sem ýmist sendu umsögn eða komu til viðræðna við hv. allshn.? Ég tek eftir því að á meðal þeirra sem senda umsögn er einn hv. alþm., sá hv. alþm. sem nú situr í forsetastól, hæstv. forseti Hjörleifur Guttormsson. Ég gæti vel trúað að við, ýmsir aðrir alþingismenn, hefðum einnig getað sent umsögn ef til okkar hefði verið leitað eða okkur verið gefið færi á því.
    Ég geri auðvitað ráð fyrir, þó að ég hafi ekki skoðað umsögn hæstv. forseta, að hann hafi mælt með frv., en mér dettur í hug að kannski séu ekki öllu fleiri aðilar með þessu máli eða hafi sent umsagnir sem styðja þetta mál en þessi hv. þm. og e.t.v. samtök eins og Líf og land, einhver slík samtök. E.t.v. eru það einhverjir fleiri. En miðað við það sem hér hefur verið lesið upp af hv. þm. Inga Birni Albertssyni eru ótrúlega fáir aðilar sem mæla með þessu máli.
    Ég tel það vanrækslu að yfirlögðu ráði af hálfu hv. 3. þm. Austurl. að geta ekki um það, þegar hann mælir fyrir þessu máli, hverjir það eru sem mæla með því að frv. verði samþykkt óbreytt, hverjir það eru sem geri athugasemdir og vilji breytingar og hverjir lýsa andstöðu við málið. Það var rétt eins og þessi hv. þm., sem er frsm. meiri hl. nefndarinnar, vildi dylja þingheim hver niðurstaðan var í öllum þessum umsögnum.
    Hv. þm. Jón Kristjánsson sagði að ágreiningur væri um málið í þjóðfélaginu, hann sagði þó það, en þetta þótti mér vægt til orða tekið. Það er vitað að a.m.k. á stórum landsvæðum er þorri fólks algerlega andvígur þessu máli. Og ég hefði leyft mér að segja að óathuguðu máli að meiri hluti þjóðarinnar væri gjörsamlega andvígur þessu máli og þessum máltilbúnaði öllum. Ekki fyrir það að meiri hluti þjóðarinnar sé gegn því að eitthvað sé unnið í umhverfismálum
eða náttúruvernd, það er síður en svo. Sá málaflokkur á mikinn hljómgrunn meðal þjóðarinnar. Ég leyfi mér hins vegar að taka svo sterkt til orða að ég sé
sannfærður um að verulegur meiri hluti þjóðarinnar, jafnvel þorri þjóðarinnar, sé andvígur þessu máli og þessum málatilbúnaði öllum. Og víst er að það er þorri þeirra sem þekkingu hafa á þeim málaflokkum sem hér er verið að fjalla um.
    Hv. þm. sagði að búnaðarþing hefði að vísu gert athugasemdir. Það var einnig vægt til orða tekið. Og

ég hygg að þeir fulltrúar búnaðarþings sem komu á fund nefndarinnar hafi ekkert legið á því að þeir væru andvígir þessu máli, enda liggur hér fyrir umsögn búnaðarþings, samþykkt búnaðarþings ásamt greinargerð þar sem fram kemur að það er auðvitað alger andstaða við þetta mál og segir að það sé gjörsamlega ósættanlegt ef frv. gengur fram með þeim hætti sem gert er ráð fyrir. Þetta kallaði nú hv. 3. þm. Austurl. að búnaðarþing hefði gert athugasemdir.
    Hv. þm. Jón Kristjánsson greindi frá því að brtt. sem meiri hl. flytur á þskj. 709 séu sáttaleið í þessu máli og þá væri nú allt fallið í ljúfa löð og engin vandamál lengur. Hv. meiri hl. allshn. hafi fundið sáttaleið og hún birtist í þeim brtt. sem hér eru á þskj. 709. Ég vil gjarnan lýsa því hér yfir að ég tel þessar breytingar einskis virði. Þær eru ekki sáttaleið í mínum augum. Og þær breyta í rauninni engu efnislega. Samkvæmt brtt. meiri hl. allshn. á 4. mgr. 1. gr. að orðast svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Umhverfisráðherra getur, að fengnum tillögum Náttúruverndarráðs og í samráði við landbúnaðarráðherra, ákveðið friðunar- og uppgræðsluaðgerðir á sviði gróður- og skógverndar skv. 5. og 6. mgr.``
    Það liggur fyrir eftir sem áður að valdið er hjá hæstv. umhvrh. Hann getur ákveðið þær aðgerðir sem honum þóknast. Að vísu segir: ,,að fengnum tillögum Náttúruverndarráðs``. Náttúruverndarráð getur sent allra handa tillögur og hæstv. umhvrh. getur notað þær í sínum ákvörðunum og hann getur líka haft þær að engu, alveg eftir því sem honum þóknast. Hann skal, áður en hann tekur sjálfur ákvörðun, fá slíkar tillögur. Það er ekkert um það að hann skuli fara eftir þeim. Hann getur haft þær að engu eins og honum þóknast. Svo segir: ,,í samráði við landbúnaðarráðherra``. Samráðið við landbrh. getur verið með þeim hætti að hæstv. umhvrh. getur ráðgast við hæstv. landbrh. og haft við hann samráð. Síðan tekur hæstv. umhvrh. sínar ákvarðanir eins og honum þóknast. Við höfum nóg dæmi um það hvernig slíkt samráð er framkvæmt af handhöfum framkvæmdarvaldsins í ýmsum greinum. Og þrátt fyrir það að ákvæði sé um að samráð skuli viðhaft er eigi að síður ákvörðunin umhvrh. og hann tekur sínar ákvarðanir alveg eins og honum þóknast. Og ef það væri komið svo, ef þeir stjórnarhættir væru teknir upp, sem ég trúi nú illa, og hér er hæstv. landbrh. í hliðarsal, að æðstu starfsmenn landbrn. sendi umsagnir um mál sem hæstv. landbrh. sé ekki sammála, þá getur einhver landbúnaðarráðherra í framtíðinni mótað eitthvert samráð við hæstv. umhvrh. sem getur farið algerlega í bága við vilja starfsmanna landbrn., þeirra sem þekkinguna hafa og reynsluna. Þessi brtt. sem hv. 3. þm. Austurl. kallaði sáttaleið er því einskis virði og ekki til neins gerð annars en að leitast við að slá ryki í augun á einhverjum auðtrúa sálum. Sá einn er tilgangurinn og ekki annar.
    Hv. frsm. meiri hl. sagði ekki eitt einasta orð um þann kostnað sem af samþykkt frv. mundi hljótast. Þrátt fyrir það að eftir því hafi verið gengið við 1. umr. að hér liggi fyrir, svo sem lög kveða á um og

skylt er samkvæmt lögum nr. 13 frá 1979, svokölluðum Ólafslögum, greinargerð um kostnað sem fylgi stjfrv. hefur ekki eitt einasta orð komið fram um líklegan kostnað sem fylgi þessum breytingum.
    Ég gerði þennan þátt mála nokkuð að umtalsefni þegar ég hóf ræðu mína hér fyrir allmörgum dögum og skal ekki fara langt út í þá sálma. Hér hefur hvað eftir annað verið vitnað til reynslunnar af þeim umhverfisráðuneytum sem stofnuð voru í ýmsum nágrannalöndum um 1970 og sú reynsla er hrikaleg. Þar eru sannarlega víti til að varast. En það er líka hægt að skoða þessi mál á þrengra sviði. Það kostar ekki lítið að flytja stofnanir á milli ráðuneyta. Og það kostar ekki lítið að flytja starfsmenn og tiltekin verksvið frá einu ráðuneyti til annars. Sú var til að mynda reynslan þegar svokölluð utanríkisviðskipti voru færð úr viðskrn. yfir í utanrrn. Það hafði í för með sér verulegan kostnað þrátt fyrir að þar væri um tiltölulega afmarkað verksvið að ræða, verksvið sem sinnt var af tiltölulega fáum starfsmönnum. Eigi að síður hafði það í för með sér mikinn kostnað.
    Ef allar þær breytingar á stjórnkerfinu sem eru í þessu frv. ættu fram að ganga og allar þær stofnanir og öll þau verksvið ýmissa annarra ráðuneyta sem hér eru upptalin í frv. ættu að færast yfir til umhverfisráðuneytis mundi það hafa í för með sér gífurlegan kostnað. Það mundi verða talsvert að gera fyrir iðnaðarmenn og smiði og þá sem þurfa að laga til í skrifstofum hins nýja umhverfisráðuneytis. Það er alveg víst. Og ég leyfi mér enn, sem ég gerði nú við eitthvert annað tækifæri, að minna á að það hefur kostað nokkuð mikið að
færa t.d. aðalskrifstofur einstakra ráðuneyta á milli húsa. Jafnvel innan sama húss. Það kostaði t.d. býsna mikið að færa aðalskrifstofu sjútvrn. frá Lindargötu og niður í Fiskifélagshúsið við Skúlagötu. Fjárfestingarkostnaður við að flytja skrifstofu hæstv. sjútvrh. og 14 eða 15 starfsmanna hans af Lindargötu niður á Skúlagötu nam 36 millj. kr. fyrir tveimur árum síðan, 36 millj. kr. að flytja eina skrifstofu á milli húsa og var þó skrifstofuhúsnæði fyrir þar sem hæstv. sjútvrh. og hans menn fóru inn. Hv. 3. þm. Austurl. hirðir ekki um það sem er lagaskylda að gera grein fyrir hvaða kostnaður er áætlaður við það að flytja allar þær stofnanir, öll þau verksvið, allar þær skrifstofur sem frv. gerir ráð fyrir. Ekki eitt orð um það. Var það furða þó að ég undraðist ræðu hans? Er það furða þó að ég vilji gjarnan að hann sé hér viðstaddur?
    Núv. hæstv. ríkisstjórn telur sjálfsagt litlu máli skipta þótt kostnaður aukist við framkvæmd stjórnsýslunnar ef það þjónar tilteknum pólitískum markmiðum. Það hefur komið í ljós á mörgum sviðum nú hin síðustu missiri. Þessi þáttur er ekki lítilvægur í öllum þessum málatilbúnaði og sýnir að þar þarf að gaumgæfa betur og þar þarf að knýja fram áætlanir, svo sem lagaskylda er, til þess að sýna hvaða gjald á að greiða fyrir það að koma þessu máli fram. Sú gjaldtaka verður síðan send með reikningi til þjóðarinnar, en hún verður vafalaust í tíð þessarar

ríkisstjórnar sett upp sem skuld sem síðar á að afla fjár til þess að greiða.
    Hv. 3. þm. Austurl. sagði síðan í eins konar afsökunartón að með frv. og með því að mæla með samþykkt þess með þeim örlitlu breytingum sem hann mælti fyrir væri tekið mið af ,,samþykktum stjórnarflokkanna frá því í haust``. Þar kom það. Þarna var orsökin fundin. Af því að stjórnarflokkarnir höfðu gert samþykkt í haust um þetta efni í þessa átt taldi hv. 3. þm. Austurl. sér skylt að mæla með því að frv. gengi fram með þessum hætti. Og þá gilti einu þó að þorri þeirra nálega 80 aðila sem ýmist höfðu sent hv. allshn. umsögn eða komið á hennar fund hefðu ýmist verið andvígir frv. eða lagst gegn því í ýmsum greinum. Þá gilti það einu. Þá gilti það einu þó að forustumenn þeirra stofnana sem unnið hafa að þessu verksviði í fjöldamörg ár, hafa reynslu og þekkingu að baki sem best hefur dugað, væru á móti, það skipti engu máli. Af því að samþykkt hafði verið gerð í stjórnarflokkunum í haust var sjálfsagt að málið gengi fram. Þarna kom það.
    Hv. 3. þm. Austurl. er vaskur maður þegar hann er í essinu sínu og hefur verið valinn til æðstu metorða hér í þessari hv. deild, sem forseti þessarar hv. deildar. Það var hins vegar beygður maður, lágmæltur og ódjarflegur sem mælti fyrir áliti meiri hl. allshn. hér fyrir nokkrum dögum, sem beygði sig undir það að mæla með máli af því að gerð hafði verið samþykkt í stjórnarflokkunum gegn vilja þorra þeirra sem gefið hafa umsögn, þorra þeirra sem komið höfðu til viðræðu, þorra þeirra sem sinnt hafa umhverfismálum, ræktunarmálum, gróðurverndar- og skógræktarmálum af mikilli alúð og áhuga á undanförnum árum, sumir um áratugi.
    Ég hlýt að undrast það að hv. þingmenn Framsfl. og ýmsir aðrir hv. þm. stjórnarliðsins skuli leyfa sér að mæla með því að þetta gangi fram með þessum hætti. Áður var það tíðkað á stundum að láta menn ganga undir jarðarmen. --- Ég vildi gjarnan að hv. 3. þm. Austurl. væri í þingsalnum. --- Jarðarmen var með þeim hætti að rist var alllöng torfa og hún var föst í báða enda en teygð upp í miðjunni. Ef menn gengu undir jarðarmen gengu þeir undir þessa torfu, beygðu sig og gengu undir torfuna. Það var að ganga undir jarðarmen. Ævinlega þótti það svívirðing og var gerð til þess að auðmýkja menn og stundum voru þau orð látin falla í leiðinni að þar hefðu hlutaðeigandi verið svínbeygðir. Þetta hlýtur hv. 3. þm. Austurl. að kunna því hann er án efa vel að sér í sögu lands okkar og þjóðar.
    En ég tel það með ólíkindum að hv. þm. Framsfl. skuli nú hafa látið sig hafa það að ganga undir það jarðarmen að mæla með því að þetta frv. verði samþykkt. Fremstur gengur vissulega hæstv. forsrh. sem er flm. málsins. Þeir ganga undir þetta jarðarmen til þess að þjóna pólitískum hagsmunum eða eins og sagt var í einni af umsögnunum um þetta mál, ef ég man rétt, að það væri verið að koma þessu fram vegna skammtímahagsmuna í stjórnmálum. Þeir ganga sem sé undir það jarðarmen að leggja til að flytja

allar þær stofnanir og þau verksvið sem talin eru upp í frv. yfir til umhverfisráðuneytis, stofna umhverfisráðuneyti sem er óþarft og í andstöðu við grundvallaratriði í þessum málum sem viðurkennd eru á alþjóðavettvangi, til þess að bæta við í ríkisstjórnina hæstv. umhvrh. og hæstv. dómsmrh. og þeim þingmönnum sem þá kölluðu sig Borgaraflokkinn. Að því lutu þær samþykktir sem gerðar voru í stjórnarflokkunum í haust og hv. 3. þm. Austurl. sagði að væri hin raunverulega orsök til þess að hann mælti með að frv. yrði samþykkt.
    Ég held að það sé ekki að furða þó að hv. 3. þm. Austurl. væri lágmæltur og ódjarflegur eftir að hafa gengið undir þetta jarðarmen og í leiðinni gengið gegn hagsmunum flestra þeirra sem til þessa hafa, margir hverjir,
talið Framsfl. vera sinn málsvara. Þeirra á meðal eru allar stofnanir
landbúnaðarins, að heita má, hverju nafni sem nefnast. Þetta kaupir Framsfl. Þetta er það jarðarmen sem hann gengur undir til þess að kaupa það sem kallaðist Borgaraflokkur í haust. Stórmannlegt er það ekki enda þótti aldrei stórmannlegt eða til virðingar að ganga undir jarðarmen.
    Ég þyrfti í rauninni ekki að telja þessar stofnanir landbúnaðarins upp en þær eru þó hér á blaði í upptalningu í nál. hv. meiri hl. á þskj. 708. Ég held ég muni þessar stofnanir og kannski er rétt að rifja þær upp fyrir hv. 3. þm. Austurl. Það er t.d. Búnaðarfélag Íslands, það er búnaðarþing, það er Bændaskólinn á Hólum, það er Bændaskólinn á Hvanneyri, það er Dýralæknafélag Íslands, það er landbrn., það er Landgræðsla ríkisins, það er Rannsóknastofnun landbúnaðarins, það er Skógrækt ríkisins, Skógræktarfélag Íslands, það er Stéttarsamband bænda og það er yfirdýralæknirinn. Sjálfsagt eru einhverjir ótaldir. En gegn vilja allra þessara aðila gengur nú Framsfl. í þessum málaflokki. Hann gengur undir það jarðarmen að ganga gegn hagsmunum allra þessara aðila til þess að kaupa svokallaðan Borgaraflokk inn í ríkisstjórnina. Þetta er kjarni málsins, hv. 3. þm. Austurl. Var að furða þótt hv. þm. væri ódjarflegur þegar hann sagði undir lok sinnar ræðu: ,,Það voru gerðar samþykktir í stjórnarflokkunum í haust.``
    Ég sagði hér að gerð hefðu verið kaup. En ég er ekki einn um það. Ég er ekki einn um þessa skoðun. Það eru fleiri sem hafa þessa skoðun. Og svo vill til að í dagblaðinu Tímanum 3. apríl, í dag, birtist stjórnmálaályktun sjötta stjórnarfundar Sambands ungra framsóknarmanna laugardaginn 17. mars 1990. Og hvað skyldu þeir nú segja, þessir ungu framsóknarmenn? Eða skyldu þeir ekki vera að lýsa yfir mikilli aðdáun á framgöngu sinna foringja hér á hinu háa Alþingi?
    Í þessari ályktun segir á hinn bóginn svo, með leyfi hæstv. forseta: ,,Sá pólitíski hrossakaupaþefur sem af stofnun umhverfisráðuneytis leggur gerir það mál þó ekki jafnánægjulegt og ella hefði orðið. SUF hvetur hér eftir sem hingað til alla stjórnmálamenn að

láta ekki eftirsókn eftir völdum og valdastólum hlaupa með sig í gönur.``
    Hv. 3. þm. Austurl. er, eins og ég sagði, þegar hann er í essinu sínu og eins og hann á að sér að vera, ekki einungis vasklegur maður heldur einnig gætinn og hinn mesti sómamaður í eðli sínu þó hann ráði sér ekki fyrir einhverjum samþykktum sem gerðar hafa verið í stjórnarflokkunum. Mér þykir hins vegar nokkuð færast skörin upp í bekkinn þegar ungir framsóknarmenn þurfa að fara að ávíta hann og aðra foringja sína og segja: ,,SUF hvetur hér eftir sem hingað til alla stjórnmálamenn til að láta ekki eftirsókn eftir völdum og valdastólum hlaupa með sig í gönur.``
    Undir venjulegum kringumstæðum hefði ég haldið að þetta væri eitthvert grín, að einhverjir stráklingar í framsókn væru að segja það við hv. 3. þm. Austurl. að hann mætti ekki láta sókn eftir völdum hlaupa með sig í gönur. En þetta er nú það sem fyrir liggur, og það er bragð að þá barnið finnur. Jafnvel í hópi þessara manna, ungra framsóknarmanna, er svo komið að þeim blöskrar og þeir senda frá sér ályktun sem felur í sér þær sterku ávítur á foringja sína í Framsfl. sem hér hefur verið vitnað til.
    Aðeins einn hv. þm. Framsfl., sem vitað er um enn, kiknaði í hnjáliðunum þegar hann gekk undir jarðarmenið. Þetta var hv. 5. þm. Suðurl. Guðni Ágústsson. Honum varð um og ó. Hann lýsti því sem sé yfir hér úr ræðustól að hann treysti sér ekki til að styðja frv. í heild sinni og hann lýsti yfir stuðningi við tvær af tillögum minni hl. hv. allshn. Hann lýsti því að sér leiddist það, eins og hann orðaði það, að geta ekki að fullu fylgt hæstv. ríkisstjórn. En þegar til kastanna kom þá kiknaði hann í hnjáliðunum þótt breiður væri um herðarnar. Hann hefði verið maður að meiri að neita að ganga undir jarðarmenið og standa að áliti með fulltrúum Sjálfstfl. og Frjálslynda hægriflokksins í allshn. Hann treysti sér þó ekki til þess, heldur bognaði hann eins og hinir og gekk undir jarðarmenið en fékk ekki rétt sig upp að fullu þegar undan torfunni var komið og lýsti því yfir að hann hygðist styðja tvær af tillögum minni hl.
    Ég hlýt að segja það hér að ég undrast það hvernig Framsfl. hefur látið beygja sig í þessu máli.
    Hæstv. forsrh., sem ég hafði mjög óskað eftir að væri viðstaddur þessa ræðu mína, greip fram í fyrir mér ítrekað við 1. umr., þegar ég var að lýsa andstöðu ýmissa aðila í þjóðfélaginu við þennan málatilbúnað, og sagði að allir þeir sem væru á móti væru bara íhaldsmenn. Ég skal ekki fara að skilgreina það neitt nánar hverjir eru íhaldsmenn og hverjir ekki, en ef hæstv. forsrh. hefur átt við að þeir sem væru á móti þessum málatilbúnaði hæstv. ríkisstjórnar og stuðningsmanna hennar væru allir sjálfstæðismenn er það vel, ef þeir hafa skipað sér í þann flokk. Hitt er víst að ef kosið væri um þessi sjónarmið sem við erum hér að takast á um og kosið væri um það hvort menn vilja styðja hæstv. ríkisstjórn í því í fyrsta lagi að setja á laggir umhverfisráðuneyti að óþörfu og síðan að flytja þau verkefni, þær stofnanir og þau

verksvið sem frv. sem hér er á dagskrá mælir fyrir um yfir til
umhverfisráðuneytis, þá er víst að atkvæðum Sjálfstfl. mundi fjölga og fækka að sama skapi atkvæðum Framsfl. og væntanlega hinna stjórnarflokkanna líka.
    Mér þykir verra að hæstv. forsrh. sé ekki hér viðstaddur vegna þess að ég hef gert hér nokkra hríð að flokki hans, Framsfl., og það vegna þess að ég undrast svo stórkostlega að ofan í allar þessar umsagnir og gegn áliti allra þeirra aðila sem mæla á móti þessu máli og á móti þessum málatilbúnaði og flutningi verksviða yfir til nýs umhverfisráðuneytis ætlar Framsfl. að standa við greiðsluna, hin pólitísku hrossakaup sem ungir framsóknarmenn nefna svo. Þeir ætla ekki einungis að láta við sitja að hér fylli sali fnykurinn af hinum pólitísku hrossakaupum, eins og ungir framsóknarmenn orða það, heldur ætla þeir að standa við greiðsluna af hrossakaupunum til enda. Þetta hlýt ég að undrast stórkostlega vegna þess að þar eru þeir að fara gegn hagsmunum og skoðunum mikils þorra þeirra sem áður hafa talið þennan flokk sinn málsvara.
    Ég heyrði það í hinni yfirgripsmiklu ræðu hv. 5. þm. Vesturl. að hugleiðingar væru komnar í lið ríkisstjórnarinnar um að fresta afgreiðslu þessa máls, og það væri mér ekki undrunarefni. Ég tel hins vegar að það eina rétta sem hæstv. forsrh. geti nú gert sé að fresta afgreiðslu málsins og taka það til athugunar á víðari grundvelli til næsta þings. Þá á ég við það að fara að þessum málum á þann hátt sem er manna siður, að fulltrúar frá hinum pólitísku flokkum, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, beri saman bækur sínar og leggi saman sín ráð til þess að reyna að koma stjórnskipan landsins í betra horf en áður, en ekki að knýja fram vegna pólitískra hrossakaupa, vegna fnyksins sem fyllir þingsali, eins og hv. ungir framsóknarmenn létu liggja að í sinni ályktun, við það að kaupa svokallaðan Borgaraflokk til liðs við þessa ríkisstjórn, að ganga gegn hagsmunum þeirra aðila sem flestir hverjir hafa álitið að Framsfl. mætti telja meðal sinna málsvara.
    Það er svo aftur önnur saga að enginn veit hvað það sem kallað var Borgaraflokkur í haust er í dag. Ég segi: enginn veit hvað það er í dag vegna þess að þeir sem áður kölluðust þingmenn þessa flokks eru nú að stofna stjórnmálasamtök og sumir hverjir eru þannig í sveit settir að enginn veit í hvaða flokki þeir eru eða hvort þeir eru í mörgum flokkum. Og samtök sem liggja á bak við þennan Borgaraflokk sem var til í haust hafa ýmist verið að samþykkja að vilja reka forustumenn flokksins frá starfi ellegar að samþykkja að segja sig úr eða frá öllu starfi við þennan svokallaða Borgaraflokk. Það sem var Borgaraflokkur í haust er nú eitthvað sem er í algjörri upplausn. Og það er svo sem ekki einsdæmi um þá flokka sem nú styðja þessa hæstv. ríkisstjórn. Aðrir flokkar eru þar einnig með þeim hætti að enginn veit hvað upp snýr eða niður. Einn af stuðningsflokkum þessarar hæstv. ríkisstjórnar treystir sér ekki til að bjóða fram í eigin nafni hér í Reykjavík og í öðrum flokki þeirra sem

styðja þessa hæstv. ríkisstjórn er ástandið þannig að þar vegast fylkingar á og vilja bjóða fram sín í hverju lagi til sveitarstjórnarkosninga. Enginn veit þess vegna hvort Alþb. er í rauninni til eða hverjir eru í honum og hverjir ekki, eða hvort þar séu einnig sumir sem séu í fleiri en einum flokki. Allt er þetta lið því með þeim hætti að það ætti að vera umhugsunarefni fyrir forustuflokk þessarar hæstv. ríkisstjórnar, Framsfl., að ganga ekki of langt í því að gera hin pólitísku hrossakaupin við lið af þessu tagi.
    Ég skal ljúka máli mínu með því að beina því til þess framsóknarmanns sem hér er í forsvari, hv. 3. þm. Austurl., að þrátt fyrir það að hann hafi gengið undir jarðarmen og hans félagar við það að mæla með því að frv. verði samþykkt, og ég ætla ekki að hafa fleiri orð um það, allir vissu hvað það þýddi hér áður þegar gengið var undir jarðarmen, þá beiti hann sér fyrir því að þeir hv. þm. Framsfl. rétti nú höfuðið við eftir að hafa beygt sig undir torfuna og leggi það til að afgreiðslu þessa máls verði frestað og sett verði á laggir
nefnd allra stjórnmálaflokka á milli þinga til þess að fara ofan í stjórnarráðslögin, þar á meðal þessi verkefni, og reyna að vinna að þeim málum, eins og ég sagði, með mannlegum hætti eins og áður hefur tíðkast, að ekki sé verið að vinna að allra handa breytingum á lögum um Stjórnarráð Íslands til þess að þjóna einhverjum pólitískum duttlungum eða pólitískum hrossakaupum.
    Þetta skulu vera lokaorð mín, að skora á hv. 3. þm. Austurl. að rétta nú höfuðið við og koma hér fram í þessum ræðustól og gera þetta að tillögu sinni.