Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Hér erum við að ræða um málefni sem hæstv. ríkisstjórn virðist ráðin í að þvinga í gegnum þingið þótt ljóst sé að sú breyting sem frv. felur í sér er afar illa séð, bæði á þinginu, meðal þjóðarinnar og meðal þeirra sem hlut eiga að máli, þ.e. því máli að framkvæma verkefni hins opinbera á sviði umhverfismála.
Hv. 2. þm. Norðurl. v. hefur í glöggu máli gert grein fyrir því hvernig allar þær stofnanir sem mestu skipta á þessu sviði, á hvaða sviði umhverfismálanna sem er, eru andvígar þessari breytingu. Engu að síður ætlar hæstv. ríkisstjórn sér að þrýsta þessu máli í gegn til að hæstv. ráðherra, sá sem nú rétt áðan gekk út úr salnum, geti setið í sæti sínu, ekki með góðu en með illu, það virðist vera greinilegt og hvað sem líður þeim fnyk sem Samband ungra framsóknarmanna hefur ályktað um að sé af þessu máli. Oft er það svo að það getur verið ráðlegt fyrir hina eldri að fara eftir ábendingum hinna yngri. Æskufólkið bendir okkur oft á augljósar staðreyndir, hvað beri að varast og hvað sé fráleitt í því sem við kunnum að ætla okkur að gera. Svo er einmitt um þá ályktun ungra framsóknarmanna sem hér hefur verið lesin.
Ég vil leyfa mér áður en ég vík að einstökum atriðum í frv. --- Herra forseti. Það er svo mikið af búsáhöldum hér í hillunum að ég óska eftir því að einhver þingvörður kæmi og tæki svo sem eins og átta glös úr hillunum þannig að unnt sé að láta pappíra liggja hér undir. ( Forseti: Forseti mun sjá til þess að tekið verði til í drykkjarvörudeild þingsins í ræðustól.) Hér er ágætis vatnsflaska en mér kemur betur, a.m.k. núna, að hafa pappír þarna.
Herra forseti. Ég mun halda áfram ræðu minni. Það er kannski ekki ofsögum sagt að sá hluti umhverfismála sem stendur næst okkur húsmæðrum er einmitt það sem í daglegu tali er kallað tiltekt og þetta var liður í slíkri aðgerð. Þetta
er auðvitað ekki sá hluti þingsalarins sem blasir við augum manna en engu að síður held ég að hér megi taka til eins og víða annars staðar.
Mig langar til þess, herra forseti, að gera grein fyrir nokkrum ályktunum míns flokks, Sjálfstfl., um umhverfismálin. Sannleikurinn er sá að ályktanir um umhverfismál eru inni í ályktunum um ýmsa aðra málaflokka, eins og eðlilegt er, því að mönnum verður það æ betur ljóst að umhverfismálin eru ekki fyrirbrigði sem unnt er að einangra eitt og sér heldur þvert á móti, til þess að við náum árangri í umhverfismálum verðum við að tengja þau ýmsum öðrum málaflokkum og gera okkur ljóst að enginn málaflokkur, ekki einn einasti, verður framkvæmdur svo vel sé án þess að tillit sé tekið til umhverfisþáttar með einum eða öðrum hætti.
Í ályktunum landsfundar Sjálfstfl. frá sl. hausti segir svo, ef ég nefni fyrst hluta sem veit að umhverfismálum í ályktun um iðnaðarmál. Þar segir í síðustu málsgrein þeirrar ályktunar:
,,Umhverfi sitt verður iðnaðurinn og aðrir
atvinnuvegir að lifa í sem bestri sátt við. Nýting náttúruauðlinda og landgæða skal ávallt miðast við skynsamlega nýtingu og vaxandi afrakstur fyrir komandi kynslóðir.`` Þetta var ein málsgrein af afar mörgum í ályktun landsfundar Sjálfstfl. um iðnaðarmál.
Í ályktun um landbúnaðarmál sagði m.a. svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Hófleg nýting lands, gróðurvernd á viðkvæmum svæðum og uppgræðsla er þjóðinni allri brýnt hagsmunamál. Framleiðsla búfjárafurða verður að taka mið af landkostum þannig að ekki sé gengið á gæði landsins. Sjálfstfl. vill stuðla að öflugu uppgræðslustarfi og leggur áherslu á hlutverk bænda á sviði skógræktar og landgræðslu.``
Í ályktun landsfundarins um sjávarútvegsmál sagði m.a. svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Fiskimiðin umhverfis landið eru dýrmætasta auðlind Íslendinga. Viðskiptasamningar og verslunarhagsmunir mega ekki stefna í hættu yfirráðum okkar yfir þessari auðlind. Enn fremur er mikilvægt að Íslendingar taki forustu um varnir gegn losun úrgangs í hafið og mengun í norðurhöfum.``
Í ályktun um utanríkismál sagði svo, m.a., með leyfi hæstv. forseta:
,,Sjálfstæðismenn vilja stuðla að eflingu norræns samstarfs, ekki hvað síst í umhverfismálum og verndun auðlinda hafsins.``
Í ályktun landsfundarins um umhverfismál sagði, með leyfi hæstv. forseta:
,,1. Sett verði almenn lög um umhverfismál og samræming þeirra falin einu ráðuneyti. [Hér er áherslan lögð á að samræmingu þurfi í efnisþáttum þessa máls en hvergi er lagt til að stofnað verði nýtt ráðuneyti.]
2. Aukin áhersla verði lögð á að fylgjast með mengun sjávar á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Íslendingar hafi frumkvæði að samstarfi þjóða á norðurslóðum um málefni er varða mengunarvarnir og viðhald vistfræðilegs jafnvægis í hafinu á grundvelli eðlilegrar nýtingar auðlinda þess.
3. Gerð verði áætlun um nýtingu landsins sem miðar að því að endurheimta, vernda, varðveita og nýta landgæði á hagkvæman hátt. Slík áætlun komi til framkvæmda á þessu kjörtímabili.
4. Skógrækt, landgræðsla og gróðurvernd verði aukin í samvinnu ríkis, sveitarfélaga og frjálsra samtaka.
5. Umhverfisáhrif atvinnufyrirtækja, svo sem í fiskeldi og vegna stóriðju, verði könnuð og reglur settar til að koma í veg fyrir mengun frá þeim. Mengunarvarnir við þéttbýli verði efldar, einkum að því er varðar frárennsli og sorpeyðingu. Eftirlit með losun hættulegra efna verði bætt.
6. Gengist verði fyrir þátttöku Íslendinga í alþjóðlegu samstarfi vegna rannsókna á eyðingu ósónlagsins og ráðstafanir gerðar hér á landi í samræmi við aðgerðir meðal nágrannaþjóða.
7. Við skipulagningu ferðamála verði þess gætt að hlífa viðkvæmum landsvæðum svo að komið verði í
veg fyrir umhverfisspjöll.
8. Fræðsla um náttúruvernd og umhverfismál verði aukin í skólum og meðal almennings.
9. Sjálfstfl. vill beita sér fyrir frjálslyndri og víðsýnni stefnu í skipulagsmálum sem taki mið af þörfum allra þjóðfélagsþegna. Umhverfis- og skipulagsmál varða mjög daglegt líf landsmanna um alla framtíð. Hafa ber það í huga þegar taka þarf ákvarðanir um meiri háttar framkvæmdir er hafa afgerandi áhrif á umhverfið.
10. Við mótun stefnu í skipulagsmálum skal áhersla lögð á varðveislu menningarverðmæta jafnhliða nýsköpun umhverfis.
11. Hefja þarf fræðslu um grundvallaratriði skipulagsmála í skólum landsins og fjölmiðlum og auka á þann hátt skilning og þátttöku almennings í þeim umræðum.``
Ég vék að því, herra forseti, hvernig umhverfismálin koma inn í ályktanir um fjölmörg málefni hjá þeim sem á annað borð fjalla um stjórnmál og hagsmunamál þjóðfélagsins alls.
Ef við víkjum að öðrum ályktunum sem eru í ætt við það sem ég hef nú leitt athygli að kemur í ljós að á bak við allar þessar ályktanir liggur sú hugsun að stofna til sem víðtækastra sátta milli manns og umhverfis þannig að maðurinn geti lifað lífi sínu þannig að heilsa hans sé vernduð gegn hugsanlegum heilsuspillandi áhrifum umhverfisins og að hann nýti umhverfið eða náttúruna sér til lífsviðurværis án þess að eyðileggja hana og á þann hátt að það sé bætt sem af er tekið. Af því súpum við seyðið nú í dag að menn höfðu fyrr á tíð ekki þekkingu til þess að bæta fyrir eyðingu náttúrunnar, ekki þá þekkingu sem menn hafa nú á dögum og ekki þann skilning sem nú er verið að reyna að vinna að en hefur því miður ekki náð að festa rætur nægilega víða.
Til þess að koma þeim málum áfram og vinna þeim brautargengi er afar fjarlægt að nauðsynlegt sé að búa til nýtt ráðuneyti. Það er ekki nýtt ráðuneyti sem þarf, heldur að efla þær stofnanir sem þegar hafa víðtækar og vandasamar skyldur á þessu sviði og að auka samstarfið þeirra í meðal þannig að umhverfisverndarstefnan geti skilað sem bestum árangri á vegum allra ráðuneyta, að til sé samstarf milli þeirra sem sé vel framkvæmanlegt og þannig að forðast megi tvíverknað en miðla upplýsingum sem nauðsynlegar eru á milli þeirra stofnana sem að þessum málum vinna þótt með misjöfnum hætti sé. Það er það sem máli skiptir en ekki að búa til nýtt ráðuneyti eins og margir hafa hér mælt gegn og eins og ég vildi mega óska að hæstv. ráðherra, sem vék úr salnum nú áðan, mæltist undan því og að hann sneri sér fremur að öðrum verkefnum sem hæstv. ríkisstjórn kynni að þóknast að fá honum. En það er e.t.v. eðlilegt að hæstv. ráðherra hafi gengið úr salnum því þeir sem eiga sæti í hans flokki hafa nú ýmsum öðrum hnöppum að hneppa í dag en að sinna umræðum á Alþingi því að svo er helst að sjá sem Borgfl. sé nú enn að hrökkva í smærri einingar, e.t.v. frumeindir, og það tekur auðvitað tímann sinn að
leysa þau mál. Það er bara að niðurstaðan verði ekki sú sem sagði í vísunni gömlu:
List er það líka og vinna
lítið að tæta upp í minna,
alltaf í þynnra þynna
þynnkuna allra hinna.
Það skyldi þó ekki koma á daginn eftir þennan dag að þetta gilti um flokk hæstv. ráðherra sem mestra hagsmuna hefur að gæta af því að mál þetta sem við erum nú að ræða komist á þann leiðarenda að þingið láti sér þóknast að samþykkja það. En mér finnst raunar fleira benda til þess að hv. þm. muni nú endurskoða málið og skoða hug sinn á nýjan leik þannig að málinu verði frestað á þessu þingi og það athugað á nýjan leik hvernig ráða megi fram úr þeim vanda sem hæstv. ríkisstjórn hefur óneitanlega komið sér í með því að bæta við ráðherra án teljandi verkefna. Ég tel að engan veginn sé skynsamlegt að fá honum verkefni með því að gera verkefni enn annarra ráðherra miklu minni en þau eru eða aðallega þó eins ráðherra sem ég hef sérstaklega í huga í þessu sambandi. Ég kem betur að því núna á eftir, en það er sá þáttur sem tengist heilbrigðismálum.
Ég mun halda áfram, herra forseti, að rekja ályktanir sem tengjast þessu máli sem varpa ljósi á viðhorf okkar sjálfstæðismanna til þessa frv. og sýna fram á að það er einmitt vegna þess að við viljum framkvæmd í umhverfismálum
sem allra besta og árangursríkasta á sviði umhverfisverndar að við erum andvíg frv. eins og það liggur fyrir nú. Guð láti gott á vita, hæstv. ráðherra kinkar kolli, að því er mér sýnist, með samþykki í svip og ég hygg að hann sé nú í raun og veru alveg sammála mér um þetta viðhorf því að eins og kunnugt er er hæstv. ráðherra greindur einstaklingur og vel að sér í sinni grein. Ég þykist vita að í raun og veru sé hann andvígur þessari framkvæmd sem lögð er til í frv. og að hann væri til með að taka þátt í því með öðrum þingmönnum að fá hæstv. forsrh. til þess að gera ráðstöfun til þess að leysa hans vanda með öðrum hætti en þessum sem ég hygg að gæti orðið afar dýrkeyptur fyrir þær stofnanir sem raunverulega eiga að sinna umhverfisvernd á Íslandi. Um svipað leyti og ályktanir Sjálfstfl. voru samþykktar á landsfundi nú í haust var lögð fram greinargerð hinnar svonefndu aldamótanefndar sem stundum hefur verið vikið að hér úr þessum ræðustóli, en í henni voru Davíð Oddsson borgarstjóri,
sem var formaður nefndarinnar, Einar Oddur Kristjánsson, Guðmundur Magnússon, Sigríður Þórðardóttir, Valur Valsson og Þorkell Pálsson. Þessi nefnd samdi ályktun eða greinargerð um ýmis þau efni sem hún taldi nauðsynlegt að leggja sérstaka áherslu á á þeim árum sem eftir lifa til næstu aldamóta. Í þessari greinargerð segir svo um umhverfismál, með leyfi hæstv. forseta, í 11. kafla:
,,Ekki er vafi á því að í veröld vaxandi fólksfjölda sem gengur æ nær náttúru landanna verður umræðan
um umhverfismál og vernd lífríkis mikilvægari í þjóðmálabaráttunni. Vissulega stendur íslenska þjóðin betur í þessum efnum en margar aðrar m.a. af því að við búum á eylandi allfjarri iðnaðarborgum meginlandsins. Þjóðin er fámenn í stóru landi með veðráttu sem andæfir mengun. Þótt við stöndum þannig betur að vígi en aðrar þjóðir megum við auðvitað ekki fljóta sofandi að þessum sannkallaða feigðarósi sem eyðilegging náttúrunnar er. Við gerum okkur vissulega grein fyrir því að ástandið er ekki enn orðið eins bölvað hér og sums staðar þekkist og bölsýniskvak getur jafnvel úr hófi gengið.
Í þessu sambandi má leiða hugann að tveimur atriðum. Annars vegar að sjá til þess að ekki sígi hér á ógæfuhliðina og við höldum áfram okkar forskoti og á hinn bóginn getum við kannski notfært okkur þessa stöðu sjálfum okkur til framdráttar á öðrum sviðum. Jafnvel getum við gert okkur áhuga á umhverfisvernd og lítt mengaðri náttúru Íslands að eins konar útflutningsvöru. Ef við skipum okkur í framvarðasveit þeirra sem huga að umhverfisvörnum og grípum fyrr í taumana en aðrir hafa gert og áður en jafnilla er komið hjá okkur eins og öðrum gætum við skipað okkur sérstakan sess í veröldinni. Með öflugum áróðri og almennum upplýsingum gætum við gefið þá mynd af landinu að hér sé umhverfislegur aðbúnaður til fyrirmyndar.
Ef þetta tækist og fólk væri orðið þess fullvisst að Ísland stæði betur að vernd síns umhverfis en aðrir mundi það skapa okkur beinar og auknar tekjur við þróun og sölu á matvælum héðan og gera landið eftirsóknarvert fyrir aflögufæra ferðamenn. Þótt við eigum að forðast kreddur og ofstýringareftirlit megum við síst af öllu sofna á verðinum. Við verðum að gera ríkar kröfur til mengunarvarna fyrirtækja og einstaklinga, svo sem eins og bifreiðaeigenda, og ekki síst þurfum við að efla vitund borgaranna um mikilvægi þessa málaflokks og mikilvægi þess að allir leggist á eitt í þessum efnum.
Hreint land, ómengað land, fagurt land verður æ eftirsóknarverðara eftir því sem mannfjöldi og tæknivæðing gerir tilveruna skuggablendnari annars staðar. Það er á hinn bóginn alls ekki í anda eða þágu málefnisins að apa eftir öðrum skrifræðisríkjum og stofna til sérstaks skrifræðisbákns eins og nýs umhverfisráðuneytis.
Íslenska stjórnkerfið er þegar nógu stórt og jafnvel er eftirlitskerfið þegar of mannað svo að ekki er á bætandi. Það á fyrst og fremst að vekja upp þjóðarvakningu um umhverfisvernd sem lýkur í þjóðarsátt um varðstöðu um ómengað land og fagurt.``
Þetta var kafli, herra forseti, úr greinargerð aldamótanefndarinnar svokölluðu sem skilaði áliti á landsfundi Sjálfstfl. nú í byrjun október. Og það er sama um þetta álit að segja og um þar sem vikið var að umhverfismálum í ályktunum landsfundarins, að að öllu leyti er hér stefnt að víðtækri sátt manns og náttúru til gæfu og heilsubótar fyrir menn og gegn eyðingu gæða náttúrunnar.
Á 16. landsþingi Landssambands sjálfstæðiskvenna,
sem haldið var á Akureyri, sagði svo, með leyfi hæstv. forseta, um umhverfismál:
,,Með virkum aðgerðum verði markviss umhverfisvernd tryggð.
Efla þarf varnir gegn hvers konar mengun og öðrum skaðlegum umhverfisþáttum jafnframt því að vinna að varðveislu og skynsamlegri nýtingu náttúrugæða landsins.
Auka ber fræðslu um náttúruvernd svo að komið verði í veg fyrir frekari eyðingu gróðurs og annarra landkosta.``
Það þarf ekki að fjölyrða um það hér að á það hefur hvað eftir annað verið bent að alvarlegasta umhverfisvandamál á Íslandi er eyðing gróðursins og það á við hvort heldur er um eyðingu skóglendis eða annars gróðurs að ræða vegna
þess að þegar skóglendi hefur verið eyðilagt heldur áfram frekari gróðureyðing og uppblástur hefst þannig að verðmæt efni úr jarðveginum fjúka á burt og enn erfiðara verður að nema nýtt land fyrir nýjan gróður. Þess vegna er það að viðleitni í þá átt er langtímamarkmið og hefur mikla þýðingu bæði til þess að hafa áhrif á ræktun landsins, nýtingu þess og jafnvel á veðurfarið, svo og að sjálfsögðu atvinnuhætti og heilsu landsmanna.
Á 17. þingi Landssambands sjálfstæðiskvenna sagði svo, m.a., með leyfi hæstv. forseta:
,,Þjóðin byggir afkomu sína á nýtingu auðlinda lands og sjávar. Náttúruauðlindir og umhverfi þarf því að vernda fyrir rányrkju og eyðileggingu. Varnir gegn mengun sjávar og aukning gróðurlendis eiga að sitja þar í fyrirrúmi. Endurskoða þarf í heild þá stefnu sem nú er ríkjandi varðandi þennan málaflokk.
Landsþing Landssambands sjálfstæðiskvenna fagnar gróðursetningarátaki ungra sjálfstæðismanna. Þar er á ferðinni þarft verk sem vonandi ber góðan ávöxt í framtíðinni.``
Ég vék að því áðan hverja þýðingu það hefur fyrir okkur sem eldri erum og vinnnum að ýmiss konar stjórnmálaverkefnum að hlusta eftir því sem unga fólkið í röðum okkar er að segja og líka að taka eftir því hvað það er að gera. Þess vegna er það að ég vil vekja á því sérstaka athygli sem nefnt er hér í þessari ályktun sjálfstæðiskvenna sem ég var að vitna til, að ungir sjálfstæðismenn gerðu það að sérstöku verkefni sínu og sérstakri afmælisgjöf sinni til hinna stóru breiðu samtaka sem Sjálfstfl. er að hleypa af stokkunum verulegu átaki til gróðursetningar trjáplantna. Þar tel ég að þessi æskulýðssveit hafi haft afar gott frumkvæði sem til fyrirmyndar má sannarlega vera í ýmsum félagasamtökum og ég verð að segja að fátt finnst mér vera eins til þess fallið að vekja bjartsýni eins og þegar þeir sem eru í yngstu hópunum í stórum stjórnmálaflokkum taka ákvarðanir eins og þessa. Þetta sýnir að þeir sem yngstir eru og eiga að taka við landinu og búa það svo í hendur framtíðarinnar sýna einmitt þessu verkefni þann skilning sem þarf. Þess vegna eigum við að styðja slíkt til þess að það geti borið ávöxt. Og þess vegna er ég ekki hissa á því að Sambandi ungra
framsóknarmanna þyki leggja af þessu umhverfisfrv. heldur óþægilegan fnyk því að þar er í raun og veru ekki verið að vinna að aukningu umhverfisverndar í landinu, heldur er verið að stokka og flytja stóla til og frá en ekki verið að efla þær stofnanir sem þegar eru í landinu og hafa það verkefni að vinna að mikilvægum rannsóknum og framkvæmdum til umhverfisverndar. Ekki er með frv. verið sérstaklega að efla þau samtök sem hafa slík verkefni með höndum né heldur að auka fræðslu í skólum landsins eða meðal almennings til þess að umhverfisverndin nái árangri. Og því síður er verið sérstaklega að sinna því sem æ fleiri leggja höfuðáherslu á í sambandi við umhverfismálin, en það er sá þáttur sem veit að mannlegri heilbrigði.
Nú er það svo að umfjöllun um umhverfismál hefur í raun og veru verið þannig að henni má skipta í nokkra áhersluþætti. Í upphafi eru verkefni umhverfismála fyrst og fremst tengd viðleitninni til að komast af, til að afla sér lífsviðurværis, til þess, eins og sagt er, að lifa á landsins gæðum og þá um leið á gæðum náttúrunnar yfirleitt.
Fyrr á tíð var það ljóst að umhverfismálin miðuðust fyrst og fremst við þetta. Þau voru fólgin í landnámi og það land var helst numið sem gaf besta möguleika til afraksturs á einhvern hátt, til þess að gefa af sér verðmæti, annaðhvort í heyjum eða til hugsanlegrar ræktunar þótt í litlum mæli væri og svo það sem var á síðari tímum ljóst að var heldur sorginni líkt en það var það sem sem kallað var skóglendi á fyrstu árum Íslandsbyggðar og var þá nytjað til þess að höggva viði í húsin og ekki síður til þess að kynda. Og fátt er eins sorglegt að sjá í gömlum jarðalýsingum eins og það þegar kostum jarða er lýst þannig að þar sé nokkur viður til eldsneytis. Og hvað þýðir það? Það þýðir það að þær jarðir sem svo er lýst og voru byggðar þá eru ekki viði vaxnar í dag. Þar er í besta falli mosi og mói og uppblásin börð nema í þeim fáu tilvikum sem mannshöndin hefur verið þar að verki og breytt litlum hlutum þessara svæða í betra land, land sem verður betra með nokkurri umönnun. Þetta er sá þáttur umhverfisverndarinnar sem veit að atvinnu landsmanna á landi og afkomu þeirra.
En það er ekki einungis þetta sem umhverfisverndin fjallar um. Það er líka það sem nútímaþekking hefur fært okkur heim sanninn um og birtist í ýmiss konar efnum sem menn hafa reynslu af að hafi áhrif á heilsu manna. Þar er bæði um að ræða efni á landi, í lofti og á sjó. Nægir að nefna hinn víðtæka vanda sem margar þjóðir eiga við að stríða af völdum ofnæmis eða óþols og þarf ekki að minna bændur, dettur mér í hug þegar hv. 2. þm. Norðurl. v. gengur í salinn, á þann vanda sem af því hlýst. Þar er m.a. um að ræða þekkt vandamál meðal margra bænda sem er einfaldlega ofnæmi af völdum grass og moldar og ýmiss konar örverugróðurs sem þyrlast út í loftið þar sem þeir vinna. En það eru ekki einungis bændur sem hér eiga hlut að máli. Nútímaþekking hefur fært
okkur heim sanninn um mikilvægi rannsókna á efnum annarra þátta líka, bæði lofts og sjávar.
Ef við víkjum frá þeim þætti umhverfismálanna sem veit að afkomu manna, atvinnu og möguleikum til að afla sér lífsviðurværis getum við líka rætt um þann þátt umhverfismála sem hefur fyrst og fremst gildi fyrir augað ef ég má svo segja og þann þátt á heldur ekki að vanmeta þótt hann sé ekki í daglegu tali mældur á mælikvarða heilsunnar eða afkomumöguleika. Raunar getur sá þáttur, fegurð umhverfisins, sannarlega líka orðið mikilvægur í sambandi við atvinnu landsmanna og nægir að minna á ferðamálin, þar sem fjöldi annarra þjóða hefur auðvitað fyrir löngu fært sér þann þátt í nyt, og skipulagsmálin sem eru mjög mikilvægur þáttur í þessu sambandi.
Mikilvægastur af öllum þessum þáttum er þó, frá mínu sjónarmiði, sá þáttur sem tengist heilbrigði manna. Ef grannt er skoðað tengjast þessir þættir allir og enda einhvern tíma í athugun okkar á því að verða tengdir heilbrigði með einum eða öðrum hætti. Auðvitað tengist möguleiki manna á að nýta landið sér til lífsviðurværis heilbrigðisþættinum og auðvitað hefur það áhrif á andlega heilsu manna hvernig umgengnin er, einungis það hvernig við umgöngumst fegurð umhverfis okkar og hvort við gerum það besta úr umhverfinu með því að sinna því, með því að skipuleggja það rétt þar sem skipulagningar er þörf og leyfa því að vera í friði þar sem það nýtur sín best ósnortið. Og stundum er það sagt að stærsta auðlind okkar sé hin ósnortna náttúra. Þetta er auðlind sem ég held að við höfum ekki sinnt eins vel og virkjað eins vel og kostur er.
Ég vék að því áðan hvernig ýmsir þættir í umhverfinu hafa orðið athugunarefni þeirra sem besta hafa þekkingu á ýmsu því sem finnst í náttúrunnar ríki og hvernig þróun þekkingarinnar hefur fært mönnum heim sanninn um það að við þurfum leiðbeiningu til þess að umgangast jafnviðkvæma auðlind og náttúruna með þeim hætti að til gæfu verði fyrir fólk og til bóta eða verndar náttúrunni sjálfri.
Ég nefndi það áðan að þegar við tölum um umhverfið í sambandi við atvinnu manna og lífsafkomu gerist það að hinir flóknu sjúkdómaþættir og flóknar sjúkdómamyndir af völdum ofnæmis gera oft vart við sig og það hefur sýnt sig að oft er hættum sem valda ofnæmi ekki nægilegur gaumur gefinn. Ég vek athygli á því að í fréttabréfi frá landlæknisembættinu 1989 sem tengt er heilbrigði allra árið 2000, svo að notað sé kjörorð Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, er ítarlega fjallað um grasofnæmi og ýmiss konar örsmáa maura í náttúrunni sem valda alvarlegum og erfiðum veikindum þeirra sem nálægt þessum efnum vinna. Við ýmsum þeim vanda sem veldur asma þarf að bregðast með réttum hætti og þekkingu til þess að hin mikla auðlind sem heilbrigði manna er nýtist þeim sjálfum og landi þeirra sem best.
Okkur er gjarnt að tala um auðlindir náttúrunnar, en við skulum líka hafa í huga auðlindina sem felst í
heilbrigði manna. Og við skulum líka hafa í huga gæfuna sem felst í heilbrigði manna eða eigum við heldur að segja möguleikana sem mönnum eru búnir ef þeir eru svo heppnir að vera heilsugóðir.
Ég nefni einungis þetta hefti frá landlækni um ofnæmi til þess að minna á það að þarna er þekkingarsvið sem er í mikilli þróun og vissulega þarf að veita miklu meiri athygli. Efla þarf rannsóknir á þessu sviði þannig að við getum betur ráðið við þann vanda sem þarna er um að ræða.
Við getum í þessu sambandi einnig minnt á rit sem þingmönnum var nýlega sent og fjallar um mengun erlendis frá, um mengun sem berst í andrúmsloftinu og fellur með regni til jarðar eða sjávar. Þar er greinargerð um þær hættur sem hugsanlega gætu falist í slíku en þar er einnig bent á að við þurfum að standa betur að rannsóknum. Má ég í þessu sambandi minna á allar þær athuganir sem bent hefur verið á víða um heim að gera þurfi á aukefnum í matvælum og ýmiss konar efnum sem notuð eru við vinnu. Aukefni eru efni sem notuð eru við framleiðslu matvæla eða annarra neysluvara sem tæknileg hjálparefni eða til að hafa áhrif á geymsluþol, lykt, bragð eða aðra eiginleika vöru. Þegar vara er boðin til sölu eru aukefnin að einhverju eða öllu leyti til staðar í vörunni, í breyttu eða óbreyttu formi.
Því nefni ég þetta að einmitt nú er á döfinni mjög víðtækt samstarf fræðimanna og vísindamanna víða um lönd og svo heilbrigðisstarfsmanna einnig til þess að ákvarða sameiginlega staðla um leyfilegt magn slíkra efna í vörum. Einmitt þetta samstarf gerir til þess kröfu að við stöndum enn betur að rannsóknum að þessu leyti til, að við styðjum þær mikilvægu rannsóknir sem þegar fara fram í landinu og eru svo sannarlega þess virði að þeim sé verulegur gaumur gefinn og að Alþingi átti sig enn betur á með hvaða hætti væri hægt að efla þessar rannsóknir, en það gerum við ekki með því að búa til nýtt ráðuneyti, heldur með því að efla þær rannsóknarstofur sem hér eiga hlut að máli. Það nægir að nefna t.d. ýmsa þætti í hollustuvernd, ýmsa þætti sem vinna að rannsóknum á mengunarmælingum í sjó eða í lofti.
Ég hef hér í höndum, herra forseti, rit nokkurt sem ég veit að sá herra forseti sem nú situr í forsetastól kannast við, en það er samanburður á löggjöf Evrópubandalagsins og Íslands á sviði eiturefna og hættulegra efna. Ég
er sannfærð um það að hér erum við með í höndunum verkefnasvið sem er svo viðkvæmt og svo mikilvægt, bæði fyrir framleiðsluhagsmuni landsins, fyrir atvinnuhagsmuni landsins og fyrir heilbrigði landsmanna, svo og fyrir viðskiptalíf okkar yfirleitt, að hér verðum við að athuga okkar gang fyrr en seinna og ekki bíða eftir að tjón hafi orðið á þessum sviðum. Í þessum samanburði er mjög gott yfirlit yfir nokkra sérstaka efnaflokka, hvernig mismunandi kröfur gilda annars vegar á Íslandi og hins vegar hjá Evrópubandalaginu eða löndum þess, og svo hvað æskilegt er að Ísland geri á hverju sviði fyrir sig. Hér er um að ræða ýmiss konar efnavörur, frumefni,
efnasambönd og samsettar efnavörur og svo eiturefni og hættuleg efni, hreinsiefni, þvottaefni og slíkt, og síðan er í ritinu kafli um innflutning og útflutning á hættulegum efnum og tilkynningarskyldu um þau.
Ég óttast að sú þjóðfélagsaðstaða sem veldur því að húsbændur og húsmæður á heimilum, forráðamenn heimila, eru svo störfum hlaðin að þau eru meira og minna fjarri heimilum sínum daglangt og undirbúningur að þeim störfum sem fólkið stundar, allt þetta, hafi verið framkvæmdur og sé framkvæmdur með þeim hætti að hættan af ýmsum efnum í hversdagsumhverfi okkar sé ekki nægilega athuguð. Ég óttast það með öðrum orðum að umhverfisfræðslan í skólakerfinu og meðal almennings sé ekki nægilega góð, hún beinist ekki með nægilega öflugum hætti að því að afstýra ýmiss konar slysum sem virst gætu hversdagsleg. Ég hef hér einkanlega í huga ýmiss konar efnaslys á heimilum. Þetta er hluti af umhverfisvernd. Þetta er hluti af því að gera nánasta umhverfi manna öruggt og heilsusamlegt. Þetta gerist hins vegar ekki nema með glöggri og fordómalausri upplýsingamiðlun.
Það hefur nokkrum sinnum verið gert átak, eins og kallað er, í þessu efni. Lausn á slíkum málum finnum við hins vegar ekki með snöggum átökum heldur með viðvarandi fræðslu sem gengur eins og eðlilegur þáttur inn í almenna menntun manna. Þeim mun meiri þörf er á þessu að ævinlega eru að koma upp ný efni, lítt könnuð oft á tíðum, og þar sem menn hafa ekki upplýsingar frá fyrri tíð þannig að menn geti með alveg öruggum hætti nýtt það hagræði sem gæti virst vera í hinum nýju efnum.
Ég er að tala um öryggi í nánasta umhverfi og þá er ég sérstaklega að víkja orðum að svokölluðum efnaslysum á heimilum, en málið þarf ekki að vera svo flókið. Það þarf ekki að vera flókin efnafræðikennsla sem kemur til greina, heldur líka leiðbeiningar um umgengni við hætturnar í nánasta umhverfi manna. Staðreyndin er sú að á Íslandi eru barnaslys ótrúlega tíð. Þau eru tíðari en svo að við getum kinnroðalaust horfst í augu við þær staðreyndir. Tíðust eru samkvæmt upplýsingum landlæknis barnaslys í námunda við heimili, ekki síst utan húss, umferðarslys nálægt eigin heimilum barna. Þess vegna verður ekki of mikil áhersla á það lögð að á þessu sviði er mikilvæg umhverfisfræðsla til þess að gera nánasta umhverfi manna öruggara og þá ekki síst umhverfi þeirra sem yngstir eru og síst færir um að sjá sjálfir fótum sínum forráð.
Þetta hefur mér vitanlega ekki verið talið til verkefna umhverfisráðuneytis og ég get ekki séð að þessum málum sé betur borgið með stofnun nýs umhverfisráðuneytis. Hér er ég einmitt að tala um eitt af þeim umhverfismálum sem er dæmigert ef svo má segja að því leyti að það snertir starfrækslu margra annarra málaflokka. Það öryggisatriði umhverfisins, nánasta umhverfisins, með öðrum orðum, slysavarnir, þau eru sannarlega umhverfismál og ekki það minnsta. Slysavarnir eru það svo sannarlega og því nefni ég það að ég tel að þessi tvö atriði, efnaslysin og slys í
nánasta umhverfi heimila, jafnvel umferðarslys í nánasta umhverfi heimila, þau tengjast vernd heilsunnar, vernd barna og fullorðinna, varnir gegn þessum slysum eru liður í því að hjálpa fólki að halda lífi og heilsu. Með eðlilegum hætti ættu báðir þessir þættir heima í heilbrrn. ef ætti að heimfæra þau undir tiltekið ráðuneyti. Og svo er um fleiri þætti umhverfismála. Ég kem að því fljótlega að æ fleiri rök í seinni tíð hníga að því að í stað umhverfisráðuneytis eigi að fela umhverfismálin heilbrrn. og samræming umhverfismálanna eða öllu heldur samstarfsnefnd sem ég tel að væri heppilegasta lausnin, samstarfsnefnd ráðuneyta sem með einhverjum hætti koma nálægt umhverfismálum ætti að mestum hluta til heima í heilbrrn. Vissulega má hugsa sér það í samgrn. eins og var í frv. okkar sjálfstæðismanna en ég
hallast meir og meir að þeirri skoðun að síst af öllu eigi að taka umhverfismálin úr heilbrrn. því að þar yrði þá heilt ráðuneyti sem tæpast hefði næg verkefni. Það er varla fullt verkefni fyrir heilt ráðuneyti að annast nokkrar stærstu ríkisstofnanirnar í landinu sem eru um stjórnun sína afar sjálfstæðar og koma í sjálfu sér ekki svo mikið inn á borð ráðherra nema þegar um er að ræða útlínur í fjárlagagerð og í nokkrum tilfellum öðrum sem varla eru nægileg til þess að vera verkefni heils ráðuneytis.
Ég tel að það væri þess vegna miklu skynsamlegra að tengja öll þau umhverfismál sem með nokkru móti eru hluti af heilsuvernd eða má heimfæra undir það að vernda heilbrigði manna fyrir umhverfisáhrifum ýmiss konar í bráð eða lengd, að allir þeir þættir ættu að vera í heilbrrn.
Mig grunar, þó að ég geti ekki staðfest það, að hæstv. heilbrrh. sé á þessari skoðun og hann sé einungis einn af þeim sem gengið hafa undir jarðarmenið fræga og það styður þá kenningu mína hver áhersla var af hálfu hæstv. heilbrrh. nú í vetur á því að koma frv. um breytingu á lögum um hollustuvernd í gegnum Alþingi. Það gat varla verið að sú áhersla væri jafnmikil ef einungis var þar tjaldað til einnar nætur. Ég held þvert á móti að hæstv. heilbrrh. hljóti að vera á þessari skoðun og má það vera líka með ólíkindum eftir því sem menn kynnast því ráðuneyti betur og þeim ágætu starfsmönnum sem þar vinna og þeim ágætu sérfræðingum sem því tengjast ef menn komast ekki á þá skoðun að þeim þáttum umhverfismála sem þeir hafa með höndum sé best borgið þar. Enda er það svo að bæði sérfræðingar og mikilvægustu stofnanir á þessu sviði sem heyra undir heilbrrn. svo og helstu heilbrigðisyfirvöld, ef ég má svo segja, mæla eindregið gegn þessu frv. Þannig að það er ekki eins og hér sé verið að bera fram einhverjar sérskoðanir, því fer fjarri.
Sá mikli þungi sem verið hefur í málflutningi víða um lönd á síðustu árum þegar umhverfismál ber á góma á sér eðlilegar skýringar. Menn hafa séð það og komist að raun um með rannsóknum að ýmsum þáttum í afkomu manna og heilsu er alvarleg hætta
búin vegna þess að aðgát hefur ekki verið nægileg höfð í umgengni við náttúruna.
Svo að vikið sé að því verkefni sem er fjarlægast okkur landfræðilega séð í bili getum við nefnt eyðingu regnskóganna sem hefur áhrif á loftslagið yfir jörðinni og getur leitt til mikils ófarnaðar ef ekki verður spyrnt við fótum. Það er ljóst að þeir hlutar heimsins sem ekki eiga regnskóga verða að koma til hjálpar. Þetta er mál sem mönnum finnst oft nokkuð fjarlægt af því að svo fjarri er það okkar landi t.d. og norðlægum slóðum en engu að síður er þetta sameiginleg hætta sem blasir við mannkyni, ekki á næstu dögum en í framtíðinni. Þess vegna ber að fagna því hve margar alþjóðlegar stofnanir hafa ályktað um þetta og það þótt ekki sé um að ræða stofnanir þar sem þessi lönd sem í hlut eiga eru aðilar að. Ég nefni t.d. nýlega samþykkt Evrópuráðsins um þetta efni.
Norðurlandaráð hefur látið sig umhverfismálin varða með mjög eindregnum hætti og slær því föstu að hver einasti maður gerir sér ljóst mikilvægi umhverfismálanna og telur að sú skoðun hafi margsinnis verið staðfest í Norðurlandaráði. Ég vonast auðvitað til að sem flestir geri sér þetta ljóst og það sé rétt skoðun. Meðal þess sem megináhersla er lögð á í samstarfsverkefni ráðherra Norðurlanda, Norðurlönd í Evrópu 1989--1992, er að stinga upp á forgangsverkefnum og þar eru umhverfismálin mjög ofarlega á blaði. Nú er það svo að hæstv. ráðherra sem mestan áhugann hefur á þessu máli er samstarfsráðherra Norðurlanda og það er auðvitað mjög heppilegt að hæstv. ráðherra beiti sér að þessu máli þar, enda ber honum til þess skylda sem samstarfsráðherra, hvort sem hann er umhverfisráðherra eða ekki.
Hin norrænu samtök, bæði Norðurlandaráð og ráðherranefnd Norðurlanda, hafa byggt mjög á skýrslunni frægu sem oft er kölluð Brundtlandskýrslan og heitir ,,Hin sameiginlega framtíð okkar``, skýrsla nefndar Sameinuðu þjóðanna um þróun og umhverfi. Í skýrslunni er lögð sérstök áhersla á það að láta umhverfismálin hafa forgang í sambandi við Evrópusamvinnuna. Þess vegna telur ráðherranefndin nauðsynlegt að bæði Norðurlandaráð og aðrir stjórnmálamenn sem starfa að Evrópusamvinnu leggi áherslu á þetta atriði. Meðal þess sem er höfuðatriði frá þeirri sjónarmiði í þessum málaflokki er annars vegar orkustefnan og hins vegar áhrif umferðarinnar á umhverfið. Það verður ekki lögð á það of mikil áhersla hverja þýðingu það hefur að spyrna við fótum að því er varðar mengunaráhrif umferðarinnar og síðan að leggja á það áherslu að fjármunum verði veitt til mengunarvarna við alla fjárfestingu í atvinnuskyni eða til einkanota og svo síðast en ekki síst til þess að unnt sé að fylgjast með mengun umhverfisins.
Við þingmenn höfum fengið í hendur greinargerð og tillögur um mengunarmælingar í sjó sem er eitt af því sem skiptir verulegu máli vegna gæða þeirra matvæla sem við framleiðum og er aðalframleiðsla Íslendinga. Ég á hér við skýrslu starfshópsins sem
samgrh. skipaði til þess að gera tillögur um mælingar á mengunarefnum vegna hugsanlegrar mengunar í sjó hér við land og vegna þátttöku í alþjóðlegu samstarfi um skipulegar mælingar á mengun hafsins. Í þessum starfshópi voru, eins og menn muna, Jón Ólafsson sviðsstjóri, Hafrannsóknastofnun, Magnús Jóhannesson siglingamálastjóri og Sigurður Magnússon, forstöðumaður Geislavarna.
Ég vil leyfa mér að tilfæra úr þessu áliti örlítið þar sem minnt er á tengsl ákvæða í þessari greinargerð við framkvæmdina. Fyrst er það skýrt að Ísland sé aðili að Oslóar- og Parísarsamningunum um varnir gegn mengun sjávar og að Alþjóðahafrannsóknaráðinu og Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni. Með leyfi hæstv. forseta:
,,Oslóar- og Parísarsamningurinn um varnir gegn mengun eru svæðasamningar sem gilda fyrir Norðaustur-Atlantshaf. Samningar þessir tóku gildi seint á síðasta
áratug. Auk þess sem samningar þessir hafa það meginmarkmið að draga úr allri losun efna í hafsvæði er eitt höfuðverkefni þeirra að afla upplýsinga um mengun á hafsvæðinu og meta ástand þess með hliðsjón af varnaraðgerðum. Af þessum sökum hefur verið komið upp sérstakri áætlun á vegum Oslóar- og Parísarsamningsins um eftirlitsrannsóknir, Joint Monitoring Program.`` --- Ég les, herra forseti, tilvitnun í ritið síðar, það er óþarft reyndar svo ég sleppi því. En þessari áætlun hefur verið komið upp með fjögur atriði að markmiði, eins og segir í skýrslunni.
a. Mat á hugsanlegri áhættu vegna neyslu sjávarfangs,
b. mat á óæskilegum áhrifum á lífríki eða vistkerfi sjávar,
c. mat á núverandi mengun sjávar á ýmsum svæðum,
d. mat á áhrifum samræmdra aðgerða til að draga úr mengun sjávar.
Það er ljóst, herra forseti, af þessari litlu upptalningu að hér er um þvílík lykilatriði að ræða til þess að tryggja verðmæti sjávaraflans og til þess að tryggja það að framtíð sjávarútvegs geti byggt á góðri von um að þar með sé verið að afla góðrar og heilsusamlegrar vöru sem á greiða leið á markaði og getur þar með haldið áfram að vera undirstaða lífsafkomu á Íslandi. Ég leyfi mér að vitna aftur til greinargerðarinnar, herra forseti:
,,Þessari áætlun hefur ekki nema að hluta til enn verið hrint í framkvæmd og koma þar til ýmis tæknileg vandamál er snúið hafa m.a. að söfnun sýna og greiningu. Þar eð efnin eru í mjög litlu magni í hverju sýni er nákvæmni í mæliaðgerðum grundvallaratriði til að hægt sé að byggja á niðurstöðum þeirra. Það gefur því auga leið að ef bera á saman mælingar á mengunarefnum milli landa og hafsvæða þá verður að gæta fulls samræmis í rannsóknunum. Til þess að leysa þessi vandamál hefur samstarfsnefndin staðlað sýnatöku og
greiningaraðferðir og beitt sér fyrir því að rannsóknastofnanir í einstökum löndum taki þátt í samanburðarprófunum í greiningarnákvæmni.``
Ég held áfram: ,,Gera verður ráð fyrir því að styrkur mengandi efna í sýnum frá Íslandsmiðum sé lágur. Þar af leiðandi verður að beita bæði næmum greiningaraðferðum og vanda öll vinnubrögð við söfnun og efnagreiningar. Þetta þýðir að tækjabúnaður verður að vera mjög vandaður og að þeir fagmenn sem vinna að rannsóknunum verða að eyða töluverðum tíma til prófunar á aðferðum og vinnubrögðum áður en unnið verður úr sýnum og niðurstöður sendar inn í alþjóðlegum eftirlitsrannsóknum. T.d. verður að leggja vinnu í það að greina
samanburðarsýni sem send verða til þeirra rannsóknastofnana sem skila gögnum í umræddum rannsóknum.``
Það er svo gert ráð fyrir, herra forseti, að í þessari rannsóknaráætlun sé safnað lífverum í sjó eigi sjaldnar en á tveggja ára fresti og athugað verði fimmta hvert ár hvernig staðan er með mengandi efni í sjó og lífverur. Markmiðið er að fá upplýsingar um svæðisbundna mengun og með endurteknum mælingum upplýsingar um breytingar í tímans rás, t.d. vegna hertra mengunarvarna eða aukinnar mengunar.
Það er þess vegna alveg ljóst að það verður ekki of þung áhersla lögð á það af hálfu Íslands að þarna þurfi að byrgja brunninn ef svo má segja. Þarna verðum við að taka til hendi nægilega öfluglega og það fyrr en síðar. Og hér verður að vinna með skipulegum hætti og sjá til þess að bæði tæki og mannafli og aðstaða séu til þess að vinna að slíkum mælingum með nægilegri nákvæmni. Mér er það mætavel ljóst að það kann að reyna á þolinmæði okkar sem ekki höfum sérþekkinguna á ýmsum sviðum sem þessum að sjá áþreifanlegan árangur sem breytist í seljanleg verðmæti á morgun eða í næstu viku, en þetta mál fjallar ekki um það. Þetta er eins og hver önnur tryggingarráðstöfun þannig að við vitum hvert halda ber í þeim efnum sem við höfum hingað til talið mestu skipta fyrir lífsafkomu á Íslandi. Þess vegna verðum við að leggja þeim lið sem að slíkum málum vinna, ekki einhvern tímann, ekki 1995 eða árið 2000 heldur strax.
Það sem þessi hópur varð sammála um að þyrfti að leggja sérstaka áherslu á hér á landi var:
Í fyrsta lagi ,,að afla upplýsinga um mengun sjávar á hafsvæðinu umhverfis landið, á því svæði sem kalla má mengunarlögsögu, svo hægt sé að leggja mat á heilnæmi sjávarafurða þaðan.``
Í öðru lagi ,,að fylgjast með og koma upp þekkingargrunni sem gagnast mætti sem mest í alþjóðlegu starfi að bættum vörnum gegn mengun sjávar og til að meta hugsanlegar breytingar á mengun sjávar á hafsvæðum umhverfis landið.``
Ég vil skjóta hér inn í tilvitnunina, herra forseti, að af þessu sést að hér geta Íslendingar lagt mikið af mörkum til hins alþjóðlega samstarfs í verndun umhverfis til þess að tryggja heilbrigði manna með
því að fylgjast með hollustu sjávarafurða. Það er einn liðurinn af mörgum í því að hér verður að vera samstarf milli ríkja því að eins og ekki verður of mikil áhersla lögð á og oft hefur verið bent á: mengunin virðir ekki landamæri. Það er auðvitað ljóst að hafstraumar og sjávarföll hafa líka áhrif til að dreifa mengun. Hér er mikilvægt efni sem samstarf milli ríkja þarf að vera um.
Ef ég held áfram tilvitnun í tillögur hópsins var þriðja atriðið ,,að afla upplýsinga um hvaðan mengun kemur og hvernig hún berst.``
Í fjórða lagi ,,að taka þátt í framkvæmdaáætlun um sameiginlegar rannsóknir á mengun í Norður-Atlantshafi á vegum Oslóar- og Parísarsamningsins um varnir gegn mengun sjávar.``
Í fimmta lagi ,,að skapa grundvöll til sérstakra mælinga ef hér verða mengunaróhöpp sem gætu valdið víðtækum mengunaráhrifum í mengunarlögsögunni, t.d. geislavirk efni og olía. Til þess að ná þessum markmiðum þarf að velja sýni og sýnatökustaði með hliðsjón af hagfræðilegum og líffræðilegum atriðum.``
Ég lýk þessari tilvitnun, herra forseti, en taldi nauðsynlegt að vekja athygli á þessu í þessu sambandi því að ég tel að hér sé um afar mikilvægt atriði að ræða sem menn hafa stundum ekki veitt nægilega athygli eða gleymt að hugsa út í. En ef slys verða á þessu sviði sem annaðhvort valda heilsutjóni eða eyðileggja markaði getur verið erfitt að bæta þar um og ekki víst að það takist með góðu móti þannig að gagn verði að fyrir okkur.
Í 40 ára afmælisriti Evrópuráðsins er bent á það með mjög áhrifaríkum hætti hvernig baráttan fyrir heilsusamlegu umhverfi getur verið úrslitaorusta. Vissulega getur það svo verið ef menn gá ekki að í tíma. Sumir orða það jafnvel svo að jörðin okkar sé í svo mikilli hættu og mengunin sé svo víða að við verðum að vinna sigur í baráttunni við ofnýtingu umhverfisins ef við ætlum að lifa af.
Það er ljóst að það er vandasöm aðstaða sem Evrópuríkin búa við núna þegar þau eru að efla samstarf sitt á flestum sviðum. Þar blasa við aðkallandi verkefni á þessu sviði sem þau þurfa að leysa jafnframt því sem samræmdar eru reglur um hin margvíslegustu efni, þannig að auðvelda megi samskipti, þannig að auðvelda megi flutninga á vörum, fjármagni, þjónustu og fólki. Samtímis því sem þetta er gert geta hvenær sem er komið upp og koma öðru hvoru upp alvarlegar aðkallandi aðstæður sem verður að bregðast við samstundis til þess að ekki leiði af meiri háttar tjón. Þetta verður þeim mun betur ljóst sem menn gera sér grein fyrir því núna að samstarf Evrópubandalagsríkjanna og Austur-Evrópuríkjanna er mjög að aukast og að í Austur-Evrópuríkjunum er mengunin víða miklu alvarlegri en í Vestur-Evrópuríkjunum, þó slæm sé víða, vegna þess að Austur-Evrópuríkin hafa ekki haft ráð á því að búa fyrirtækin þeim mengunarvörnum að nægilegt sé til þess að afstýra ýmiss konar heilsutjóni. Og það þarf ekki að víkja sérstaklega að hinu mikla
Tsjernóbíl-slysi til þess að benda á þetta. En af því slysi hefur álfan ekki jafnað sig.
Við getum nefnt sem dæmi lítið atvik sem mér kemur í hug, herra forseti. Það atvikaðist þannig að í sambandi við fund Evrópuríkjanna um umhverfi og heilbrigði nú í vetur átti ég tal við embættismann sem bar ábyrgð á heilbrigðiseftirliti í Tyrklandi. Ég spurði eins og Íslendingum er gjarnt hvort það vandamál sem við vorum þarna að ræða væri alvarlegt í hans landi. Og það kom í ljós sem oft gerist að það þarf ekki mörg ár til að hugurinn hvarfli frá miklum atburðum, alvarlegum og erfiðum eins og Tsjernóbíl-slysinu. Þessi tyrkneski embættismaður benti á það að milljónir manna í landi hans hefðu búið í landbúnaðarhéraði sem lifði nær eingöngu á terækt. Heils árs uppskera þessara milljóna manna eyðilagðist vegna mengunar frá Tsjernóbíl-slysinu. Ég spurði hvernig unnt hefði verið að eyðileggja þessa uppskeru og svarið var: Við seldum teið Sovétmönnum, þ.e. það land sem menguninni olli varð að taka við uppskerunni. Það er því ljóst að þetta er eitt dæmið enn til viðbótar öllum þeim mörgu dæmum sem við höfum um hið mikla tjón sem með beinum og óbeinum hætti varð, heilsutjón og ómælanlegan félagslegan vanda á þessum svæðum.
Nú er það svo að því er við best vitum um mengandi efni frá iðnaði í iðnvæddum ríkjum álfunnar að það er þar sem 98% af hættulegum iðnaðarúrgangsefnum, mengandi efnum verður til. Það er auðvitað ljóst að svo hlýtur að vera vegna umfangs starfseminnar, en við vitum ekki nægilega mikið um í hversu stórum stíl mengunin hefur orðið í öðrum iðnvæddum ríkjum en hinum vestrænu því að mælingarnar liggja ekki fyrir í sama mæli og e.t.v. eru ekki sömu mælingarstaðlarnir. Ljóst er að vandinn er samt miklu meiri. Ég get greint frá því að ekki alls fyrir löngu höguðu atvikin því svo að ég kom í þá borg Austur-Þýskalands sem talin er verst farin vegna mengunar þar sem umhverfi, loft og land hefur mest spillst af mengun. Þetta er bærinn Bitterfeld. Í Bitterfeld er ástandið þannig að þar þjáist mikill hluti íbúanna af lungna- og öndunarfærasjúkdómum. Mér var greint frá því að þar væri mjög erfitt að fá lyf við þessum sjúkdómi. Ég spurði hvers vegna. Sögumaður gat ekki sagt mér það. Hitt er ljóst að það er auðvitað ekki vandalaust að reka stór iðnfyrirtæki, hvort það eru námur eða vélaverksmiðjur, með vinnuafli sem getur ekki stundað vinnu sína nema með sterkum lyfjum af þessum sökum. Hér er um að ræða sorglega staðreynd en staðreynd þó sem hægt er að bæta úr með réttum aðferðum, með réttum mengunarvarnabúnaði.
Því miður er hér ekki um eitt dæmi að ræða heldur er þetta vandamál hjá ýmsum þjóðum Vestur- og Mið-Evrópu, vandamál sem þær þjóðir standa ráðlitlar
frammi fyrir vegna þess að efnahagur landanna leyfir ekki að þær bregðist við með þeim hætti sem þarf.
Af þessum ástæðum er hið alþjóðlega samstarf í umhverfismálum enn þá nauðsynlegra, enn þá meira
aðkallandi. Og í ljósi staðreynda af þessu tagi var það sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin boðaði til ráðherrafundar heilbrigðisráðherra og umhverfisráðherra, þar sem þeim var til að dreifa, nú í vetur og samþykkti sérstaka yfirlýsingu um heilbrigði og umhverfi, þ.e. evrópskan sáttmála. Það þarf ekki að orðlengja það að höfuðviðfangsefni á þessari ráðstefnu var tenging umhverfisvandans og heilbrigðisvandans eða öllu heldur tenging umhverfis og heilbrigðis.
Við þurfum ekki að vísa sérstaklega í hina alþjóðlegu stefnumörkun í Brundtland-skýrslunni um sameiginlega framtíð okkar til þess að færa rök að nauðsyn þess samstarfs sem þarna var hleypt af stokkunum. Það eru ýmsir þættir í samþykktum sem taka mið af hversdagslífi okkar sem stuðla að því að nauðsynlegt er að tengja þessa þætti saman með miklu eindregnari hætti en áður hefur verið gert. Það er, svo ég víki að því hvað það er sem ég hef sérstaklega í huga, m.a. í umfjölluninni um félagsmálasáttamála Evrópu. Þar er ekki einungis það sem er í venjulegu tali kallað félagsleg réttindi heldur einnig verndun umhverfisins vegna stöðu manna á vinnumarkaðinum og heilsu yfirleitt. Það er m.a. þar sem umhverfisþátturinn kemur inn í og er talinn til félagslegra gæða. Þess vegna er það að 16 Evrópuríki sem hafa fullgilt þann þátt í félagsmálasáttmálanum sem fjallar um heilbrigt umhverfi hvetja til þess að þau sameinist um framkvæmd þessa atriðis og leggja sérstaka áherslu í því sambandi annars vegar á verndun gegn loftmengun og hins vegar verndun gegn vatnsmengun.
Um þá þætti sem ég er nú að ræða um er mjög ítarleg greinargerð skráð í álitsgerð nefndar óháðra sérfræðinga sem fjölluðu um félagsmálasáttmála Evrópu. Álitsgerðin var gefin út í Strasborg seint á síðasta ári og er 11. hefti í nefndarálitum um þetta efni. En eins og hv. þm. kannast við hefur ekki lítið verið rætt í umfjöllun um EFTA og Evrópubandalagið um hina svokölluðu félagslegu vídd en þetta verk sem ég er að vitna til er einmitt hluti af því máli og ekki sá léttvægasti.
Ég get vísað til þess, herra forseti, sem ég sagði fyrir alllöngu síðan þegar við fjölluðum um frv. til laga um breytingu á stjórnarráðslögunum og ég taldi vera svo nátengda þessu frv., að því er varðar þann kafla ræðu minnar sem fjallar um ráðstefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um tengingu heilsu og umhverfis. Sú umræða fór fram þegar ráðstefnu þessari var alveg nýlega lokið og þess vegna var ærið tilefni til að vitna til þess sem þar gerðist.
Til að gera langa sögu stutta vil ég benda á það að í ræðum framkvæmdastjóra Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og framkvæmdastjóra Evrópusvæðisins innan þeirrar stofnunar var höfuðáhersla á það atriði að við yrðum að gera okkur ljóst að þessir tveir þættir lífsins, umhverfi og heilsa, yrðu ekki aðskildir og hið endanlega markmið með hreinu og ómenguðu umhverfi væri góð heilsa fólksins. Þetta var
grundvöllur þessarar ráðstefnu og lykilorðið í sameiginlegri ályktun sem 38 ríki stóðu að, auk alþjóðlegra stofnana eins og m.a. Evrópubandalagsins.
Og þessi sama röksemd liggur til þess að ég er þeirrar skoðunar að það sé heilbrigði manna síst til framdráttar heldur þvert á móti, það sé andstætt heilbrigðisverndinni að draga þá þætti umhverfismála sem nú heyra undir heilbrrn., gegn ráðleggingum þeirra yfirmanna og sérfræðinga sem að því koma, út úr því ráðuneyti til þess að búa til silkihúfu handa hæstv. ráðherra Júlíusi Sólnes. Það tel ég afar illa farið. Ég hvet alla þá hv. þm. sem hafa átt erfitt með að ganga undir jarðarmenið til þess að styðja hæstv. forsrh. í því að leysa vanda formanns Borgfl. með öðrum hætti. Og ég segi það leysa vanda hans með öðrum hætti því ég veit að vandi hæstv. ráðherra, formanns Borgfl., er ærinn af allt öðrum ástæðum en þeim sem eru hér til umræðu í dag því það er náttúrlega ævinlega mikill vandi fyrir formanninn þegar flokkur hans er að liðast í sundur og það hröðum skrefum.