Málmfríður Sigurðardóttir (um atkvæðagreiðslu) :
Virðulegi forseti. Kvennalistinn hefur ákveðið að kalla til baka brtt. sínar á þskj. 720 til 3. umr. með það fyrir augum að e.t.v. mætti þá nást sú niðurstaða á þessu máli sem Kvennalistinn gæti sætt sig við.