Gjöld fyrir lækninga- og sérfræðileyfi
Fimmtudaginn 05. apríl 1990


     Einar Kr. Guðfinnsson:
    Virðulegi forseti. Ég vil í þessu sambandi leyfa mér að vekja athygli á því að á sama tíma og hæstv. fjmrh. gekk í það verk að hækka þessi leyfisgjöld sem hér hafa verið til umræðu kom líka til mjög verulegrar hækkunar á gjaldi atvinnuskírteina skipstjórnarmanna og vélstjóra. Þessi skírteini hafa verulega sérstöðu að því leytinu að þau eru ekki gefin út einu sinni heldur þurfa menn að endurnýja þau á fimm ára fresti, í fyrsta lagi, og í annan stað er alveg ljóst að þessara skírteina þurfa menn að afla sér oftast í upphafi starfsferils síns. Það þýðir einfaldlega að ungir menn, nýliðar í stéttinni, sem eru á leið inn í atvinnu sína sem stýrimenn og skipstjórnarmenn, þurfa jafnvel á fyrstu fimm starfsárum sínum að endurnýja þessi skírteini allt að fimm sinnum. Kostnaðurinn við þetta var fyrir áramótin 2.200 kr. í hvert skipti en fór upp í 12.000 kr. með reglugerðarbreytingu hæstv. fjmrh.
    Farmanna- og fiskimannasamband Íslands ritaði hæstv. fjmrh. bréf af þessu tilefni og vakti athygli á þessu vegna þess að nú eru í gangi mjög viðkvæmir kjarasamningar Farmanna- og fiskimannasambands Íslands og LÍÚ. Í bréfinu segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Farmanna- og fiskimannasamband Íslands telur að umrædd hækkun sem er á bilinu 350--570% sé í engu samræmi við þá hugmynd um hækkun kaupliða í kjarasamningum milli yfirmanna á fiskiskipum og kaupskipum og viðsemjenda þeirra. Því sé nauðsynlegt til að greiða fyrir kjarasamningum að hækkun atvinnuskírteina skipstjórnarmanna og vélstjóra verði dregin til baka.``