Fiskvinnslustefna
Fimmtudaginn 05. apríl 1990


     Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
    Virðulegur forseti. Af hálfu sjútvrn. hefur, eins og kunnugt er, á undanförnum missirum verið lögð höfuðáhersla á mótun fiskveiðistefnunnar. Þessi áhersla er mjög eðlileg þegar haft er í huga að núgildandi lög um stjórn fiskveiða renna út í lok þessa árs, enda er lögbundið að unnið skuli að mótun þessarar stefnu af sérstakri nefnd á gildistíma núgildandi laga.
    Frv. það um stjórn fiskveiða sem er afrakstur af störfum nefndarinnar er nú til umfjöllunar hér á Alþingi og ríður á miklu að takast megi að afgreiða það fyrir þinglok í vor. Þær reglur sem á hverjum tíma gilda um stjórn fiskveiða skipta að sjálfsögðu sjávarútveginn allan miklu máli, ekki síður fiskvinnsluna en fiskveiðarnar. Mótun reglna um stjórn fiskveiða er því veigamikill þáttur í mótun fiskvinnslustefnu. Í nefndinni sem samdi frv. voru m.a. fulltrúar fiskvinnslunnar og áttu sér stað miklar umræður um hvernig hagsmunir íslenskrar fiskvinnslu í samkeppni um hráefnið yrðu best tryggðir.
    Eins og gengur voru ólíkar skoðanir uppi um ýmsa þætti málsins innan nefndarinnar og verður að skoða frv. nefndarinnar sem tilraun til málamiðlunar. Meðal atriða í frv., sem ég vil sérstaklega benda á og varða hagsmuni vinnslunnar, eru ákvæði um að hækka álag vegna útflutnings á þorski og ýsu úr 15% í 20% og að vigtun á gámafiski skuli tekin til sérstakrar skoðunar.
    Auk þessarar stefnumótunar er að sjálfsögðu af hálfu stjórnvalda unnið að fjölmörgum málum er beinast að því að auka verðmætasköpun sjávarútvegsins með það fyrir augum að auka arðsemi fyrirtækjanna sem þar starfa.
    Ég vil aðeins nefna nokkur dæmi. Nú er á vegum sjútvrn. unnið að undirbúningi sérstaks gæðaátaks sem ætlað er að ná til flestra þátta í starfsemi sjávarútvegsfyrirtækja. Hafa nokkur fyrirtæki verið fengin til samstarfs og mun þeirri reynslu sem fæst af þessu starfi verða miðlað til annarra fyrirtækja. Á vegum starfsfræðslunefndar fiskvinnslunnar hafa frá
árinu 1986 verið haldin námskeið fyrir meira en 6000 starfsmenn í fiskvinnslufyrirtækjum. Þá hefur nefndin staðið fyrir viðamikilli útgáfu á námsefni um störf í fiskvinnslu.
    Í byrjun síðasta árs tók til starfa nefnd sem unnið hefur að bættri nýtingu afla. Verkefni nefndarinnar hafa í upphafi beinst að því að auka nýtingu sjávarafla um borð í frystiskipum. Starf nefndarinnar er þegar farið að skila árangri og hefur í sumum tilvikum tekist að auka nýtingu flaka um borð í frystitogurum um allt að 3%. Fjölmörg önnur verkefni eru í vinnslu hjá nefndinni.
    Nýverið var komið á aflamiðlun sem hefur það hlutverk að skipuleggja útflutning á óunnum fiski og stuðla að meiri dreifingu afla innan lands. Í stjórn aflamiðlunar eiga sæti fulltrúar frá veiðum og vinnslu auk fulltrúa frá Verkamannasambandi Íslands. Ég bind miklar vonir við starfsemi aflamiðlunar og vona að stofnun hennar stuðli að eðlilegu jafnvægi á milli

ólíkra hagsmuna varðandi ráðstöfun á takmörkuðum afla.
    Á vegum sjútvrn. var sett reglugerð í gær um útflutning á flökum og flöttum fiski. Miðar reglugerðin að því að tryggja að gæði þess fisks sem þannig er fluttur út verði sem mest og spilli ekki þeim orðstír sem fer af afurðum íslenskra fiskvinnslustöðva.
    Ég er þeirrar skoðunar að setja þurfi svipaðar reglur um heilan óunninn fisk sem fluttur er út með fiskiskipum og gámum. Það krefst hins vegar meiri undirbúnings en ráðuneytið stefnir að því að setja slíka reglugerð á þessu ári.
    Ýmis fleiri atriði af þessu tagi mætti nefna en ég læt hér staðar numið. Samanlagt myndar löggjöfin um stjórn fiskveiða og þær sérstöku aðgerðir sem ég hef nefnt mikilvæga þætti í fiskvinnslustefnu stjórnvalda. Í þessu sambandi mega menn þó aldrei gleyma því að hornsteinn atvinnulífsins og þar á meðal fiskvinnslunnar hlýtur að vera frjálsræði þeirra er í greininni starfa til að taka þær ákvarðanir er þeir telja rekstri sínum hagfelldastar.
    Með ríkisforsjá ná menn aldrei viðlíka hagkvæmni og með markaðsbúskap. Það sanna dæmin. Mikilvægasta fiskvinnslustefnan er því að skapa sjávarútveginum viðunandi rekstrarskilyrði. Það hefur því miður ekki alltaf tekist sem skyldi þótt mikill árangur hafi vissulega náðst á undanförnum mánuðum. Brýnasta hagsmunamál fiskvinnslunnar og sjávarútvegsins í heild hlýtur að vera að viðhalda þeim árangri sem hefur náðst í baráttunni fyrir bættum rekstrarskilyrðum. Með því móti skapast svigrúm til að greiða niður þær miklu skuldir sem hafa safnast upp. Hlutverk stjórnvalda er jafnframt að tryggja sambærileg starfsskilyrði fyrir íslenskan sjávarútveg og helstu keppinauta okkar á alþjóðamarkaði. Það er því miður við ramman reip að draga þar sem við eigum í samkeppni við þjóðir og bandalög er búa við ríkisstyrktan sjávarútveg og beita tollum og öðrum viðskiptahindrunum.