Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að leggja fyrir hæstv. fjmrh. svohljóðandi fsp.:
,,1. Til hvaða aðgerða hyggst ríkisstjórnin grípa til að tryggja sem best skil á virðisaukaskatti?
2. Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar til að koma í veg fyrir ,,svarta atvinnustarfsemi`` eftir að virðisaukaskattskerfi var tekið upp?``
Það er almennt álitið að ,,svört atvinna`` og skattsvik séu í vexti og margir óttast að við upptöku virðisaukaskatts með nýjum greinum sem verða að standa skil á skatti sé veruleg hætta á ferðum.
Aðilar sem reka fyrirtæki telja að þegar hafi dregið úr viðhaldsvinnu í byggingarvinnu hjá einstaklingum þar sem þeir sem bjóða upp á nótulaus viðskipti og afslátt hafi stækkað sína hlutdeild við upptöku virðisaukaskatts. Talið er að staðgreiðsla skatta hafi einnig aukið áráttu til skattsvika. Nú reynir á hæstv. fjmrh. og hæstv. ríkisstjórn hvort menn hafa þrek og þor til að gera ráðstafanir sem duga.
Það er kunnara en frá þurfi að segja að gerðar hafa verið, fyrir allmörgum árum, ítarlegar tillögur sem eru á þingskjali um hvernig menn eigi að bregðast við og hvernig menn eigi að reyna að koma í veg fyrir skattsvik. Þar má nefna að lagt var til að einfalda öll skattalögin og fækka undanþágum, endurskoða
ákvæði um refsingu og álag, setja ný refsiákvæði um stórfelld skattsvik inn í almenn hegningarlög þar sem jafnvel fangelsisdómur í mörg ár er lagður til.
Ég spyr hæstv. fjmrh. hvort eitthvað slíkt sé í endurskoðun eða á prjónunum til að koma í veg fyrir þessi miklu skattsvik.
Enn fremur voru mörg fleiri atriði sem lögð voru til.
Mér verður líka oft hugsað til þess hvort ekki væri rétt, miðað við allan þann orðróm sem er í gangi, að gera sérstaka úttekt á umfangi skattsvika, slíkt er hægt að gera með mjög einföldum og ódýrum hætti, t.d. með einfaldri spurningakönnun, ég held að það væri mikilvægt á þessu stigi, og marka síðan ákveðnar aðgerðir til að tryggja að við búum í ríki þar sem allir eru jafnir fyrir lögum og menn komast ekki upp með svik og verða að greiða keisaranum það sem keisarans er.