Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Í upphafi vek ég athygli á því að dagurinn í dag, 5. apríl, er fyrsti gjalddagi virðisaukaskatts eftir að hann var innleiddur hér á Íslandi og eru skilin fyrir gjaldatímabilið janúar og febrúar. Það liggur þess vegna ekki fyrir fyrr en á næstu dögum hvernig fyrstu skil í virðisaukaskatti koma út, en það verður auðvitað mjög fróðlegt að skoða þá reynslu.
    Það er mikilvægt einnig, sem svar við þessari spurningu, að átta sig á því að einn af meginkostum virðisaukaskattsins umfram söluskatt er að innheimta og eftirlit með álagningu verða mun öruggari. Í innheimtu virðisaukaskattsins er á vissan hátt fólgið sjálfvirkt öryggi þar sem greiddur skattur kemur til frádráttar innheimtum skatti hjá öllum öðrum en hinum endanlega neytanda.
    Eins og hv. alþm. er kunnugt beitti ég mér fyrir því á fyrri hluta síðasta árs að innheimtuaðgerðir vegna vanskila á söluskatti voru hertar allverulega og var það m.a. gert til að undirbúa að þegar virðisaukaskatturinn tæki gildi væri innheimtukerfið orðið virkara en það var áður.
    Það er ánægjulegt að þessar aðgerðir sem fjmrn. beitti sér fyrir til að auka og herða innheimtuna á sl. ári skiluðu verulegum árangri, og er rétt að vekja athygli þingmanna á því að í skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrir árið 1989 kemur m.a. fram að innheimtuaðgerðirnar sl. sumar skiluðu umtalsverðum árangri. Nú telur Ríkisendurskoðun brýnt að þessari starfsemi verði haldið áfram. Það munum við gera í fjmrn. og tryggja að sá góði árangur sem náðist með hertum innheimtuaðgerðum á sl. ári haldist á þessu ári.
    Hvað síðari spurninguna snertir er rétt að vekja athygli á því að öryggi í álagningu og innheimtu virðisaukaskatts er tvímælalaust mun meira en í söluskattskerfinu, m.a. vegna þess að margvíslegri óvissu er eytt varðandi skattskyldumörkin og að heilsteyptara og rökréttara skattkerfi kemur í stað þess sem fyrir var. Undandráttur ætti einnig að minnka vegna þess, eins og ég gat um áðan, að sá sem dregur veltu undan virðisaukaskatti kemst ekki hjá því að greiða sjálfur skatt af aðföngum sínum. Þrátt fyrir þetta er það rétt hjá fyrirspyrjanda að þörf er á að hafa virkt eftirlit og í upphafi þessa árs var lögð rík áhersla á að upplýsa bæði fyrirtæki og hinn almenna borgara um þær reglur sem gilda um rétt skattskil. Í því sambandi vil ég greina frá því að í dag verður tilkynnt um sérstaka herferð fjmrn. sem fram mun fara á næstu vikum þar sem rík áhersla verður lögð á það að kynna fyrir almenningi hvernig peningakassar eiga að líta út, hvernig ber að nota þá við afgreiðslu í verslunum þannig að þeir skuli ávallt vera lokaðir við upphaf afgreiðslu gagnvart hverjum einstaklingi svo að almenningur geti haft virkt eftirlit með því hvort sá sem skipt er við fylgir lögum og reglum í þessum efnum. Sé aftur á móti afgreitt og gefið til baka upp úr opnum kassa án þess að inn sé stimplað er

augljóslega verið að leggja drög að því að viðkomandi fyrirtæki geti skotið undan skattinum.
    Í þessari kynningarherferð verður einnig lögð áhersla á að útskýra nákvæmlega hvernig nótur eigi að líta út þannig að almenningur geti fylgst með því að öllum slíkum skilyrðum sé fullnægt þegar þeir eiga viðskipti og vakin líka athygli á því að almennur borgari sem tekur þátt í nótulausum viðskiptum glatar verulegum réttindum. Ef hann verður síðan fyrir tjóni vegna þessara viðskipta eða varan eða þjónustan reynist ekki uppfylla þær kröfur sem ætlast var til í upphafi getur hinn almenni borgari ekki leitað réttar síns hjá viðkomandi verslun eða framkvæmdaaðila ef um nótulaus viðskipti hefur verið að ræða.
    Í þessu sambandi er ætlunin að leita liðsinnis hjá hinum almenna borgara til þess að tryggja virkt eftirlit í framkvæmd. Meginástæðan er auðvitað sú að virðisaukaskatturinn er vörslufé. Hann er ekki skattur viðkomandi fyrirtækis eða rekstraraðila heldur er hann vörslufé úr almennum sjóði landsmanna sjálfra sem viðkomandi rekstraraðila hefur verið falið að geyma um takmarkaðan tíma.
    Ég vænti þess að þessar aðgerðir muni þess vegna á næstunni skila jafnjákvæðum árangri og hinar hertu innheimtuaðgerðir sem fjmrn. beitti sér fyrir á sl. ári skiluðu.