Fyrirspyrjandi (Guðni Ágústsson):
Hæstv. forseti. Ég hef leyft mér að leggja fyrir hæstv. dómsmrh. svohljóðandi fyrirspurn:
,,1. Hvernig er bifreiðaskoðun í Vestmannaeyjum nú hagað?
2. Hver eru framtíðaráform um tilhögun bifreiðaskoðunar í Vestmannaeyjum?
3. Hvernig er tilhögun ökuprófa í Vestmannaeyjum?``
Engin kerfisbreyting hefur jafnillilega snúist upp í andhverfu sína og stofnun Bifreiðaskoðunar Íslands sem tók við af Bifreiðaeftirliti ríkisins. Skattar og skoðunargjöld hafa margfaldast og heilt bákn hefur verið stofnað og í mörgum tilfellum hefur verið farið allt öðruvísi að en heitið var í frv. um þetta mál á sínum tíma hér í þinginu.
Vestmannaeyjar eru glöggt dæmi um þá mörgu sem hafa farið illa út úr þessu máli. Vestmannaeyjar eru eyja hér fyrir sunnan land þar sem búa 5 þús. manns. Þar þarf allt að vera til staðar í einhverjum mæli alveg eins og í litlu ríki.
Við þessa kerfisbreytingu hafa skapast veruleg vandamál í Vestmannaeyjum. Menn hafa því miður horfið áratugi til baka í þjónustu við fólkið þar og bifreiðar þess. Núna eru t.d. bifreiðar skoðaðar um miðjan mars. Síðan þóknast eftirlitsmönnunum ekki að koma aftur fyrr en í ágústlok eða eftir hálft ár. Það eru dæmi um að menn hafa verið með bifreiðar sínar í viðgerð á þessum tíma. Þeir verða þá jafnvel að draga þá um borð í Herjólf, draga þá upp að Selfossi eða austur á Hvolsvöll til þess að koma þeim á götuna. Lögreglan getur ekki framfylgt lögum vegna þessa ástands með sama hætti og annars væri.
Ég tel þetta fyrirkomulag óviðunandi. Mér fannst Vestmannaeyjar vera glöggt dæmi þar sem bæri að stofna einmenningsstöð, sem kölluð var, hafa þar
bifreiðaeftirlitsmann sem hefði þetta að starfi.
Hvað ökuprófin varðar verða krakkar að bíða þar dögum eða vikum saman eftir að fulltrúar komi af fastalandinu til Vestmannaeyja. Hvers vegna var sú leið ekki valin að skipa heimamann í þetta verk sem hefði það sem aukastarf? Það hlyti að vera ódýrara. Þar eru menn sem hafa þessa menntun og þekkingu til staðar og hefðu getað tekið þetta sem aukastarf með öðru og það hefði orðið ódýrara fyrir alla aðila og þjónustan náttúrlega til staðar í bænum.
Ég vænti þess að hæstv. dómsmrh. gefi hér glögg svör, ekki síst um það hvort ekki megi breyta þessu fyrirkomulagi á þann veg að þjónustan verði heima í þessu litla ríki sem Vestmannaeyjar vissulega eru.