Fyrirspyrjandi (Árni Gunnarsson):
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. innilega fyrir hans svör. Þetta eru vafalítið einhver bestu svör sem gefin hafa verið í fyrirspurnatíma á þessum morgni á hinu háa Alþingi og þessi ákvörðun hans um að gefa út reglugerð í næstu viku um niðurfellingu á virðisaukaskatti á snjómokstri er mjög skynsamleg.