Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Með þessari þáltill. fer ríkisstjórnin þess á leit að Alþingi heimili staðfestingu rammasamnings um samvinnu á sviði vísinda og tækni milli Íslands og Evrópubandalagsins sem gerður var í Brussel 30. okt. 1989. Markmið þessa samnings er að auðvelda og auka samstarf Íslands og Evrópubandalagsins á sviði vísinda, tækni, rannsókna og þróunar. Þessu markmiði yrði náð m.a. með heimsóknum og skiptum á vísindamönnum, verkfræðingum og tæknimönnum. Samningurinn er forsenda fyrir þátttöku Íslands í viðamiklum vísindaáætlunum Evrópubandalagsins en um fyrirkomulag slíkrar þátttöku skal síðan samið í hverju tilviki.
Ég leyfi mér, virðulegi forseti, að leggja til að tillögunni verði að lokinni þessari umræðu vísað til síðari umræðu og utanrmn.