Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Ég vænti þess að hæstv. utanrrh. sé hér nærstaddur því ég treysti mér ekki til að hefja ræðu án þess að hann sé viðlátinn. ( Forseti: Forseti hefur gert ráðstafanir til þess að láta hæstv. utanrrh. vita.)
Virðulegur forseti. Þar sem hæstv. ráðherra er kominn í þingsal ætla ég að að halda áfram ræðu. Þetta er í annað sinn sem ég kveð mér hljóðs varðandi skýrslu hæstv. ráðherra. Það eru nokkur atriði sem ég ætla að leyfa mér að taka upp í framhaldi af þeirri umræðu sem fram fór í síðustu viku um þessi mál.
Ég varði litlum tíma í fyrri ræðu minni til að fjalla um stöðu mála varðandi könnunar- og undirbúningsviðræður milli EFTA og Evrópubandalagsins um svonefnt evrópskt efnahagssvæði. Það er því ástæða til þess af minni hálfu að fara um það nokkrum orðum frekar og inna hæstv. ráðherra þar eftir ýmsum atriðum sem snerta málsmeðferðina nú hina síðustu daga og vikur. Þar hefur ýmislegt verið á döfinni sem æskilegt er að mínu mati að hæstv. utanrrh. veiti upplýsingar um og svari til um. Ég vænti þess að það sé ljúft af hálfu hæstv. ráðherra að koma inn á þau efni hér síðar í umræðunni þar sem hann hefur sjálfur nú alveg nýverið verið á vettvangi erlendis, á vettvangi utanríkisráðherra EFTA-landanna þar sem þessi mál voru til sérstakrar umræðu.
Það stendur svo að í þessum viðræðum EFTA-ríkjanna við Evrópubandalagið hafa orðið ákveðin þáttaskil þessar vikurnar. Af hálfu utanríkisráðherra EFTA-ríkjanna var tekið fram, samkvæmt fréttatilkynningu frá því í fyrradag, 3. apríl sl., sem hæstv. utanrrh. sendi út, að utanríkisráðherrarnir hafi staðfest ásetning sinn um að ganga til samninga um evrópskt efnahagssvæði sem
tryggði óhindruð vöruviðskipti, þjónustuviðskipti, fjármagnsflutninga og atvinnu- og búseturéttindi, eins og það er orðað í fréttatilkynningunni. Þetta er samkvæmt þeirri áætlun um þessar viðræður sem fyrir hefur legið. Embættismannanefndin sem vann að málinu fyrir báða aðila lauk störfum 20. mars sl. og utanríkisráðherrar EFTA-landanna voru þarna að taka sólarhæðina að sínu leyti. Það stefnir því greinilega í það af hálfu forustumanna EFTA-ríkjanna að vilji þeirra er að taka upp þessar formlegu viðræður um evrópskt efnahagssvæði.
Ég vil vekja athygli á því og minna á það hér að minn þingflokkur hefur ekki fjallað um þetta mál nú nýlega og raunar ekki með ákvarðandi hætti síðan 29. nóv. sl. þegar þingflokkurinn gerði svohljóðandi samþykkt, með leyfi virðulegs forseta:
,,Þingflokkur Alþb. samþykkir fyrir sitt leyti að Ísland verði áfram þátttakandi í viðræðum EFTA og EB. En áður en til þátttöku í beinum og formlegum samningaviðræðum komi verði málið tekið til sérstakrar umfjöllunar og afgreiðslu í ríkisstjórn og stjórnarflokkum. Þingflokkurinn ítrekar þá stefnu Alþb.
varðandi samninga EFTA og Efnahagsbandalagsins að fullur fyrirvari verði hafður um þátttöku og fjárfestingu útlendinga í íslensku efnahags- og atvinnulífi. Alþb. hefur því almennan fyrirvara við málið á þessu stigi.
Þingflokkurinn telur enn fremur brýnt að tryggja að stjórnarflokkarnir eigi beinan aðgang að meðferð málsins á hverju stigi á næstu mánuðum. Þingflokkurinn telur óhjákvæmilegt að utanrrh. geri viðmælendum sínum grein fyrir fyrirvörum ríkisstjórnarinnar og ríkisstjórnarflokkanna varðandi fjárfestingu útlendinga og þátttöku þeirra í íslensku atvinnulífi. Þingflokkurinn leggur áherslu á að áfram verði haldið tvíhliða viðræðum við forustumenn einstakra ríkja Evrópubandalagsins, sérstaklega um fríverslun með sjávarafurðir.``
Þetta var, virðulegur forseti, ályktun þingflokks Alþb. frá 29. nóv. sl. Eins og þar kemur fram hefur þingflokkur Alþb., einn af stjórnarflokkunum, almennan fyrirvara við málið. Hann áskildi sér rétt til þess að taka það fyrir á nýjan leik og að það kæmi til sérstakrar umfjöllunar og afgreiðslu í ríkisstjórn og stjórnarflokkum áður en gengið yrði til formlegra samningaviðræðna. Ég hef þegar minnt á það í mínum þingflokki að á þeim vettvangi þurfi að taka á þessu máli í ljósi þeirrar niðurstöðu sem fram er komin úr hinum svokölluðu undirbúningsviðræðum og hæstv. ráðherra var að fjalla um með sínum starfsbræðrum hinn 3. apríl sl. Af hans hálfu liggur það mat fyrir að ganga til þessara formlegu viðræðna. Alþb. á eftir að taka afstöðu til þess fyrir sitt leyti hvort það styður þá stefnu.
Ég hef fyrir mitt leyti ítrekað bent á það og komið því á framfæri að ég tel að ekki séu efni til þess og það sé ekki skynsamlegt af Íslands hálfu að ganga til formlegra samningaviðræðna á þeim grundvelli sem lagður hefur verið varðandi hið evrópska efnahagssvæði. Þær upplýsingar sem fram hafa komið um þessi mál, m.a. inn í Evrópustefnunefnd Alþingis, hafa í engu orðið til að breyta þessu viðhorfi mínu. Mér finnst í rauninni margt hafa komið fram nú að undanförnu sem fremur styrki þetta viðhorf og færi rök að því að ekki sé farsælt fyrir Ísland að gerast þátttakandi í formlegum samningaviðræðum um þessi efni. Ég er ekki í því sambandi að blanda inn í það mat þeirri ókyrrð sem ríkt hefur að undanförnu í sambandi við þessar umræður á vettvangi
Evrópubandalagsins, og einnig að nokkru leyti meðal EFTA-ríkjanna. Það er mál út af fyrir sig sem ég ætla að gera nokkuð að umtalsefni síðar. En það sem hefur orðið til þess að ég er enn eindregnar en áður andvígur því að gengið verði til formlegra samningaviðræðna af Íslands hálfu er það sem fram hefur komið, m.a. varðandi stofnanaleg tengsl sem gert er ráð fyrir að komið verði á milli Evrópubandalagsins og hins fyrirhugaðaða evrópska efnahagssvæðis, svo og það kerfi varðandi eftirlit og dómstóla sem ráðgert er að komið verði á.
Það liggur fyrir, nú þegar könnunarviðræðum er lokið, að ekki hefur verið gengið frá þessum efnum.
Það liggur jafnframt fyrir að hæstv. utanrrh. er reiðubúinn að ganga mjög langt í því að afsala íslensku valdi yfir til yfirþjóðlegra stofnana, samþjóðlegra stofnana eins og sumir kjósa að kalla þær, í að skerða mjög verulega lagasetningarvald Alþingis sem fælist að nokkru í samningnum sem á að taka til mjög víðtækra og viðamikilla atriða varðandi íslensk efnahagsmál, félagsmál og margt fleira sem í undirbúningi er varðandi þennan samning.
Það sama gildir í sambandi við dómskerfi og dómsvald að einnig á því sviði er ráðgert, samkvæmt þeim grundvelli, að svo miklu leyti sem hann liggur fyrir, að Ísland afsali sér yfir til sameiginlegs dómstóls hins evrópska efnahagssvæðis dómsvaldi í landinu. Hér er auðvitað um mjög stór og alvarleg málefni að ræða. Það er að mínu mati ekki forsvaranlegt að fara að gerast þátttakandi í fjölþjóðlegum viðræðum á meðan ekki liggur fyrir hvaða grundvöllur getur komið til greina í sambandi við þessi stóru málefni.
Ég vil líka benda á það að sá andi svífur yfir vötnum þessara væntanlegu viðræðna að þar eigi fyrirvarar hinna einstöku ríkja að verða sem fæstir. Áherslan af hálfu Evrópubandalagsins hefur verið í þá átt að það þýði ekkert fyrir EFTA-ríkin að koma fram með marga fyrirvara inn í þessar væntanlegu samningaviðræður. Það var haft eftir forustumanni EFTA og talsmanni EFTA-hópsins, Anitu Gradin, hinum sænska ráðherra, í fréttum í gær að tímamörkum þessara viðræðna væri stefnt í voða, eins og það var orðað í fréttinni, ef undanþágulistinn yrði ekki styttur verulega.
Við þekkjum það líka úr málflutningi hæstv. utanrrh. og hæstv. viðskrh. að þeir eru þeirrar skoðunar að það eigi í rauninni að gera kröfu til mjög fárra undanþága af Íslands hálfu. Þeir vilja ganga mjög langt inn á lagagrundvöll Evrópubandalagsins, ,,acquis communautaire`` og eru í rauninni með sárafáa fyrirvara af Íslands hálfu inn í þær viðræður. Ég hygg að þeir fyrirvarar séu færri en gerist hjá sumum öðrum EFTA-ríkjunum án þess að ég hafi kannað það sérstaklega. Og ég tel það ekki stýra góðri lukku að við séum að fara inn í samningaviðræður með það vegarnesti sem þarna liggur fyrir varðandi möguleika á því að gera fyrirvara af hálfu Íslands. Allt það svið er í rauninni með allt öðrum hætti en ég tel skynsamlegt að við eigum aðild að og tökum þátt í í sambandi við þennan fyrirhugaða samning um evrópskt efnahagssvæði. Því ræð ég eindregið frá því að út á þennan vettvang verði farið og mun beita mér í mínum þingflokki ákveðið gegn því að þingflokkurinn fyrir sitt leyti standi að því að styðja hæstv. utanrrh. í því að hefja þessar formlegu samningaviðræður. Þarna vil ég að ekkert fari á milli mála, virðulegur forseti.
Ég vil líka vekja athygli á því að fleiri stjórnaraðilar og málgögn stjórnarflokkanna hafa tjáð sig í þá veru að þar er gert ráð fyrir því að málin beri að með öðrum hætti en nú er gert ráð fyrir af hæstv. utanrrh. og samstarfsmönnum hans. Ég leyfi
mér að vísa til þess leiðara sem ritaður var í dagblaðið Tímann í gær, 4. apríl, undir fyrirsögninni ,,Ísland og Evrópa`` þar sem fjallað er í fyrstu um orðahnippingar milli Uffe Ellemann-Jensen annars vegar og annarra ráðherra og ráðherra EFTA-ríkjanna hins vegar, en þar hefur hæstv. utanrrh. átt hlut að máli og tekið þátt í orðsendingum og greinaskrifum. Í lok leiðara stjórnarmálgagnsins Tímans segir eftirfarandi, með leyfi forseta:
,,Sannleikurinn er sá að þótt af formsástæðum væri rétt að Íslendingar tækju þátt í EFTA--EB viðræðum þeim sem nú eiga sér stað hefur aldrei verið fullvissa í nokkurs manns hug um að þessar viðræður gætu fullnægt þörfum Íslendinga eins og þær birtast í margvíslegum fyrirvörum um efni slíkra samninga. Íslendingar hafa fyrirvara um svo að segja alla þætti samningaviðræðnanna nema að því er tekur til gagnkvæms viðskiptafrelsis með sjávarvörur og almennan iðnvarning. Hvernig þessu reiðir af í núverandi samningalotu veit enginn en fyrirvarastefnan er eftir sem áður nauðsynleg. Það verða leiðtogar Evrópubandalagslanda að skilja, þar á meðal danskir ráðherrar en fyrst og fremst Íslendingar sjálfir.``
Ef þetta er vegarnestið sem Framsfl. heldur að hæstv. utanrrh. gangi fram með á vettvangi EFTA-ríkjanna við Evrópubandalagið í væntanlegum formlegum samningaviðræðum þá veður Framsfl., flokkur hæstv. forsrh., í mikilli villu í sambandi við þann málatilbúnað sem fyrir liggur af Íslands hálfu eftir könnunar- og undirbúningsviðræður. Ég hlýt að vekja alveg sérstaka athygli á því að stjórnarmálgagnið Tíminn er hér að draga upp allt aðra mynd af þessum fyrirhuguðu viðræðum en fyrir liggur í reynd og fyrir liggur úr máli hæstv.
utanrrh. og málsskjölum. Þar fer ekkert á milli mála. Og ég tel það satt að
segja sæta furðu og vera óviðeigandi með öllu ef svo háttar til um hæstv. ríkisstjórn að hún sé að leggja upp í formlegar samningaviðræður með hæstv. utanrrh. í fararbroddi án þess að hafa sett sig inn í grundvallarefnisþætti málsins og hvernig fyrirhugað er að standa að þessum viðræðum af Íslands hálfu.
Ég er ekki að væna ritstjóra Tímans um það að mæla hér þvert um hug eða að koma vísvitandi fram með blekkingar. En hér eru staðlausir stafir á ferðinni varðandi upplegg þessara væntanlegu samningaviðræðna. Ég held að rétt væri fyrir ritstjórn Tímans að athuga málið betur og koma skýrari upplýsingum á framfæri við lesendur sína. Kannski er þörf á því að það komi einnig fram við hæstv. ráðherra Framsfl. í ríkisstjórn.
Það er einmitt meginatriði nú þegar stefnt er í þessar formlegu samningaviðræður að þar ríkir sá andi að fyrirvarar skuli vera sem fæstir og Ísland hefur sárafáa fyrirvara gert. Þar fyrir utan eru þeir fyrirvarar samningsatriði. Þeir eru samningsatriði m.a. um grundvallarhagsmunamál þjóðarinnar í sambandi við fiskveiðimálefnin. Einnig þeir fyrirvarar sem snúa að þeim efnum og náttúruauðlindum almennt eru samningsatriði í væntanlegum viðræðum en ekkert sem
tekið hefur verið út af borðinu. Eftir þessu hljóta menn að taka og taka afstöðu til málsins í ljósi þess.
Síðan hefur það verið að gerast, virðulegur forseti, að á sama tíma og ráðherrar EFTA-ríkjanna ásamt hæstv. utanrrh. Íslands berja sér á brjóst og segjast vera reiðubúnir að ganga til formlegra samningaviðræðna berast þær raddir frá Evrópubandalaginu að það sé ekki reiðubúið að taka við EFTA sem samningsaðila miðað við þau atriði sem fyrir liggja, m.a. langa fyrirvaralista. Þing Evrópubandalagsins, að vísu valdalítil stofnun, hefur áskilið sér rétt til að taka mál þetta upp til sérstæðrar umræðu. Það hefur einnig komið fram, sem ekki sætir út af fyrir sig mikilli furðu, að Austurríki, eitt af EFTA-ríkjunum, sem hefur lagt inn formlega umsókn um aðild að Evrópubandalaginu, telur sig nú eiga möguleika á því að fá áheyrn sinna mála miklu fyrr en áður var talið. Ef það gengur eftir verður Austurríki rammflækt í samningaumleitanir við Evrópubandalagið um beina aðild, hugsanlega á sama tíma og þessar samningaviðræður EFTA-ríkjanna við Evrópubandalagið standa yfir.
Ég hef oft og ítrekað vakið athygli á því hversu veikur sá grunnur er og það bindiefni sem tengir saman EFTA-ríkin. Ég hef vakið athygli á því að hagsmunir Íslands og okkar sérstöku viðfangsefni í samningaviðræðum við Evrópubandalagið munu ekki sækja mikinn stuðning í kröfugerð annarra EFTA-ríkja, iðnríkjanna eins og Svíþjóðar svo að dæmi sé tekið, hvað þá til Austurríkis sem er að leita allra leiða til að komast fyrr en seinna að sem aðili að Evrópubandalaginu. Ég hef líkt þessum samningsaðila, þessari stoð í þessu tveggja stoða kerfi, sem stundum hefur verið kallað svo, þýtt eftir ólánlegri ensku, við skakka turninn í Písa. Þannig er hinum sameiginlegu málefnum EFTA í rauninni komið og lítið á að treysta í þeim efnum.
Hvort sú staða sem þarna hefur verið að koma í ljós skýrar en áður hefur orðið til þess að Alþfl. virðist vera farinn að endurmeta stöðuna með nýjum og sérstæðum hætti skal ég ekki fullyrða. En eitthvað hlýtur að hafa gerst á þeim bæ vegna þess að komið hefur fram í þessari umræðu frá einum talsmanni Alþfl., hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni, að hann telji að Íslendingar verði af fullri alvöru að hugsa um mögulega inngöngu í Evrópubandalagið. Einn af flokksmönnum hæstv. utanrrh. kom þessu hér á framfæri sl. föstudag í umræðu um utanríkismál. Ég undrast það satt að segja að ekki skuli hafa verið meira tekið eftir þessum ummælum en raun ber vitni. Í rauninni eru hér stórtíðindi á ferðinni. Og það kannski enn frekar þegar tekið er tillit til þess að hæstv. utanrrh. hefur svo samkvæmt hans eigin málgagni viðrað þá skoðun á erlendri grund, úti í Kaupmannahöfn á fundi sem þar var haldinn í Jónshúsi í síðasta mánuði, að fari svo að Svíþjóð og Noregur sæki um aðild að Evrópubandalaginu eða gengju í Evrópubandalagið, þá mundu, eins og Alþýðublaðið orðar það hinn 16. mars sl., Íslendingar fylgja með. ,,Svaraði ráðherra því til``, segir
Alþýðublaðið, ,,að ljóst væri að þá mundu Íslendingar fylgja með.``
Þetta hefur Alþýðublaðið eftir hæstv. utanrrh. 16. mars sl. Síðan gerist það að einn af talsmönnum flokksins í utanríkismálum kemur hér upp í ræðustól og kynnir það sjónarmið sitt að Íslendingar verði af fullri alvöru að hugsa um mögulega inngöngu inn í Evrópubandalagið. Samkvæmt þessu er það að verða dagljóst að Alþfl. er að búa sig undir það, fyrstur stjórnmálaflokka á Alþingi Íslendinga, að taka upp þá stefnu að Ísland eigi að fara að búa sig undir formlega umsókn um aðild að Evrópubandalaginu. Ég vil ekki leggja meira í orð hæstv. utanrrh. en hans eigin flokksmálgagn gerir hinn 16. mars sl. Vafalaust voru næg vitni í Jónshúsi til að geta greint frá því hvað hæstv. ráðherra sagði. Og hann hefur ekki haft fyrir því að gera, a.m.k. hér á Alþingi og ekki mér vitanlega, athugasemd við þessa frásögn Alþýðublaðsins af sínum ummælum.
Það hlýtur að sjálfsögðu að skipta þá aðila nokkru máli sem standa að ríkisstjórn með Alþfl. og hafa veitt hæstv. utanrrh. umboð til að hefja
samningaviðræður um svonefnt evrópskt efnahagssvæði ef það liggur fyrir, og þegar það liggur fyrir eins og raunar málin eru hér eftir ræðu hv. þm. Karls Steinars Guðnasonar, að Alþfl. er á flugferð með það að búa sig undir að mæla með því að Ísland sæki formlega um aðild að Evrópubandalaginu. Stilli sér upp í biðröðina sem hæstv. utanrrh. var að gera sérstakar athugasemdir við við starfsbróður sinn danska, Uffe Ellemann-Jensen, um svipað leyti og hann hélt ræðuna í Jónshúsi, að ráðherrann væri að hvetja EFTA-ríkin og Norðurlöndin sérstaklega til þess að hugleiða beina aðild að Evrópubandalaginu. Hæstv. utanrrh. er sá maður sem fer með þessi málefni í ríkisstjórn Íslands öðrum fremur. Hann fer með þessi málefni gagnvart EFTA. Ætli það segi ekki samstarfsaðilum Alþfl. í ríkisstjórn, ætli það séu ekki nokkur skilaboð til þeirra, þegar fulltrúi þess flokks kemur hér inn á vettvang Alþingis og lýsir þeirri skoðun sinni að Ísland eigi af fullri alvöru að hugsa um inngöngu í sjálft Evrópubandalagið milliliðalaust?
Nú er það vissulega ljóst, virðulegur forseti, að hið evrópska efnahagssvæði og sá grunnur sem lagður hefur verið fyrir væntanlegum formlegum samningaviðræðum, ef út í þær verður lagt, sá grunnur er í rauninni mjög skyldur megingrunni sjálfs Evrópubandalagsins. Þar eru menn í rauninni að ganga inn í fordyri Evrópubandalagsins og nokkuð ljóst að af ýmissa hálfu, þó ekki hafi verið haft hátt um það fram undir þetta, geti það verið æskilegt skref að fullri aðild að bandalaginu. Ég held að það sé alveg ljóst að sú umræða er hafin á Alþingi Íslendinga eftir föstudaginn var. Og hæstv. utanrrh. er hér beðinn um að skýra eigin afstöðu til þessa máls og síns flokks. Við eigum kröfu á því á Alþingi Íslendinga að hæstv. ráðherra tali milliliðalaust um þessi mál við þingmenn og greini frá því hvort það er hans afstaða sem haft er eftir honum í ummælum Alþýðublaðsins á fundi í Jónshúsi í marsmánuði sl.
Það liggur fyrir, virðulegur forseti, að áhrifamikil öfl í Sjálfstfl. eru á sömu slóðum, eru með sömu hugsun, eins og fram kemur í svonefndri aldamótaskýrslu sem lögð var fram á landsfundi Sjálfstfl. sl. haust þar sem hélt á penna varaformaður flokksins, Davíð Oddsson borgarstjóri, maður sem stefnir til æðstu metorða í þeim flokki. Bilið milli talsmanna Alþfl. og áhrifamikilla aðila í Sjálfstfl. er því ekki mikið að þessu leyti. Og ég held að það væri ráðlegt fyrir hv. alþm. að átta sig á þessari þróun mála og þessum viðhorfum eins stjórnarflokksins, Alþfl., og stærsta stjórnarandstöðuflokksins, Sjálfstfl., eins og þau hafa komið fram, áður en hafnar verði formlegar samningaviðræður um að koma Íslandi inn í fordyri Evrópubandalagsins, inn í hið svonefnda evrópska efnahagssvæði.
Ég vil aðeins víkja að því, virðulegur forseti, hver er mín sýn til stöðu Íslands, hvernig ég tel að Ísland ætti að standa að málum á komandi árum í sambandi við samskipti sín út á við við viðskiptabandalög og efnahagsbandalög, hvort sem er austan hafs eða vestan eða í öðrum heimshlutum. Ég tel að það sé mjög óvænlegt, óskynsamlegt af Íslands hálfu að fara að binda sig rísandi stórveldi í Evrópu hvort sem það er með millistigi í gegnum svonefnt evrópskt efnahagssvæði eða með beinni aðild að Evrópubandalaginu. Ég tel að það sé andstætt hagsmunum okkar sem smáþjóðar að tengjast þannig einum voldugum aðila. Við ættum að hafa lært það af okkar sögu og okkar reynslu að það er vænlegra fyrir okkar málefni að við reynum að halda utan um okkar sjálfstæði og sjálfsákvörðunarrétt og skapa okkur sem mest svigrúm í þeim efnum. Ég tel satt að segja að óðagotið sem einkennt hefur umræðuna um þróun mála í Evrópu og þær ákvarðanir sem teknar hafa verið þar að lútandi sé næsta furðulegt. Það er látið að því liggja að við séum að missa af einhverju sérstæðu einstæðu tækifæri ef við látum þessa þróun fram hjá okkur fara og tökum ekki beinan þátt í henni og tengjumst þeirri efnahagsheild sem þarna er rætt um með þátttöku Evrópubandalagsins sem hins volduga aðila.
Ég held að við ættum að skoða okkar mál og okkar hagsmuni út frá allt öðru sjónarhorni. Ég tel ekki æskilegt fyrir smáþjóð eins og Íslendinga að tengjast þeim stórveldabandalögum, þeim efnahagsbandalögum sem eru þegar komin á eða eru í uppsiglingu í Vestur-Evrópu, Norður-Ameríku og Austur-Asíu. Við eigum þvert á móti að stilla okkur utan þessara bandalaga, skapa okkur svigrúm til þess að semja við þau, hvar sem þau eru og hver sem þau eru. Við liggjum mjög vel við landfræðilega, samgöngulega, til þess að eiga góð samskipti við Evrópu, til að eiga góð samskipti við Norður-Ameríku, til að eiga vaxandi samskipti við Austur-Asíu. Og við eigum að nota þessa stöðu okkar, þessa sérstöðu okkar sem þjóðar í Norður-Atlantshafi til að ná hagstæðum samskiptum við þessa stóru keppinauta sem þarna eru að búa sig í harða samkeppni, hver innan sinna víggirðinga, ef svo má
segja.
Það væri skammsýni og ófyrirgefanlegt að mínu mati, ófyrirgefanlegt fljótræði, að kasta þeim möguleikum á glæ sem felast í slíkri sérstöðu. Við skulum ekki gleyma því, virðulegur forseti, að Ísland er á margan hátt í allt annarri stöðu en önnur Norðurlönd, að ekki sé nú talað um gamalgróin iðnríki Vestur-Evrópu. Við erum fámenn þjóð í stóru landi og því fylgja margháttaðir
kostir á meðan við ráðum ferð okkar sjálf. En hins vegar miklar hættur ef við flytjum valdið yfir eigin málum suður í Brussel eða til Berlínar.
Ég vek athygli á sérstöðu okkar sem fiskveiðiþjóðar sem býr að óvenjulega gjöfulum fiskimiðum, sem við verðum að standa vörð um, dyggan vörð hvað sem á dynur. Þau eru lífsgrundvöllurinn í þessu landi. Hvernig er fiskveiðimálum háttað innan Evrópubandalagsins? Þau eru þar ekki undir merki hins svokallaða viðskiptafrelsis, heldur þvert á móti njörvuð í styrkjakerfi, margþætt styrkjakerfi. Aðild okkar að þessari stóru heild gæti fyrr en varir dregið íslenskan sjávarútveg og málefni hans inn í sömu fjötrana og gert Íslendinga að beinum eða óbeinum beiningamönnum einnig hvað varðar fiskveiðimálefni.
Ég skil ekki þá þingmenn á Alþingi Íslendinga sem geta komið hér upp í þennan ræðustól og mælt með því að við göngum beint í gin úlfsins eins og sjávarútvegsmálum er háttað innan Evrópubandalagsins. Er þar þó aðeins eitt nefnt af mörgum atriðum sem hljóta að fæla okkur frá þeim vettvangi.
Ég tel að okkar leið á næstu árum og áratugum eigi einmitt að felast í því að halda sem óháðastri stöðu gagnvart viðskiptabandalögum í austri og vestri og einnig í fjarlægari heimshlutum. Þar eigum við mjög spennandi og góða kosti til að byggja upp atvinnulíf, fjölþætt atvinnulíf og menningarlíf í þessu landi og nýta sérstöðu okkar sem smáþjóðar sem hefur átt góð samskipti til margra átta á liðnum árum og nýtur í rauninni mun meiri virðingar og betri viðtöku af þjóðum, stórum og smáum, en svarar til efnahagslegra hagsmuna viðkomandi þjóða. Þarna eigum við okkar stóru kosti. M.a. af þeim sökum ræð ég eindregið frá því að við göngum inn á vettvang evrópsks efnahagssvæðis, inn í stórríki Evrópu þar sem iðnríkin, Þýskaland öðru fremur, munu ráða ferðinni. Við þetta stórríki eigum við að sjálfsögðu að eiga góð samskipti. Og við eigum alla kosti á því að hafa góð samskipti við það ef við höldum þétt á okkar málum og gefumst ekki upp fyrir minni háttar hindrunum. Við verðum að taka okkur tíma og sýna þrautseigju eins og þessi þjóð hefur gert fyrr á árum þegar erfiðara var og þrengra fyrir dyrum en er í dag til að þreyja þorrann og góuna til þess að fá sína hagsmuni viðurkennda með viðræðum, beinum og milliliðalausum viðræðum um okkar grundvallarmálefni.
Virðulegur forseti. Ég hef gert Evrópumálin að meginþætti í þessari ræðu minni, enda eru þau hið
stóra mál sem við hljótum að fjalla um þegar við ræðum um utanríkismálefni. Þar er vissulega af fjölmörgu öðru að taka. Ég vísa til þess sem ég hef áður sagt í þessari umræðu um þau efni. Ég vil aðeins nefna hér einn þátt sem er mjög þýðingarmikill fyrir okkur Íslendinga, okkar hagsmuni, okkar lífshagsmuni. Það tengist baráttu okkar fyrir því að bægja frá hættunni af kjarnorkuógn á norðurslóðum, í okkar næsta nágrenni. Það er málefni sem tengist vissulega viðleitni til afvopnunar og til þess að láta afvopnunarviðræður einnig ná til sjóhernaðar og hafanna. En það tengist einnig umferð, þótt í friðsamlegum tilgangi sé, kjarnorkuknúinna báta og skipa, þar sem óhöpp geta orðið til þess að skaða íslenska hagsmuni með mjög áhrifaríkum og afgerandi hætti. Þess vegna eigum við Íslendingar að sýna frumkvæði í þeim efnum. Um það hef ég, ásamt fleiri hv. alþm., flutt þáltill. á þessu þingi, till. sem er til meðferðar í utanrmn.
Með sama hugarfari hef ég verið þátttakandi í norrænu þingmannasamstarfi um Norðurlönd sem kjarnorkuvopnalaust svæði. Í síðustu viku var lögð á borð alþingismanna skýrsla frá þeim hópi þingmanna sem tekið hefur þátt í því starfi að undanförnu með yfirliti um fundi sem haldnir hafa verið varðandi þetta þýðingarmikla mál. Í norrænu þingmannanefndinni er í forsæti fyrrv. forsætisráðherra Dana, Anker Jörgensen, sem hefur verið frumkvöðull að þessu starfi nú um margra ára skeið. Ég tel að við þurfum að sinna þessum vettvangi af mikilli alúð áframhaldandi og taka á málunum með þeim hætti sem lagt er til í umræddri þáltill. Við megum ekki láta tímann líða í andvaraleysi því hættuna getur borið að okkar garði fyrr en varir og hún gerir ekki boð á undan sér. Það er ekki nema rúmt ár síðan að slys varð í sovéskum kjarnorkukafbáti, og annað fylgdi raunar í kjölfarið, norðaustur í höfum. Þessi sama hætta getur skapast með miklu hrikalegri afleiðingum en þarna urðu því þarna varð ekki stórfelld geislamengun, þótt hugsanlega hafi hún orðið einhver. En miklu verr kynni að fara ef illa tækist til. Þarna ber okkur því að beita öllu okkar afli til þess að knýja fram samninga og til þess að bægja hættunni frá. Þess vegna hef ég ásamt fleiri hv. þm. lagt til að Ísland hafi frumkvæði um að kveðja saman ráðstefnu til undirbúnings formlegum viðræðum um þessi mál.
Ég vil svo í lokin, virðulegur forseti, aðeins minnast á starfsemi íslensku utanríkisþjónustunnar, þeirrar fámennu sveitar sem vinnur mikið starf fyrir Ísland á alþjóðavettvangi til þess að þoka okkar málum áfram, oft við mjög erfiðar aðstæður. Það skiptir vissulega miklu máli að reynt sé að búa sem best að þessu starfsliði og haga störfum íslensku utanríkisþjónustunnar þannig að það skili sem mestum og bestum árangri. Ég tel mjög nauðsynlegt að farið sé yfir skipan þessara mála af Íslands hálfu, þar á meðal starfsemi sendiráða og hugsanlega stofnun nýrra sendiráða til þess að gæta okkar hagsmuna. Ég nefni t.d. málefnin gagnvart Austur-Asíu í þessu samhengi. Það hefur oft verið talað
um að þörf sé á því að við komum upp íslensku sendiráði í Japan. Ég held að full þörf sé á því að við förum yfir það mál fyrr en seinna og gerum einhverja alvöru úr því að bæta okkar stöðu á þessu svæði. Ég hygg að málin gagnvart Austur-Asíu séu satt að segja í mjög dapurlegu horfi hvað snertir utanríkisþjónustuna, ekki síst eftir að starfsemi heimasendiherra sem sinnti málefnum þessa svæðis hefur lamast, ef ég er rétt upplýstur um þau efni. Ég vil því hvetja hæstv. utanrrh. til að sinna þessu máli og ræða það meir við utanrmn. þingsins en tíðkað hefur verið þegar málefnum sendiráða og sendimanna Íslands erlendis hefur verið ráðið að undanförnu. Ég bendi á stöðu okkar sendiherra sem fylgist með þýðingarmiklum viðræðum í Vín. Þar er einn maður að starfi. Aðstaða hans er hótelherbergi, engin aðstoð. Þar er verið að fjalla um hin þýðingarmestu efni. Það er ekki sómasamlegt, þótt við séum fá og höfum ekki mikil ráð í hendi, að búa ekki betur að okkar starfsliði sem er að fást við hin þýðingarmestu málefni á erlendum vettvangi. Við erum nógu rík til þess að menn þurfi ekki að liggja þar við, nánast eins og beitarhúsasmalar upp á gamla vísu.
Ég vil svo, virðulegur forseti, aðeins segja að lokum að það er ætíð gagnlegt að kostur gefst á að fara yfir svið utanríkismálanna af tilefni skýrslu hæstv. utanrrh. Þó ég hafi gert hér margar og alvarlegar athugasemdir við málflutning hans og ýmsa þætti í skýrslunni vil ég þakka hæstv. ráðherra fyrir það efni sem hann hefur fram lagt. Og ég tel að margt af því sem hann hefur verið að reyna að koma til leiðar í okkar þágu á erlendum vettvangi sé góðra gjalda vert. Það er kannski svo að það er frekar það sem greinir á sem gert er að umtalsefni hér úr ræðustól Alþingis. En ég tel að það sé best fyrir málstaðinn og málefnin og störf þess ráðherra sem fer með utanríkismálin á hverjum tíma að menn ræði þau hér hreinskilnislega á þessum vettvangi.