Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa nein afskipti af orðum sem talsmenn Alþb. hafa látið falla hér fyrr í umræðum. En vegna þess að hv. síðasti ræðumaður vék að málflutningi danska utanríkisráðherrans og því hvaða hlut hann átti á ráðherrafundi EB sl. mánudag í Lúxemborg, þá er ég með hér í höndunum fréttaritið Evrópa. Það er gefið út, eins og kunnugt er, í tengslum við Evrópubandalagið. Þar er fjallað um þennan fund. Þar segir svo, og nú þýði ég lauslega:
Ráðherrarnir fóru ekki niður í smáatriði. Flestir þeirra takmörkuðu mál sitt við það að árétta mikilvægi þess að ná skjótlega niðurstöðu í samningunum um evrópska efnahagssvæðið eins fljótt og mögulegt er og lögðu á það áherslu að bandalagið getur ekki boðið EFTA-ríkjunum minni hlut en það mun hugsanlega síðar bjóða löndum Austur-Evrópu. --- Síðan segir: Undantekningin var Lúxemborg sem hélt fram því sjónarmiði að aðeins aðild gæti tryggt fulla þátttöku í ákvörðunarferlum, --- sem enginn ágreiningur er um. Síðan kemur hér: Hins vegar --- og nú ætla ég ekki að þýða lengur, heldur láta það fara beint eins og sagt er: ,,The Danish delegation did not speak out. Mr. Ellemann-Jensen did not elaborate on the ideas he had expressed last week.`` Þetta þarfnast ekki þýðingar.