Ný samvinnulög
Fimmtudaginn 05. apríl 1990


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Frú forseti. Með þessari tillögu hreyfa flm. þörfu máli en núgildandi samvinnulög eru orðin úrelt eins og glöggt kemur fram í grg. með tillögunni. Ég ætla aðeins að rifja upp sögu síðustu ára hvað varðar hugmyndir um endurskoðun á samvinnulögunum og minni á það að Alþingi ályktaði 29. maí 1980 að fela ríkisstjórninni að hefja undirbúning að nýrri löggjöf um samvinnufélög og samvinnusambönd í samráði við samvinnuhreyfinguna. Haustið 1980 skipaði síðan þáv. viðskrh. fimm manna nefnd til að vinna að þessu verkefni. Gaukur Jörundsson prófessor, nú umboðsmaður Alþingis, var formaður nefndarinnar.
    Nefndin skilaði drögum að frv. til laga um samvinnufélög á árinu 1983. Skömmu eftir að þessi frumvarpsdrög voru afhent urðu stjórnarskipti og í ársbyrjun 1984 skipaði viðtakandi viðskrh. nýja nefnd til að endurskoða lög um félög og stofnanir í atvinnurekstri eða með önnur fjárhagsleg markmið. Formaður þeirrar nefndar var Árni Vilhjálmsson prófessor. Á fundum sínum árið 1985 ræddi nefndin fyrirliggjandi frv. til laga um samvinnufélög sem nefnd Gauks Jörundssonar hafði samið. Formaður síðari nefndarinnar útbjó síðan drög að nýju frv. en tími vannst ekki til að vinna grg. eða aðrar athugasemdir áður en starfi þeirrar nefndar lauk. Ég vil því kalla þessi frumvarpsdrög sem eru til í viðskrn. fremur vinnuskjal nefndarinnar en niðurstöðu. En þetta vinnuskjal er ítarlegra en fyrra frv. og kaflarnir um ráðstöfun hagnaðar og gerð ársreikninga eru með öðrum hætti.
    Þegar ég tók við stöðu viðskrh. lágu fyrir Alþingi tillögur um breytingar á hlutafélagalögum og ákvað ég að láta þær hafa allan forgang en lýsti því jafnframt yfir í umræðunni í þinginu að þegar þetta frv. væri orðið að lögum væri eðlilegt að snúa sér að frumvarpsgerð um breytingar á samvinnulögunum, enda nauðsynlegt að samræmis sé gætt í þessari löggjöf. Breytingarnar á
hlutafélagalögunum sem eru nokkuð umfangsmiklar tóku reyndar eins og þingmönnum er kunnugt gildi hinn 1. mars sl. Reyndar var hafinn undirbúningur að athugun á samvinnulögunum þegar á liðnu ári og gerður samanburður á fyrirliggjandi frumvarpsdrögum og sá samanburður sendur nokkrum forsvarsmönnum samvinnuhreyfingarinnar með beiðni um umsögn. Það dróst nokkuð að fá slíka umsögn þrátt fyrir eftirgangsmuni en það er rétt sem kom fram hjá hv. 1. flm. að fyrir skömmu bárust mér tillögur frá stjórn Sambands ísl. samvinnufélaga um þetta mál.
    Ég var sjálfur þeirrar skoðunar að það væri ýmislegt athugavert við frumvarpsdrög nefndanna sem starfað hafa og m.a. og kannski mikilvægast að í þær hafi vantað heimildir til þess að gefa út einhvers konar samvinnuhlutabréf, stofnbréf, stofnsjóðsbréf, hlutabréfaígildi ef menn vilja nota það orð, þannig að samvinnufélögin gætu aflað sér aukins eigin fjár með því móti. En það er hárrétt hjá hv. flm. að það eru einmitt takmarkanirnar á slíkri eiginfjármyndun sem

eru helsti veikleiki samvinnuhreyfingarinnar við þær rekstraraðstæður, það efnahagslega umhverfi sem nú er sem betur fer á komið með raunverulegum jákvæðum vöxtum og vonandi fram undan stöðugra verðlagi. Það er tekið undir þetta í hinum nýju tillögum frá stjórn Sambandsins, þ.e. að það þurfi að opna leið til útgáfu stofnbréfa eða stofnsjóðsbréfa. En ákvæði þar að lútandi sem lagt er til af þeirra hálfu að sett verði í lög eru að mínu áliti tæpast nógu ítarleg.
    Annað atriði sem þarf að huga að við endurskoðun samvinnulaganna er heimild samvinnufélaga til að reka innlánsdeildir. Að mínu áliti er þetta úrelt form innlánsstofnana og tel ég að þær ætti að leggja niður með nýjum samvinnulögum. Í athugun á þessu máli innan viðskrn. að undanförnu hefur komið í ljós að Finnar hafa um alllangt skeið unnið að endurskoðun á sinni samvinnulöggjöf og voru þar gefin út breytingarlög 22. des. sl. Ráðuneytið hefur aflað sér þessara gagna, bæði frv. með grg. og laganna sjálfra. Breytingarnar í Finnlandi eru gerðar út frá sömu sjónarmiðum og hér hafa verið rædd varðandi möguleika á eiginfjármyndun með útgáfu ígildis hlutabréfa og þar er einnig að finna nýjungar eins og almenna heimild í samvinnulögum til þess að breyta samvinnufélögum í hlutafélög ef félagsmenn kjósa. Finnsku lögin sem ég tel allrar athygli verð eru ákaflega nákvæm, kannski að mínu áliti helst til nákvæm því að í nýju finnsku samvinnulögunum eru 172 greinar. Þar er vissulega mjög margt athyglisvert að finna sem ég hygg að við getum dregið af nokkurn lærdóm og reyndar af líkri löggjöf um samvinnufélög og almenningshlutafélög í nálægum löndum.
    Virðulegi forseti. Svo að ég snúi mér beint að efni tillögunnar mun ég láta vinna að samningu frv. til nýrra samvinnulaga með það fyrir augum að það verði lagt fram í haust eins og tillaga hv. flm. gengur út á og setja til þess menn til starfa eins og hentugt þykir, hvort sem það verður kölluð nefnd eða starfshópur eða bara menn sem verða settir til þess að vinna það verk sem ég er sammála flm. um að nauðsynlegt er að unnið verði.