Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir orð hv. 8. þm. Reykv. og lýsa yfir stuðningi við þessa þáltill. Ég tel það góðs vita að hv. þm. Jóhannes Geir Sigurgeirsson og Jón Kristjánsson skuli leggja fram þessa þáltill. Það er ekki vanþörf á því, eins og þeir hafa sagt fyrr í ræðum, að endurskoða þessi lög með sambærilegum hætti og átt hefur sér stað við endurskoðun á lögum um hlutafélög.
Það sem rekur mig í ræðustól er að mér fannst vanta í ræðum þeirra áðan í sambandi við endurskoðun þessara laga það atriði sem ég hef sett fram í frv. til laga um breytingu á samvinnulögum, eins og hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson minntist á áðan, þ.e. að í þessum nýju væntanlegu samvinnulögum þurfa að vera mjög skýr og ákveðin ákvæði er lúta að eignarstöðu grunneininganna gagnvart þeim heildarsamtökum samvinnuhreyfingarinnar sem væntanlega munu verða rekin áfram þrátt fyrir þær breytingar sem kunna að verða gerðar á samvinnulögum. Þar á ég við það atriði að í reikningum heildarsamtakanna komi það skýrt fram hver nettóeignarstaða grunneininganna er, í þessu tilviki aðallega kaupfélaganna, í heildareignum samvinnuhreyfingarinnar. Þetta getur orðið mjög erfitt mál við að eiga í sambandi við endurskoðun laganna ef lögin eiga að hafa þau áhrif og sá tilætlaði árangur á að nást sem flm. þessarar þáltill. leggja áherslu á, þ.e. að samvinnuhreyfingin fái þann rekstrargrundvöll, fái þá formlegu stöðu sem æskileg er til þess að hún geti styrkst í þeirri samkeppni sem fram undan er. Ég tek undir það að í sambandi við samkeppni og stöðu fyrirtækja á Íslandi í framtíðinni er mjög æskilegt og nauðsynlegt að hafa valkosti í þeim efnum þannig að annars vegar geti verið um að ræða samvinnufyrirtæki sem eru í stórum dráttum sniðin eftir þörfum fólks til slíkra rekstrarforma og svo hins vegar einkafyrirtæki hvort sem þau eru þá í eigu einstaklinga eða í hlutafélagsformi.
Virðulegi forseti. Ég vildi lýsa stuðningi mínum við þáltill. og vona að hún nái fram að ganga með þeim hætti sem stefnt er að.