Flm. (Kristín Einarsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir till. á þskj. 754 um endurvinnslu og fullnýtingu úrgangsefna. Flm. tillögunnar eru allar þingkonur Kvennalistans en tillagan hljóðar svo með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að stuðla að endurvinnsluiðnaði sem nýti meiri hluta þess sem til fellur af endurvinnanlegum og fullnýtanlegum úrgangsefnum. Samhliða því verði leitað leiða til að styrkja endurvinnsluiðnað sem fyrir er í landinu.``
Tillaga þessi var flutt á 110. löggjafaþingi en hlaut ekki afgreiðslu. Hún er nú flutt á ný vegna þess að málið er enn jafnbrýnt og það var fyrir rúmum tveimur árum.
Í umræðu um till. til þál. um könnun á magni endurnýtanlegs pappírs og söfnun hans og endurnýtingu sem mælt var fyrir hér fyrir nokkrum vikum kom fram í máli margra hv. þm. að þeir teldu að sú tillaga væri of takmörkuð og það væri miklu eðlilegra að líta á endurvinnsluiðnað í miklu víðara samhengi en þessi tillaga gerir einmitt ráð fyrir því að ekki sé eingöngu litið á pappír heldur á miklu fleiri hliðar. Öllum ætti nú að vera ljóst að jörðin er ekki óþrjótandi nægtabúr og neysla undanfarinna ára hefur leitt til þess að sífellt er gengið á auðlindir jarðar. Löngu er orðið tímabært að móta langtímastefnu í nýtingu þeirra. Hingað til hafa skammtímasjónarmið ráðið ferðinni. Allt skal gert á sem hagkvæmastan hátt en ekki hugsað fram í tímann.
Mikil verðmæti eru fólgin í því ógrynni úrgangs sem til fellur. Háum fjárhæðum er varið til eyðingar á sorpi og úrgangi með ýmsum aðferðum. Því er brennt, urðað eða jafnvel sökkt í sæ án þess að hugsa um hvaða áhrif þetta hefur á lífkerfið. Eðlilegra og farsælla er að reyna að vinna samkvæmt lögmálum náttúrunnar en þar ríkir jafnvægi sem viðhaldið er af eðlilegri hringrás efna.
Auðlindir jarðar eru langt frá því að vera óþrjótandi. Reyndar eru margar nær þrotnar. Okkur sem nú lifum ber að hugsa til þeirra sem á eftir koma. Þeir þurfa ekki síður á þessum hráefnum að halda.
Þegar rætt er um endurvinnslu hefur athyglin oft beinst að nýtingu pappírsúrgangs eins og ég minntist aðeins á áðan. Skógar eru undirstaða pappírsframleiðslu og þrátt fyrir stuttan endurnýjunartíma miðað við mörg önnur hráefni er stöðugt gengið á skóglendi jarðar. Talið er að á höfuðborgarsvæðinu leggist árlega til um 25 þús. tonn af úrgangspappír. Um 10--15 þús. tonn af þessum pappír er úrgangur frá ýmiss konar framleiðslu, verslun og þjónustu. Um 10 þús. hektara af skóglendi þarf til þess að framleiða 15 þús. tonn af pappír ef miðað er við venjulega asparskóga sem framleiða um 3000 tonn á hektara af viði og þá gert ráð fyrir að um 40% nýtist við pappírsframleiðsluna. Þetta er umhugsunarefni þegar haft er í huga að hér á landi er stærstum hluta pappírs eytt með því að urða hann. Það er mikið hagsmunamál fyrir sveitarfélög og þá
sem þurfa að standa undir kostnaði við sorphirðu að draga úr því magni sem fer á haugana. Heppilegasti kosturinn er því endurvinnsla í einhverri mynd, a.m.k. á þeim hluta pappírs sem ekki er blandað við annað sorp. Langæskilegasta hráefni til endurvinnslu er það sem leggst til við iðnaðarframleiðslu.
Reynsla erlendis hefur sýnt að það er nokkrum erfiðleikum bundið að tryggja hreinleika á pappír sem safnað er, t.d. dagblaðapappír. Það er hægt að nota pappír við ýmiss konar framleiðslu og margt af því hefur verið reynt hér á landi, t.d. við mótun á eggjabökkum, og hefur einmitt verið dregið fram það framtak sem Silfurtún hf. í Garðabæ hefur sýnt með framleiðslu eggjabakka. Framleiðslan er stöðugt að aukast og telja þeir að þeir séu að ná meiri hlutanum af þeirri framleiðslu sem fer á innlendan markað. En það er hægt að nota margs konar pappabakka í aðra hluti. Það er líka hægt að nota afgangspappír í pappapoka, þakpappa, pappakassa o.fl. Þetta er einungis um pappírinn.
Tilraunir hafa einnig verið gerðar með fullnýtingu á slógi og öðrum fiskúrgangi, m.a. til meltuframleiðslu. Einnig hefur verið reynt að nota innyfli úr sauðfé til lyfjaframleiðslu og undirbúningur að endurvinnslu á brotajárni var einnig vel á veg kominn fyrir nokkrum árum og lagaheimild fengin fyrir stuðningi ríkisins við byggingu verksmiðju. Málið strandaði hins vegar á lokastigi.
Ef litið er nánar á endurvinnslu á málmi hef ég fengið minnisblað frá Ásgeiri Einarssyni hjá Sindrastáli sem hann hefur tekið saman varðandi brotajárn á suðvesturhorninu. Þar kemur fram að áætlað er að um 13 þús. tonn af brotajárni falli til á suðvesturhorninu á ári og ef öllu þessu brotajárni væri safnað saman og urðað, sem maður reiknar með að sé gert, kostar eingöngu söfnunin á þessum 13 þús. tonnum um það bil 8,5 millj. kr. Það verða þá um það bil 650 kr. á hvert tonn þannig að eyðingin og söfnunin samtals mun kosta um 1750 kr. á hvert tonn af málmi. En ef við miðum við útflutning á brotajárni er reiknað með að hvert tonn af útflutningi kosti um 5900 kr. og ef reiknað er
með að útflutningurinn, pressunin, pökkunin og söfnunin á brotajárni kosti um 5900 kr. og hægt sé að selja það fyrir um það bil 4500 kr. þá yrði tap á starfseminni um 1400 kr. á hvert tonn, þ.e. við þyrftum að greiða með hverju tonni um 1400 kr. En það kostar 1750 kr. að urða það. Greinilegt er að þó að hægt sé að reikna út að það sé tap á því að safna saman brotajárni og flytja til útlanda til endurvinnslu verður útkoman samt sem áður sú að það verði ódýrara en að urða. Og þá er ekki tekið með í reikninginn það mikla landrými sem þarf til urðunar á efni eins og brotajárni. Það er því greinilegt að þessi atriði þarf að athuga mjög vandlega og ekki vera fljót að ákveða að þetta sé ekki hagkvæmt. Það verður að hafa í huga eins og svo oft áður að hugtakið hagkvæmt er mjög afstætt. Það er t.d. spurning fyrir hvern endurvinnslan er hagkvæm. Er það hagkvæmt fyrir þann sem rekur endurvinnslufyrirtækið eða
verðum við að líta á hagkvæmni í víðara samhengi? Og þá hef ég undanskilið það umhverfissjónarmið sem er oft erfitt að reikna inn í en verður þó að gera í þessu sambandi.
Eitt vandamálið við fullnýtingu og endurvinnslu er að safna saman hráefninu til vinnslunnar. Oft kemur mikill úrgangur frá fyrirtækjum, svo sem pappír frá prentsmiðjum og umbúðaverksmiðjum og efnaafgangar frá saumastofum og mikið af afgangsefnum kemur einnig frá heimilum.
Hin síðari ár hafa æ fleiri gert sér grein fyrir þýðingu fullnýtingar og endurvinnslu. Það er því líklegt að margir verði fúsir til að flokka sorp frá heimilum sínum og koma t.d. pappír, málmum og gleri á ákveðna staði í gáma í hverfamiðstöðvum eða fyrir utan stórverslanir. Þannig mætti á ódýran hátt safna miklum hluta af heimilisúrgangi. Víða erlendis tekur almenningur virkan þátt í slíkum störfum og þeim fer sífellt fjölgandi sem vilja jafnvel greiða hærra verð fyrir ýmsar vörur, t.d. pappírsvörur, ef þær eru endurnýttar.
Margir hafa talið það eina helstu hindrunina fyrir því að endurnýting og endurvinnsla á heimilisúrgangi verði tekin upp hér á landi að fólk vilji ekki flokka sorp. Þetta held ég að sé misskilningur. Ég er alveg sannfærð um það að mjög margir mundu vera tilbúnir að flokka sitt sorp enn þá meira en við gerum núna. Ég held að mjög margir taki þátt í flokkun á einnota umbúðum, t.d. einnota plastflöskum og áldósum, og fari með þær í endurvinnslu og ég held að við ættum ekki erfitt með að fá fólk til að flokka enn frekar en nú er gert.
Útreikningar á hagkvæmni endurvinnsluiðnaðar eru því flóknir og hætta á að ekki séu allir þættir teknir inn í dæmið þegar verið er að reikna. Það hafa verið gerðar margar tilraunir til að reikna en hingað til hefur útkoman yfirleitt verið neikvæð. Það hefur meira að segja verið samþykkt hér á Alþingi tillaga, árið 1975 held ég að það hafi verið, þar sem talað var um að reyna að meta hagkvæmni endurvinnsluiðnaðar og alltaf hefur útkoman verið talin neikvæð en þar hafa áreiðanlega ekki verið teknir inn allir þættir málsins.
Úrgangsefni sem ekki er talið hagkvæmt að endurvinna hér verður að láta endurvinna erlendis þar sem það er hagkvæmara vegna meira magns og stærri markaðar. Á þann hátt vinnum við gegn auðlindaþurrð auk þess sem við leysum
mikinn vanda vegna sorpeyðingar. Til þess að endurvinnsluiðnaður eigi betri möguleika hér á landi í framtíðinni er eðlilegt að hann njóti bestu kjara á sem flestum sviðum. Má þar t.d. nefna skattaívilnanir og orku á hagstæðu verði utan álagstíma. Þeir sem vilja veita stóriðjufyrirtækjum bæði skattaívilnanir og ódýra orku mættu hugsa til þess að það eru til ýmsar aðrar leiðir til að nýta þá orku sem við getum aflað hér á landi en að horfa alltaf til stóriðjufyrirtækja sem bæði menga út frá sér og eru á allan hátt mjög óhagstæð fyrir íslenskt atvinnulíf.
Ég tel eðlilegt að verkefni eins og það sem hér er fjallað um verði falið ráðuneyti umhverfismála í
samvinnu við ráðuneyti iðnaðar-, heilbr.- og félagsmála. En auk þess verður að sjálfsögðu að hafa gott samstarf við sveitarstjórnir um þetta mál. Það hefði kannski í fljótu bragði mátt telja eðlilegt að iðnrn. væri falið verkefni eins og þetta, en ég tel eðlilegra að umhverfisráðuneytið hefði forustu um slík mál.
Að lokinni umræðu um þetta mál vil ég leggja til að því verði vísað til síðari umr. og hv. atvmn.