Flm. (Jóhannes Geir Sigurgeirsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu sem hljóðar svo:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að sjá til þess að nú þegar verði gert skipulegt átak til þess að mæla og skrá efnainnihald íslenskra matvæla með sérstöku tilliti til aðskota- og aukefna. Jafnframt verði unnin nákvæm skrá um öll slík efni í íslenskum matvælum á hverjum tíma þannig að íslensk stjórnvöld geti hvenær sem er gefið út vottorð, byggt á vísindalegum grunni, um hollustu íslenskra matvara.``
    Þessi tillaga lætur ekki mikið yfir sér en ég tel samt að hér sé verið að hreyfa mjög stóru máli sem varðar framtíðarhagsmuni okkar Íslendinga sem sjálfstæðrar þjóðar sem hlýtur að byggja sjálfstæði sitt á sinni atvinnustarfsemi og þeirri sérstöðu sem við getum skapað okkur varðandi okkar atvinnuvegi í því samfélagi þjóðanna sem við sjáum fram á að verður á næstu árum miklu nánara og með miklu minni hömlum á viðskipti með okkar framleiðsluvörur en verið hefur fram að þessu.
    Umræða um aukefni í matvælum hefur verið nokkuð áberandi í nágrannalöndum okkar nú um langt skeið. Nágrannar okkar eru orðnir mjög meðvitaðir um hættuna sem stafar af aukefnum og aðskotaefnum í matvælum og eru farnir að meta það mikils ef þeir eiga kost á að fá ómengaða vöru. Hér hafa Íslendingar verið grandalitlir fram að þessu. Það er þó mjög að breytast nú, kannski bara á allra
síðustu vikum. Við þurfum ekki annað en fletta blöðum síðast nú í dag þar sem rætt var við efnafræðing, starfsmann Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins, sem benti á að við vissum sáralítið um aðskotaefni í okkar matvöru. Við höfum talið okkur, og segjum það gjarnan í ræðu og riti, eiga möguleika á að markaðssetja okkar matvæli sem ómenguð. Þegar á okkur er gengið getum við ósköp lítið gert annað en benda á tæra fjallalæki og hreina firði. Að vísu hefur sú mynd eilítið dekkst á síðustu vikum þegar við vorum óþyrmilega minnt á að við þurfum virkilega að taka á varðandi mengunarmál. En það er þó að mínu mati miklu meira um að ræða umhverfismál sem við erum að taka á en það að okkar umhverfi sé orðið mengað af þeim efnum sem nágrannar okkar gjalda orðið varhuga við.
    Því varð mér ljóst eftir að ég hafði kynnt mér þessi mál nokkuð að ef við ætlum að geta kynnt okkar matvöru á næstunni sem ómengaða náttúruafurð verðum við að geta sýnt fram á það á vísindalegan hátt. Það verður að vera til á hverjum tíma nákvæm skrá yfir aðskotaefni í íslenskum matvælum sem við getum sýnt viðskiptaaðilum okkar erlendis.
    Þetta tengist m.a. umræðu sem lengi hefur verið uppi um það að við eigum möguleika á fjölbreyttari matvælaútflutningi en er í dag. Við gætum e.t.v. flutt út einstakar landbúnaðarafurðir okkar. Ég vil nefna í því sambandi þá umræðu sem nýlega komst í fjölmiðla um hugsanleg kaup Bandaríkjamanna á verulegu magni af íslensku skyri sem sérstakri

heilsuafurð. Ég tel tvímælalaust að þarna eigum við möguleika en þeir byggjast, eins og ég sagði áðan, á því að við getum sýnt fram á það að okkar vara sé laus við aðskotaefni. Og það verður einungis gert með stöðugum mælingum og skráningu.
    Ég sagði í upphafi máls míns að þetta tengdist að mínu mati framtíð okkar sem sjálfstæðrar þjóðar. Ég ætla að koma aftur inn á það. Við horfum fram á það að við munum innan skamms starfa á miklu opnari markaði Evrópuríkja en er í dag. Og hverju getum við fremur beitt þar til þess að marka sérstöðu okkar, okkar sérstöku framleiðsluvörur sem gengju inn á þennan markað, en því að vinna ötullega að umhverfismálum, veita okkar matvælaframleiðslu aðhald og mæla reglulega efnainnihald og á þann hátt sýnt fram á það ekki bara með fallegum myndum í myndabæklingum heldur ekki síður með vísindalegum rökum að við framleiðum matvöru sem sé hreinni en Evrópubúum og reyndar fólki víðar í heiminum býðst frá öðrum stöðum.
    Þar með er ekki sagt að að þessum málum hafi ekkert verið unnið hér á landi. Ýmsar stofnanir sinna þessum málum nú þegar. Þar má nefna Hollustuvernd ríkisins, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Rannsóknastofnun mjólkuriðnaðarins, yfirdýralæknisembættið, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og aðila innan Háskóla Íslands. En þessi vinna hefur ekki verið samræmd og ekki beinst að ákveðnu markmiði.
    Þar sker sig kannski nokkuð úr varðandi eftirlit annars vegar hluti sjávarafurða, en þeim verkefnum hefur Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins sinnt, og hins vegar hefur eftirlit með efnaleifum í mjólkurvörum verið í mjög góðu lagi þar mjólkuriðnaðurinn sjálfur hefur rekið öfluga rannsóknastofu í því skyni.
    Ég segi hér í grg. með tillögunni að ég telji eðlilegt að kannað verði hvort ekki væri hægt að koma þessari starfsemi fyrir, þ.e. þessari samræmingu á upplýsingum og þeim mælingum sem ekki fara fram annars staðar, við Háskólann á Akureyri, nánar tiltekið í tengslum við sjávarútvegsbrautina sem þar er búið að setja á stofn og ráðamenn hafa reyndar lýst yfir vilja sínum að sjá til
þess að hún verði efld til rannsókna á sviði matvæla. Þetta væri að mínu mati mjög vel við hæfi margra hluta vegna, ekki síst vegna þess að þá mundi starfsemin fara fram í miðju héraði sem í dag er líklega einna fjölbreyttast hvað snertir framleiðslu matvæla, bæði til sjávar og lands. Auk þess væri þetta jákvætt og virkt skref til byggðajöfnunar.
    Þetta er hins vegar ekki aðalatriði málsins þó ég leggi til að það verði skoðað í tengslum við það. Aðalatriðið er það að ríkisstjórnin hafi forgöngu um það að koma þessari skipulögðu mælingastarfsemi og skráningu á.
    Ég vil að lokinni þessari umræðu fara fram á að málinu verði vísað til síðari umr. og hv. félmn. til meðferðar.