Þjóðleikhús Íslendinga
Fimmtudaginn 05. apríl 1990


     Árni Johnsen:
    Virðulegi forseti. Gerð hefur verið athugasemd af tveimur hv. þm. um notkun mína á orðinu vindhani. Í orðabók Menningarsjóðs segir um þetta orð: ,,Veðurviti; óstöðugur, hverflyndur maður.`` Það er það sem húsameistari hefur verið í vinnu þessa máls og það er ekkert ljótt við það orð. ( Forseti: Ég vil áminna hv. þm. um að þannig er ekki við hæfi að tala um fjarstaddan mann.)