Dómsvald í héraði
Föstudaginn 06. apríl 1990


     Frsm. allshn. (Guðmundur Ágústsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 879 frá allshn. um frv. til laga um viðauka við lög um skipan dómsvalds í héraði, lögreglustjórn, tollstjórn o.fl., nr. 74 27. apríl 1972.
    Það frv. sem hér um ræðir eða réttara sagt bráðabirgðalög sem sett voru í sumar hafa fengið umfjöllun í nefndinni og er hún sammála um svohljóðandi nál.:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk til viðræðna um efni þess Þorstein A. Jónsson, deildarstjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
    Frumvarp þetta er lagt fyrir Alþingi samkvæmt boði 28. gr. stjórnarskrárinnar til að staðfesta bráðabirgðalög er gefin voru út 13. janúar 1990, níu dögum áður en þing kom saman. Samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar skal ekki gefa út bráðabirgðalög nema brýna nauðsyn beri til. Í umræðum innan nefndarinnar kom fram að óvíst hafi verið hvort dráttur á lögfestingu þessara ákvæða uns Alþingi kom aftur til funda hefði valdið miklum vanda. Vill nefndin leggja áherslu á að gætilega sé farið með þessa heimild stjórnarskrárinnar.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.``
    Undir þetta rita Jón Helgason formaður, Guðmundur Ágústsson fundaskrifari, Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson, Eyjólfur Konráð Jónsson með fyrirvara, Danfríður Skarphéðinsdóttir með fyrirvara og Salome Þorkelsdóttir einnig með fyrirvara.
    Ég tel rétt að fara yfir það sem í nál. greinir og þá umræðu sem var í nefndinni. Áður en ég tek til við að ræða einstaka þætti og það hvenær og hvort 28. gr. stjórnarskrárinnar hafi verið misnotuð vil ég, með leyfi forseta fyrst lesa upp það sem fram kemur í bráðabirgðalögunum þegar þau voru sett:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Dóms- og kirkjumálaráðherra hefur tjáð mér, að þann 9. janúar 1990 hafi gengið dómur í Hæstarétti Íslands í máli nr. 120/1989, þar sem niðurstaðan hafi orðið á þann veg, að dómur uppkveðinn í sakadómi Árnessýslu hafi verið felldur úr gildi og málinu vísað heim í hérað til löglegrar málsmeðferðar og dómsálagningar. Hafi þetta verið gert sökum þess, að sýslumaðurinn í Árnessýslu og fulltrúi hans, sem kvað upp hinn áfrýjaða dóm, hafi verið vanhæfir til að fara með dómstörf í málinu, þar sem sýslumaðurinn sé jafnframt lögreglustjóri í sama umdæmi og hafi sem slíkur farið með lögreglurannsókn málsins. Sú staða sé því uppi í tuttugu umdæmum landsins, að einn og sami maðurinn sé í senn lögreglustjóri og dómari, án þess að sjálfstæðir héraðsdómarar starfi við þau embætti, sem geti farið með og dæmt í opinberum málum á eigin ábyrgð, óháð því hvort forstöðumaður embættisins er vanhæfur til meðferðar málsins. Af þessum sökum sé svo komið í umræddum umdæmum, að þeir, sem þar fari nú með dómsvald að gildandi lögum, verði í ljósi áðurnefnds dóms Hæstaréttar taldir

vanhæfir til að fara með flest þau opinber mál, sem þar séu og verði til meðferðar, þar til ný skipan dómstóla í héraði samkvæmt lögum um aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, nr. 92 1. júní 1989, komi til framkvæmda þann 1. júlí 1992. Til að tryggja að dómarar verði fyrir hendi í umræddum umdæmum, sem taldir verði hæfir og bærir til að fara með opinber mál þar, beri brýna nauðsyn til að nú þegar verði gerð breyting á gildandi lögum, svo meðferð þessrara dómsmála stöðvist ekki eða dragist óhæfilega. Fyrir því eru hér með sett bráðabirgðalög samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar á þessa leið.``
    Í sjálfu sér er ekki deilt um og nefndin er sammála um þá skipan sem var sett á að ég tel. Hins vegar er setningarmátinn óeðlilegur að því er nefndarmenn telja þar sem svo stutt hafi verið til setningar Alþingis, aðeins níu dagar. Með nál. er nefndin að vara við ofnotkun á þeirri heimild sem ríkisstjórn og forseti hafa til setningar bráðabirgðalaga.
    Það má eflaust alltaf deila um það, eins og í þessu tilviki, hvort rétt hafi verið að setja bráðabirgðalög. En það sem verður að hafa í heiðri er að það er löggjafarsamkoman sem setur lög en ekki ríkisstjórn með atbeina forseta og að það eigi að vera mjög brýn skilyrði fyrir hendi til að bráðabirgðalög verði sett.
    Ég vil ekki hafa þessi orð fleiri en legg áherslu á það sem fram kom í nefndinni að ríkisstjórn og ráðherrar reyni eftir mætti að beita þessari heimild af varfærni og grípi ekki til óyndisúrræða af þessu tagi nema mjög brýna nauðsyn beri til og svipti þar með ekki Alþingi rétti til að taka á málum eins og þessum.