Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég er reyndar að sjá þetta frv. fyrst hér og nú. Það er svo stutt síðan því var dreift, það hefur líklegast verið seinni partinn í gær þegar við vorum farin úr húsinu. Ég þarf því auðvitað að kynna mér málið betur en eftir að hafa litið hér á það og hlustað á hæstv. ráðherra langar mig samt sem áður að gera nokkrar athugasemdir við 1. umr.
    Það er í fyrsta lagi ég tel mjög eðlilegt að menntmrn. fari með menntunarmál og þá líka menntunarmál heilbrigðisstétta. Ég get í sjálfu sér fellt mig ágætlega við það og finnst það vera eðlilegt. Hins vegar veiti ég því athygli í frv., sem má segja að sé stutt, að það er ekki minnst einu orði á samráð við fulltrúa viðkomandi skóla né heldur á það hvaða skoðanir þeir kunna að hafa á þessari breytingu sem fyrirhugað er að gera með litlum fyrirvara. Það kann að vera að umræður hafi verið í gangi lengi, ég veit ekki um það. En ég bendi bara á þetta af því að þetta sló mig við lestur frv.
    Annað er síðan að það er fyrir löngu orðið brýnt að samræma betur nám heilbrigðisstétta, fella það saman þar sem það er hægt og gefa fólki kost á því að fara jafnvel á milli greina ef því snýst hugur einhvers staðar á leiðinni í námi sínu, að opna betur leiðina á milli ýmissa greina og að samræma og fella betur saman.
    Það kom mjög glögglega í ljós þegar fjallað var um ljósmæðralög á þinginu 1984 að þar þurfti að endurskoða og samræma ljósmæðranám hjúkrunarnámi til þess að ljósmæðranámið væri ekki óhóflega eða óeðlilega langt en jafnframt að námið væri nógu gott. Þá var einmitt, man ég, rætt um það að ljósmóðurstarf yrði sérgrein innan hjúkrunarfræðinnar. Ég legg mikla áherslu á það að ljósmóðurstarfið verði varðveitt sem sérstakt starf. Ég tel það mjög mikilsvert starf og það á sér langa hefð. Það hefur sums staðar erlendis verið
lagt af. Ég tel það miður og vil alveg sérstaklega leggja áherslu á það og koma þeim skilaboðum áleiðis þegar þessi mál verða endurskoðuð og skipulögð.
    Það voru einungis þessi atriði sem ég vildi nefna hér við 1. umr. en að sjálfsögðu hef ég kost á því að kynna mér þetta allt miklu betur og nánar í umfjöllun í heilbr.- og trn. Ed.