Lánasýsla ríkisins
Föstudaginn 06. apríl 1990


     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Það voru aðeins viðbótarspurningar sem mig langaði að beina til hæstv. fjmrh. Hann kom aðeins inn á þessa blaðagrein en mér fannst vanta ýmsar upplýsingar í svör hans.
    Það kemur fram hér í 8. gr. frv. að forseti Íslands skipar forstjóra Lánasýslu ríkisins samkvæmt tillögu fjmrh. Forstjóri stjórnar rekstri Lánasýslu ríkisins og ræður henni starfsfólk. Nú kemur hins vegar fram í þessari blaðagrein og því var ekki neitað að þetta fésýsluapparat, eins og það er kallað í blaðagreininni, hefur verið stofnað þegjandi og hljóðalaust af fjmrn. og Seðlabankanum utan við lög og reglur. Það kemur fram einnig að þessi þjónustumiðstöð hafi nú þegar öðlast sjálfstæða skrifstofu á Hverfisgötu 6, framkvæmdastjóra, tvo starfsmenn og ríkisbifreið til afnota. Þess vegna langar mig að spyrja hvenær þjónustumiðstöðin hafi tekið til starfa og hvernig hafi verið staðið að ráðningu starfsfólksins, hvort stöðurnar hafi verið auglýstar og þá með hvaða heimild og svo aftur, ef þetta frv. verður að lögum, hver ber þá kostnaðinn af ráðningu og rekstri þessarar stofnunar fram að þeim tíma sem lögin taka gildi eða er gert ráð fyrir því að þau verki aftur fyrir sig?