Karvel Pálmason:
Virðulegur forseti. Ég skal ekki lengja þessar umræður mikið og ekki ætla ég að ræða um mál tiltekinna eiginkvenna eða fríðleik í fjarlægð eins og var umræðuefni áðan. ( HBl: Það var ekki eiginkvenna, það var eiginkona hans og dóttir.) Já, það skiptir engu máli fyrir mig, ég ætla ekki að blanda mér í það. En mig langar til þess að segja örfá orð út af því sem hæstv. fjmrh. lagði inn í umræðurnar áðan.
Það kann vel að vera rétt hjá hæstv. ráðherra að hér verði um að ræða örfáa starfsmenn sem eru byrjaðir, því að mér heyrist menn tala á þeim nótum að þetta sé í reynd orðið það sem þetta frv. gerir ráð fyrir að það eigi að vera. Þetta er búið að vera starfandi í nærri ár. En reynsla mín er samt sú í gegnum árin á hv. Alþingi að hvað sem hæstv. ráðherrar hafa sagt um þau hugðarefni sín að fjölga ekki mikið á ríkisjötunni hefur staðreyndin eigi að síður orðið sú að þar hefur fjölgað miklum mun meira en þau fyrirheit hafa gefið tilefni til að ætla og hæstv. ráðherrar hafa verið að tala um í gegnum árin. Og ég óttast að hvað sem hæstv. fjmrh. segir um þetta málefni séu menn hér enn að hlaða á jötuna til þess að fjölga í kerfinu, auka báknið og taka meira af skattborgurunum en þegar er orðið og er nú nóg fyrir. ( EKJ: Getur það verið?) Já, það getur verið, hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson. Og það sem meira er, það hefur líka gerst undir handarjaðri Sjálfstfl. þannig að hann er enginn eftirbátur í þeim efnum og er þá kannski rétt að koma að þeim kafla ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals er varðar launamálin. Það er auðvitað hárrétt hjá hv. þm. að kaupmáttur hefur minnkað verulega. En það er í sjálfu sér ekki nýtt. Menn muna kannski viðskilnaðinn hjá hæstv. þáv. forsrh. Þorsteini Pálssyni. Hvernig stóðu mál þá? Og hvernig stóðu mál fyrir kosningarnar 1987 þegar þáv. hæstv. fjmrh. Þorsteinn Pálsson hleypti upp vinnumarkaðnum með sérsamningum við opinbera starfsmenn á kostnað hins almenna launamanns í
landinu? Auðvitað geta menn tekið fleiri dæmi ef það er einhver sárabót að einhver sé slæmur að því er þetta varðar. (Gripið fram í.) Að sjálfsögðu og nóg pláss hér á eftir. Ég skal fylgja þessu öllu eftir. Ég man þetta held ég allt saman.
En kannski var þetta það sem hinum almenna launamanni sárnaði hvað mest eftir að hann var búinn að semja á tiltölulega lágum nógum fyrir venjulegt verkafólk að þá kom þessi hæstv. fjmrh., formaður Sjálfstfl., og bauð opinberum starfsmönnum miklu betur en hinum og kom þannig í bakið á almennu verkafólki. Þetta þarf auðvitað ekki að rifja upp. Þetta muna allir og er lýðum ljóst. Það er því ekkert nýtt að kaupmáttur og launakjör séu slæm á Íslandi og mættu raunar vera miklum mun betri.
Mér finnst einhvern veginn, kannski er ég orðinn svona gamaldags, að það skipti orðið engu máli hvað Alþingi eða hinn óbreytti þingmaður hefur um tiltekin mál að segja. Það virðist vera nóg að ráðherrarnir geti
rætt um þetta yfir kaffibolla og samþykkt, fjvn. geti gert það líka yfir kaffibolla og samþykkt og síðan kannski ríkisendurskoðandi einn og sér með kaffibolla og þá sé málið afgreitt. Mér sýnist bara málið vera í þessum farvegi og þessir ungu menn, fjölhæfu að margra áliti, ekki allra, og þá er ég að tala um þá sem eru í forustu fyrir íslensk stjórnmálaöfl, ráða ferðinni og sitja í ráðherrastólum. Það er engu líkara en þetta sé hin nýja innreið í íslenska stjórnmálabaráttu, að þingið sé sett til hliðar, að því komi í raun og veru ekkert við hvað er verið að gera á hverjum tíma. Það eru þessar þrjár stofnanir, það eru ráðherrastólarnir, það eru fjárveitinganefndarstólarnir og það er stóll ríkisendurskoðanda. Hinum kemur málið ekkert við.
Mér finnst þetta mjög slæmt og ekki verður þetta til þess að auka virðingu Alþingis. Ég held að þeir sem ferðinni ráða í íslenskum stjórnmálum ættu að skoða sinn hug vel áður en menn halda lengra inn á þessar brautir. En vel kann að vera að þetta verði framtíðin í íslenskum stjórnmálum. En verði svo þá er hún slæm.
Aðeins út af því sem hæstv. fjmrh. sagði um að viðskiptabankarnir hefðu neitað þessu. Er það orðið svo, hæstv. ráðherra, að bankarnir geti bara gert það sem þeim dettur í hug og þeim sýnist? Til hvers höfum við ríkisstjórn, til hvers höfum við stjórnvöld? Til hvers höfum við stjórnvöld? Af hverju ekki að skikka þetta lið til þess að taka þetta að sér þó að það vilji sjálft losna við það? Er nauðsyn á nýju bákni til þessara hluta? ( Fjmrh.: Það er af því að þeir eru að selja sína eigin pappíra í samkeppni við hina.) Það á bara að setja þeim skorður fyrir dyrnar eins og hæstv. ríkisstjórn og ríkisstjórnir hafa í gegnum árin sett almenningi skorður fyrir dyrnar. Þeir eiga ekki að vera á neinum sérbáti að því er þetta eða annað varðar. Það hefur ekki vafist fyrir ráðherrum nánast hverrar ríkistjórnar á fætur annarri að setja almenningi í landinu skorður fyrir dyrnar. Segja bara: Hingað og ekki lengra. Þú færð þetta og ekkert meira. Þú bara hagar þér svona og ekkert öðruvísi. Það er þetta sem ráðherrar hafa gert og stjórnvöld. Og þetta á auðvitað líka að eiga við um bankana. Þeir eiga ekki að vera neitt sérríki hér á landi og þurfa
ekki að lúta einum eða neinum. Ég tek það því ekki gott og gilt þó að hæstv. fjmrh. segi það að bankarnir vilji ekki þetta eða hitt. Það á bara að láta þá gera það.
Ég skal svo, herra forseti, ekki eyða fleiri orðum að þessu sinni í þetta mál, en ég ítreka enn að ég sé enga þörf á þessu máli. Og það sem er verst í þessu, ég hygg að almenningur í landinu, sá almenningur sem hefur fallist á nánast að skerða laun sín frá því sem hefði átt að vera, að hæstv. ríkisstjórn sitji svo bara hér í sínum ráðherrastólum og ungi út frv. upp á milljónir og hundruð milljóna sem auðvitað lendir á skattborgurunum sjálfum og þeim líka sem fengu nánast enga kauphækkun. Þetta virkar illa. Þetta verður kannski sálrænt. Og þetta er ekki til þess að menn fái tiltrú á stjórnvöldum og var hún að vísu
ekki mikil fyrir. Þá á ég ekki sérstaklega við núv. hæstv. ríkisstjórn. Það á nánast við þær allar.