Grunnskóli
Föstudaginn 06. apríl 1990


     Birgir Ísl. Gunnarsson (frh.) :
    Virðulegi forseti. Þegar fundi var slitið og umræðu frestað á miðvikudaginn var hafði ég ekki lokið ræðu minni um það frv. sem hér liggur fyrir, þ.e. frv. til laga um grunnskóla. Mér þykir rétt, samhengisins vegna, að stikla með örfáum orðum á því helsta sem ég hafði sagt áður en ég lauk máli mínu þá. Ég rifjaði upp að í grg. með þessu frv. er m.a. vitnað til frv. og þáltill. þingmanna Sjálfstfl. á undanförnum þingum. Þær tillögur byggjast m.a. á niðurstöðu samstarfsnefndar ráðuneyta um fjölskyldumál sem skipuð var af þáverandi hæstv. forsrh. Þorsteini Pálssyni og var liður í að framkvæma nokkuð ítarlegan kafla í þáv. stjórnarsáttmála um fjölskyldumál. Helstu atriðin í tillögum sjálfstæðismanna hér á þingi hafa verið eftirfarandi: Skólaskylda sex ára barna, lenging daglegrar skólavistar barna, almenn heimild til forskóla fyrir fimm ára börn, nákvæmari ákvæði um einkaskóla, aukin samvinna foreldra og skóla, níu mánaða skóli hjá öllum og samfelldur skóladagur.
    Ég vakti athygli á því að frá því að frv. okkar sjálfstæðismanna hafa verið lögð fram, og reyndar frá því að meginundirbúningur þessa grunnskólafrv. fór fram, hefur orðið sú meginbreyting að með lögum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga hefur sveitarfélögum verið falið að fara með málefni grunnskólans í ríkari mæli en áður var. Því vanti í þetta frv. nánari ákvæði um samstarf við sveitarfélögin og að í sumum greinum eru völdin tekin af sveitarfélögunum.
    Hæstv. menntmrh. hefur lagt áherslu á að valddreifing sé einkenni þessa nýja grunnskólafrv. Athugun á frumvarpstextanum leiðir nokkuð annað í ljós. Það gætir þvert á móti aukinnar miðstýringar og forræðistilhneigingar gagnvart sveitarfélögunum. Ýmis atriði sem eðlilega ættu að vera á þeirra valdi eða jafnvel skólanna sjálfra eru flutt í menntmrn. eða útibú þess. Þegar rætt er um valddreifingu af hálfu hæstv. ráðherra er fyrst og fremst átt við að ákveðin verkefni eru færð úr ráðuneytinu og til fræðsluskrifstofanna en þær verða nú útibú menntmrn. Hér er því miklu frekar um að ræða breytt verklag innan ráðuneytis en valddreifingu innan grunnskólakerfisins.
    Ein aðalbreyting frv. frá því sem nú gildir er að kveða á um fræðslu og skólaskyldu sex ára barna með því að staðfesta að grunnskóli verði tíu ára skóli. Þetta er í samræmi við fyrri frv. sjálfstæðismanna hér á þingi. Hins vegar vantar nánari skilgreiningu og í raun hefði þurft í tengslum við þessa breytingu að endurskipuleggja grunnskólanámið. Í því efni hljótum við Íslendingar að horfa til annarra þjóða sem útskrifa sína stúdenta mun yngri en við og er enginn vafi á því að við þurfum að líta sterklega til þess að nýta betur þann tíma sem nemendur eru í grunnskóla.
    Ég hafði, að þessum almennu athugasemdum loknum, farið yfir nokkra kafla frv., þ.e. I. kafla, um markmið og skólaskyldu, II. kafla, um stjórn

grunnskólans, og III. kafla, um skólahúsnæði, og var kominn að því að ræða um IV. kaflann sem er starfslið grunnskóla. Í því sambandi vaknar m.a. sú spurning af hverju menntmrn. þurfi að staðfesta ráðningu kennara, námsráðgjafa og skólasafnvarða. Ég tel að skólarnir eigi sjálfir að fá þetta hlutverk þannig að valddreifingunni sé fylgt eftir til enda. Í grg. með frv. er þess getið að fræðslustjórar eigi að fá það verkefni að staðfesta ráðningu. Það skiptir auðvitað ekki aðalmáli hvort fræðslustjórar fá það verkefni eða ráðuneytið sjálft vegna þess að nú verða fræðslustjóraskrifstofurnar útibú frá ráðuneytinu. Aðalatriðið er í mínum huga að fylgja valddreifingunni eftir með því að flytja þetta verkefni alfarið yfir til skólastjóranna.
    Í 33. gr. frv. kemur fram að fræðslustjóri auglýsir stöðu skólastjórnenda. Mér finnst það út af fyrir sig í lagi, en síðan segir að hann eigi einnig að auglýsa stöður kennara, námsráðgjafa og skólasafnvarða. Maður spyr auðvitað sjálfan sig: Hvers vegna eiga ekki skólastjórar að auglýsa stöður kennara og annarra starfsmanna? Það væri raunveruleg valddreifing, en það er ekki mikil valddreifing að færa ákvarðanir frá einni skrifstofu til annarrar innan ráðuneytisins sjálfs.
    Í 38. gr. er ljóst að vald skólastjóra er nokkuð skert. Þar segir: ,,Fyrir hverja bekkjardeild eða sambærilegan námshóp í grunnskóla skal skólastjóri velja umsjónarkennara í samráði við kennararáð eða kennarafund.`` Mér finnst vafamál að lögbinda sérákvæði um þetta verkstjórnaratriði skólastjóranna öðru fremur. Þegar ég segi það geri ég auðvitað ráð fyrir því að skólastjórar hafi gott og eðlilegt samstarf við sína kennara og aðra samstarfsmenn. En ég dreg það í efa að lögbinding ákvæðis af þessu tagi sé til bóta.
    Í V. kafla frv. er talað um starfstíma grunnskóla, námsefni og kennsluskipan. Í 41. gr. er ákvæði um að reglulegur starfstími grunnskólans skuli vera níu mánuðir. Þetta er nánar útskýrt í grg. á bls. 28 í frv. þar sem segir, með leyfi forseta: ,,Gert er ráð fyrir níu mánaða reglulegum starfstíma grunnskólanemenda frá 1. sept. til 31. maí. Í gildandi lögum er reglulegur starfstími grunnskóla hins vegar mismunandi eftir skólahverfum eða 7--9 mánuðir.``
    Tafla sem fylgir sýnir hvernig starfstími hefur skipst á nemendur og kemur í ljós að níu mánuði hafa skólaárið 1988--1989 haft 77,04% nemenda, átta og hálfan mánuð 13,51%, átta mánuði 9,31% og styttra en átta mánuði 0,14%. ,,Stefnt er að því að jafna þennan mun og er það í samræmi við þróun á síðustu árum eins og ofangreind tafla sýnir.`` Þetta segir í grg.
    Ég styð mjög eindregið þetta ákvæði. Að vísu er í greininni heimild til tímabundinnar undanþágu frá framangreindum ákvæðum. Aðstæður geta auðvitað verið mismunandi á einstökum stöðum en ég vek athygli á að þetta er í samræmi við þáltill. sem þingmenn Sjálfstfl. fluttu á síðasta þingi. Henni var þá vísað til ríkisstjórnarinnar.
    Í 42. gr. er fjallað um námsskrá. Maður veltir því auðvitað fyrir sér þegar maður sér jafnítarleg ákvæði

og hér eru hversu mikið eigi að festa í lög af ákvæðum af þessu tagi, hvort það sé nægjanleg sveigja í löggjöfinni til þess að mæta kröfum mismunandi tíma.
    Kennslumálanefnd Háskóla Íslands fjallaði um þetta mál sérstaklega, gerði reyndar ýmsar athugasemdir við frv., en hún tók þetta atriði sérstaklega fyrir. Ég vil leyfa mér að vitna í álit hennar en þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Kennslumálanefnd gerði á sínum tíma athugasemd við upptalningu á efnisatriðum aðalnámsskrár í frv. frá 1987. Þó að nokkuð hafi miðað í rétta átt í stafliðum a--i í 41. gr. hins nýja frv.`` --- það er 42. gr. samkvæmt frv. nú --- ,,vill kennslumálanefnd endurtaka fyrri ummæli sín um langar upptalningar. Bæði er að með þessari framsetningu er lítill sem enginn greinarmunur gerður á veigamiklum meginverkefnum og harla smáum aukaatriðum og auk þess er þekkingin og færnin sem skólinn veitir brotin upp í óþarflega smáar einingar þannig að fram kemur óheppileg og villandi mynd. Til þess að skýra betur hvað átt er við höfum við sett saman eftirfarandi hugmynd um texta þessarar málsgreinar.`` Það er miðhluti 42. gr. og hún hljóðar svo samkvæmt tillögu kennslumálanefndarinnar:
    ,,Menntamálaráðuneytið setur grunnskólum aðalnámsskrá þar sem m.a. skal kveðið nánar á um uppeldishlutverk skólans og meginstefnu varðandi kennslufræði og kennsluskipan. Þar skulu og sett ákvæði um eftirfarandi meginverkefni grunnskóla:
    a. Þjálfun í notkun móðurmálsins í ræðu og riti og fræðslu um íslenskar bókmenntir. Auk þess sem móðurmál er sérstök kennslugrein má gera ráð fyrir þjálfun í því í tengslum við aðrar kennslugreinar eftir því sem við getur átt.
    b. Undirstöðukennsla í stærðfræði.
    c. Þjálfun verkkunnáttu, fagurskyns og líkamsræktar með almennu verknámi, kennslu í heimilisfræðum, tónmennt, myndmennt, handíðum, skrift, tölvunotkun og íþróttum að meðtöldu sundi og hjálp í viðlögum.
    d. Fræðslu um mannlegt samfélag og umhverfi í fortíð og nútíð, um Íslandssögu, mannkynssögu og samfélagshætti, landafræði, kristinfræði, siðfræði og um önnur helstu trúarbrögð.
    e. Fræðslu um efnisheiminn, um frumatriði í líffræði, umhverfisfræði, eðlisfræði og efnafræði sem og um áhrif áfengis og annarra ávana- og fíkniefna, sbr. lög nr. 23/1983.
    f. Kennslu í erlendum tungumálum, einkum ensku og einu Norðurlandamáli samkvæmt nánari ákvörðun.
    Í efstu bekkjum grunnskóla skulu nemendum standa til boða ýmsar verklegar og bóklegar valgreinar, sömuleiðis skal kynna þeim atvinnulíf, námsmöguleika að loknum grunnskóla og annað sem áhrif getur haft á starfsval.``
    Ég segi það sem mína skoðun að mér finnst að þessi tillaga kennslumálanefndarinnar sé mun betri en sú tillaga sem fram kemur í frv. Það vekur athygli að í 42. gr. fara út úr frv. miðað við núgildandi lög ákveðin hugtök sem kennslumálanefndin setur inn í

sína tillögu. Ég nefni hugtök eins og Íslandssaga, landafræði og mannkynssaga. Þau er ekki að finna í þessari tillögu sem hér liggur fyrir nú og það vekur auðvitað athygli. Maður hlýtur að staldra við þessa breytingu, einmitt í ljósi þess ágreinings sem varð í íslenska skólakerfinu um þessar námsgreinar, ekki síst Íslandssögu, fyrir örfáum árum síðan. Spurning er hvort ekki eigi að hafa það alveg kristaltært í lögunum að Íslandssaga eigi að vera meðal námsgreina. Nú er þetta mjög þynnt út í frv., en í upptalningu, í g-lið, segir hvað eigi að vera í aðalnámsskrá: ,,Mannlegt samfélag, samfélagshættir, umheimur og umhverfi nær og fjær í fortíð og nútíð, einkum með hliðsjón af Íslandi.``
    Mér finnst þetta orðalag dálítið moðsuðukennt, svo ekki sé meira sagt, og hefði fellt mig mun betur við það orðalag sem kennslumálanefnd Háskóla Íslands leggur til og tel nauðsynlegt að athuga það sérstaklega í nefndinni.
    Í 44. gr. frv. er fjallað um daglegan og vikulegan starfstíma nemenda. Í því sambandi vil ég vitna til frv. á þskj. 27 sem hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir er 1. flm. að, en ég ásamt hv. þm. Þorsteini Pálssyni erum meðflm. Það er nokkur munur á þessum frv. Á þskj. 27 segir: ,,Vikulegur kennslutími á hvern nemanda í grunnskóla skal vera sem næst þessi:`` og síðan kemur upptalning á mínútum, en í frv. hæstv. ráðherra segir að vikulegur kennslutími á hvern
nemanda í grunnskóla skuli ,,að lágmarki`` vera þessi. Þetta þarf auðvitað að athugast betur. Ég skal ekki kveða upp úr með það hvort orðalagið sé æskilegra á þessu stigi, það kann vel að vera að það sé skynsamlegra að setja ákveðið lágmark í þessu en ég vek þó athygli á að hugmyndir kennarasamtakanna eru nær þeim tillögum sem fram koma í frv. á þskj. 27.
    Í 46. gr. frv. er breyting frá gildandi lögum. Þar er fjallað um nemendur í bekkjardeildum og segir í frv.: ,,Að jafnaði skal við það miðað að nemendur í hverri bekkjardeild í grunnskóla séu ekki fleiri en 24 að meðaltali, eftir að frá hafa verið taldir sérbekkir fyrir nemendur sem ekki stunda nám í almennum bekkjum grunnskóla,,, og síðar stendur: ,,Í 1.--3. bekk skulu nemendur í einstökum bekkjardeildum þó ekki vera fleiri en 22.``
    Um þetta er nánar fjallað í grg. með frv. á bls. 29. Þar segir: ,,Meðaltal nemenda í bekk verði 24 í stað 28. Í raun er verið að staðfesta þá þróun sem orðið hefur. Meðalfjöldi nemenda í bekk hefur lækkað og er 22--24 nemendur í stærri skólum. Meðaltal er lægra í fámennum skólum. Í gildandi lögum er ákvæði um að nemendafjöldi í bekkjardeild fari ekki yfir 30. Sú tala gildir áfram um efri bekki grunnskóla en gert ráð fyrir því að í 1.--3. bekk (6, 7 og 8 ára börn) fari nemendafjöldi einstakra bekkja aldrei yfir 22. Eðlilegt er að í skólabyrjun þar sem grunnur er lagður að skólagöngu séu færri nemendur í bekk en þegar ofar dregur. Hvort tveggja er að nemendur þurfa meiri einstaklingsaðstoð og mikilvægt að tryggja sem best grundvallarfærni svo sem í lestri.``
    Maður spyr auðvitað sjálfan sig hvort ástæða sé til

að binda ákvæði af þessu tagi í lögum. Ákvæði samsvarandi þessu er í núgildandi grunnskólalögum. Það eru auðvitað mjög mismunandi aðstæður í hinum einstöku byggðarlögum og í hinum einstöku skólum. Miðað við það vald sem nú er búið að færa sveitarfélögunum, a.m.k. í orði kveðnu, í löggjöf um grunnskólana, þá spyr maður sjálfan sig að því hvort ekki sé rétt að fela skólunum þetta vald, hvort það sé nú ekki hin eiginlega valddreifing að fela skólunum vald af þessu tagi.
    Ég held að slík ófrávíkjanleg ákvæði séu vart framkvæmanleg í reynd og því haldlítil en þau geta leitt af sér ómæld vandkvæði. Ég held að það sé skynsamlegra að það sé ákveðin viðmiðunartala en síðan megi taka tillit til aðstæðna og þarfa á hverjum stað hverju sinni varðandi nemendafjölda í einstökum bekkjardeildum.
    Ég vek athygli á að Danir og Svíar höfðu lengi ákvæði af þessu tagi í sinni grunnskólalöggjöf en nú hafa þeir afnumið þessi ákvæði, tekið þetta út úr sínum grunnskólalögum, Danir frá og með 1. jan. sl. og Svíar hafa ákveðið að fella þetta úr sinni löggjöf frá og með 1. jan. 1991, þegar ný grunnskólalöggjöf tekur gildi þar í landi. Þess vegna er spurning hvort við eigum ekki að fara sömu leið og þessar nágrannaþjóðir okkar að þessu leyti.
    Í VI. kafla er fjallað um réttindi og skyldur nemenda og kennara. Ég hef ekki mörg orð um það. Ég gerði að umtalsefni hér á miðvikudaginn orðið ,,aðstoðarskólastjóri`` í staðinn fyrir yfirkennara og vakti þá athygli á umsögn heimspekideildar Háskólans um þetta orð. Heimspekideild Háskólans hefur líka rætt í sinni umsögn um orðið ,,nemendavernd``. Ég ætla ekki að lesa þá umsögn, en þar segir þó, ég gríp niður í hana: ,,Þessi klausa er dæmi um hæfni embættismanna þeirra sem sömdu frv. til að negla saman lagagrein. Hver á að vernda nemendur gegn hverju? Eru þessi svið sem upp eru talin þess eðlis að það þurfi að vernda nemendur sérstaklega fyrir þeim? Hver á að sitja í þessu ráði, nemendur, kennarar, aðrir? Á bak við þetta er einhver leyndardómur sem embættismennirnir einir vita um. Þessir sem semja frv. eiga svo að framfylgja lögunum og semja reglurnar sem þeir setja ákvæði í lög um.`` Mér finnst þetta orð satt að segja alveg hræðilegt, nemendaverndarráð, og maður hlýtur auðvitað að spyrja fyrir hverju á að vernda nemendur og ég held að við þurfum endilega að reyna að finna betra orð í því sambandi.
    Í VII. kafla er fjallað um kennsluráðgjöf og sálfræðiþjónustu og ég hef engar athugasemdir þar að gera.
    Í VIII. kafla er fjallað um námsmat. Nokkuð ítarleg greinargerð er um þennan kafla og þessa grein í umsögn Háskóla Íslands, þ.e. heimspekideildar Háskólans. Ég vek athygli á þeirri greinargerð. Ég ætla ekki að lesa hana, hún er alllöng, og geri í sjálfu sér ekki orð hennar alveg að mínum. Hún er nokkuð stórorð á köflum um það hvernig námsmati er hagað og hver þróunin hefur verið
í þeim efnum að undanförnu. Ég tel þó að það þurfi

að skoða mjög rækilega þennan kafla og endurskoða í sumum atriðum orðalag á kaflanum um námsmat.
    Í IX. kafla er fjallað um skólaþróun. Þar er m.a. ákvæði um skólaþróunarsjóð sem ég held að sé mikilvægur sjóður og nauðsynlegt að þar sé fjármagn hverju sinni til að vinna að skólaþróun. Ég er því fylgjandi því sem þar segir.
    Í XII. kafla er fjallað um einkaskóla. Án þess að ætla frekar en hæstv. ráðherra að fara að taka upp almenna umræðu um einkaskóla hér í þessari umræðu um grunnskólafrv. vil ég vekja athygli á því að í frv. á þskj. 27 sem hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir er 1. flm. að er mun skýrara orðalag um einkaskóla. Þar segir í 5. gr. frv.:
    ,,Heimilt er menntmrn. að löggilda grunnskóla eða hluta grunnskóla, sbr. 3. gr., eða forskóla, sbr. 74. gr., sem reknir eru af einstökum mönnum eða stofnunum ef þeir starfa samkvæmt reglugerð eða skipulagsskrá er það staðfestir enda hlíti slíkir skólar sama eftirliti og reglum og aðrir grunnskólar. Kennarar við skóla þessa skulu fullnægja öllum skilyrðum um rétt til kennslu í grunnskóla. Börn, sem þessa einkaskóla sækja, hafa undanþágu skv. 7. gr. en forstöðumaður skal fyrir upphaf hvers skólaárs senda hlutaðeigandi skólanefnd skrá um nemendur og tilkynna henni allar breytingar á nemendaskrá jafnóðum og þær verða.
    Ríki eða sveitarfélag getur samið við einkaaðila um rekstur grunnskóla, sbr. 1. gr. Setja skal í reglugerð ákvæði um það hversu opinberum stuðningi við einkaskóla skuli háttað.``
    Hér er kveðið miklu skýrar að orði um einkaskóla en í frv. eins og það lítur út hér. Ég vek athygli á að í 2. mgr. 72. gr. frv. segir: ,,Einkaskólar eiga ekki kröfu til styrks af almannafé. Skólagjöld eru háð samþykki menntmrn.`` Mér finnst að þessar tvær setningar fari ekki saman. Með þessu fær ráðherra þetta algjörlega á sitt vald. Hann getur neitað skóla um styrk af almannafé og eftir að hafa gert það knúið upp skólagjöldin og neitað svo um leyfi þar sem skólagjöldin séu of há. Þetta er raunverulega það sem gerðist þegar deilan um miðskólann kom upp hér á síðasta vori eða sl. sumri. Fyrst var skólanum synjað um ríkisstyrk í samræmi við það sem aðrir einkaskólar hafa haft og síðan, þegar það varð til þess að skólagjöld þurftu að hækka verulega frá því sem áætlað hafði verið og forráðamenn skólans höfðu ákveðið, var þeim synjað um það, m.a. á þeim grundvelli að þetta væru allt of há skólagjöld og þar með væri verið að stefna að stéttaskiptingu og ég veit ekki hvað og hvað, eins og menn þekkja úr þessari umræðu.
    Ég hefði talið að eins og þetta er orðað í frv. á þskj. 27 sé mun skýrar að orði kveðið um þetta, ja, ég vil segja viðkvæma deilumál, um einkaskóla eða sérstaklega nýja skóla á því sviði, þó að ég haldi að flestir séu mjög sáttir við þá einkaskóla sem starfa nú þegar. Ég nefni t.d. skóla Ísaks Jónssonar og skóla kaþólska safnaðarins og Tjarnarskólann.
    Virðulegi forseti. Ég hef nú farið yfir einstaka

kafla frv., þ.e. þá kafla sem ég taldi sérstaklega ástæðu til að gera að umtalsefni. Það er enginn vafi á því að frv. fylgir mikill kostnaðarauki. Hæstv. ráðherra gerði það að umtalsefni í sinni ræðu hér á dögunum. Þessi kostnaðarauki er auðvitað fyrst og fremst í skólabyggingum og það má vissulega til sanns vegar færa að ef sú viðbót við skólabyggingar, sem mun koma á næstunni, fer gagngert í það að koma þessari grunnskólalöggjöf í framkvæmd, þá er það ekkert mikið meira mál en verið hefur á undanförnum árum. Ef ég man rétt voru á síðasta ári um 300 millj. kr. á fjárlögum ríkisins til grunnskólabygginga. Sveitarfélögin lögðu á móti helming þannig að eytt var um 600 millj. kr. í landinu til grunnskóla, þannig að segja má að e.t.v. sé ekki of í lagt að ætla sér að ná þessu á 10 árum. Skólaskrifstofa Reykjavíkur hefur slegið á hvað þetta mundi kosta fyrir Reykjavíkurborg og það kemur upp á um 2,3 milljarða. ( Gripið fram í: Á 10 árum?) Já, allur pakkinn. Reyndar er slegið á það líka hvað þetta mundi kosta fyrir skólabyggingar utan Reykjavíkur, þar sé um tæpa 5 milljarða að ræða. Þetta væru því svona um 7,3 milljarðar allt í allt.
    Engu að síður er hér náttúrlega um gríðarlega mikla fjármuni að ræða. Við gerum okkur auðvitað grein fyrir að við erum að móta stefnu til frambúðar. Sveitarfélögin eiga að borga þetta samkvæmt núgildandi lögum og það kallar því auðvitað á miklu nánara samráð við sveitarfélögin áður en löggjöf af þessu tagi er sett. Í bráðabirgðaákvæðinu er fjallað um framkvæmdaáætlun sem er bundin í hinum ýmsu greinum en að því er snertir þetta atriði sem snertir skólabyggingar er talað um 10 ára aðlögunartíma.
    Virðulegi forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa miklu fleiri orð um þetta. Ég býst við að þingmenn, a.m.k. þeir sem óska og alla vega nefndarmenn, fái í hendur nokkuð merkilegar almennar athugasemdir sem fram koma í umsögn kennslumálanefndar Háskóla Íslands um þetta frv. almennt og um grunnskólann og ég freistast til að vitna aðeins í það. Þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Eitt af því sem Háskóli Íslands ber fyrir brjósti, e.t.v. umfram aðra aðila í menntamálum, er það að íslenskt skólakerfi standist sem best samanburð við önnur lönd í kringum okkur. Háskólinn starfar sjálfur í stöðugum samanburði við erlenda háskóla bæði vegna nemenda sem fara á milli vegna náms erlendis sem margir háskólakennarar eiga að baki og síðan vegna hvers kyns alþjóðlegra samskipta sem eru snar þáttur í störfum háskólakennara. Þannig má segja að endastöð skólakerfisins sé stöðugt undir smásjá samanburðar og þá um leið áfangarnir á leið nemenda. Hér við bætist sem aukageta að margir háskólakennarar hafa kynnst grunnskólum annarra landa sem foreldrar. Ekki þarf að fjölyrða um nauðsyn þess að íslenskir skólar veiti nemendum þekkingu og færni er sé í sem bestu samræmi við kröfur tímans og búi þá undir líf og starf í samfélagi framtíðarinnar ekki síður en skólar í nágrannalöndum. Hér er ekki aðeins um að ræða þá þekkingu og þau almennu

viðhorf sem skólinn miðlar
nemendum sínum, heldur er einnig mikilvægt að huga t.d. að þeim vinnubrögðum sem skólinn temur nemendum.
    Þegar íslenskir grunnskólar eru bornir saman við erlenda stingur í augu að hérlendir skólar eru yfirleitt ekki einsetnir og skóladagur ekki samfelldur. Þetta einfalda atriði hefur margvísleg áhrif á skólastarfið allt eins og þeir vita sem hafa átt börn í erlendum skólum. Til að mynda hamlar þetta því að nemendur læri sjálfstæð og skipuleg vinnubrögð, svo sem ritgerðasmíð og heimildaöflun með aðstoð bókasafna og annarra gagna sem þurfa þó auðvitað að vera tiltæk, og sem meira er, þetta kemur í veg fyrir að nemendur læri að líta á skólann sem vinnustað sem vekur heilbrigða starfsgleði. Lengi býr að fyrstu gerð og því eru margir háskólakennarar á því að sýnilegur munur sé á íslenskum háskólastúdentum og erlendum sem rekja megi til atriða eins og þessa í starfsháttum og starfsskilyrðum grunnskóla. M.a. kynni hið mikla fráhvarf nemenda á fyrstu árum háskólanáms að eiga að einhverju leyti rætur að rekja til slíkra atriða.
    Þá er það mál margra að nemendur íslenskra skóla fái ekki nægilega þjálfun í að tjá sig í ræðu og riti, einkum um fræðileg efni. Þetta veldur talsverðum erfiðleikum á háskólastigi og er að margra mati eitt gleggsta dæmið um svið þar sem við stöndum greinilega að baki ýmsum öðrum þjóðum í kringum okkur. Ekki er nægilegt að framhaldsskólarnir bæti sinn hlut í þessu efni heldur þarf að byrja markvissa þjálfun í tjáningu strax í fyrstu bekkjum grunnskóla eins og gert er víða erlendis. Ekki er heldur fullnægjandi að einskorða þetta við móðurmál sem kennslugrein, heldur þarf einnig að tengja tjáningarþjálfun við aðrar kennslugreinar grunnskólans. Að þessu hnígur hugmynd kennslumálanefndar hér á undan um a-lið upptalningar í 41. [nú 42. gr.] frv.`` sem ég reyndar gat um og rakti hér nokkuð áðan.
    ,,Í lögum um framhaldsskóla var í nokkrum atriðum reynt að laða fram og virkja þann heilbrigða metnað sem vafalítið býr með íslenskum almenningi í þá átt að skólakerfi okkar sé sem best. Sveitarfélög og skólanefndir eiga samkvæmt lögunum að verða farvegur þessa metnaðar. Í grunnskólafrv. virðist þessi hugsun hins vegar ekki hafa komist að. Þar er sveitarfélögum og skólanefndum fyrst og fremst ætlað að vera farvegur fyrir undanþágur og þær undanþágur eru allar niður á við. Þannig virðist alls ekki gert ráð fyrir að upp geti komið vilji sveitarfélaga til að gera betur í skólahaldi á einhverjum sviðum en frv. tiltekur.
    Hér er ekki úr vegi að leiða hugann að hlutverki menntunar fyrir einstakling og samfélag í nútíð og framtíð. Flestum mun ljóst að menntun einstaklingsins hefur jákvæð áhrif á lífskjör hans í víðasta skilningi, hvað sem líður því mati á menntun sem birtist í efnislegum lífskjörum í þröngri merkingu, og þessi tengsl menntunar og lífskjara munu væntanlega verða enn gleggri í vestrænu samfélagi framtíðarinnar en þau eru nú. En það er ekki aðeins menntun hvers

einstaklings um sig sem segir til sín í lífskjörum hans, heldur líka menntun allra hinna. T.d. ræður almennt menntunarstig hverrar þjóðar um sig miklu um lífskjör hennar. Af þessu leiðir að því hljóta að vera takmörk sett í ábyrgu þjóðfélagi að hyggilegt sé að slaka á kröfunni um almenna og vandaða menntun öllum til handa.``
    Þetta er sem sagt úr álitsgerð kennslumálanefndar Háskóla Íslands og undir þetta ritar Þorsteinn Vilhjálmsson sem er formaður þessarar nefndar. Mér finnst þetta vera mjög athyglisverð orð sem rétt sé að hafa í huga þegar þetta frv. er skoðað.
    Ég gat þess áðan að hæstv. ráðherra hefði boðað valddreifingu í þessu frv. en því miður virðist mér að hún sé meira í orði en á borði, verkefni færð frá einu skrifborði til annars innan menntmrn., og þá tel ég auðvitað fræðsluskrifstofurnar til ráðuneytisins eins og skipulag er nú á þeim málum.
    Í Danmörku hafa nýlega verið sett lög um grunnskóla. Þau lög tóku gildi 1. jan. á þessu ári. Ég held að þingnefndin, og síðan væntanlega hæstv. ráðherra og ráðuneytið, ætti að kynna sér þessa löggjöf nokkuð ítarlega því þar er um raunverulega valddreifingu að ræða sem Danirnir fara inn á í sinni nýju grunnskólalöggjöf og satt að segja virðast vera mjög djarfir, að mínu mati, í því að færa beint vald yfir til skólanna sjálfra, gefa skólunum mikið vald til að ráða sitt starfsfólk, og gefa sveitarfélögunum einnig mikið vald. Afskipti menntamálaráðuneytisins danska eða skólamálaráðuneytisins verða satt að segja hverfandi lítil af skólastarfi, einungis að gefa út heildarreglur og viðmiðunarreglur, vera úrskurðaraðili í launa- og ráðningarmálum, en launa- og ráðningarmál eru öll færð yfir til sveitarfélaganna og yfir til skólanna. Og ýmsar fleiri mjög merkar nýjungar eru í þessum lögum sem ég ætla nú ekki að orðlengja um frekar, en þar sýnist mér að um raunverulega valddreifingu sé að ræða. Síðan fá sveitarfélögin ákveðið framlag frá ríkinu sem miðast við hvern nemanda og annast svo öll fjármál skólanna sjálf og stjórna þeim að öllu leyti. Ég held að þarna sé um að ræða löggjöf sem við ættum að skoða mjög rækilega og athuga hvort þarna er ekki farvegur til þess að um raunverulega valddreifingu geti orðið að ræða í okkar grunnskólum.
    Að svo mæltu læt ég máli mínu lokið, herra forseti.