Samningur um aðstoð í skattamálum
Föstudaginn 06. apríl 1990


     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Herra forseti. Norðurlönd hafa um langt skeið haft með sér víðtæka samvinnu í skattamálum. Frá árinu 1972 hefur verið í gildi aðstoðarsamningur milli Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um aðstoð í skattamálum. Á árinu 1983 var gerður tvísköttunarsamningur milli sömu landa og aftur í endurskoðaðri mynd á árinu 1987. Þá gerðu þessi lönd, auk Færeyja, með sér tvísköttunarsamning 12. sept. 1989 sem tók gildi 1. jan. 1990.
    Reynslan af þessum samningum hefur verið góð og hafa þeir stuðlað að greiðari viðskiptum milli landanna, t.d. vegna tilflutnings fólks og fjármagns þeirra á milli.
    Eins og að framan er rakið hefur aðstoðarsamningur í skattamálum verið í gildi milli fimm Norðurlandanna frá árinu 1972. Á árinu 1988 óskuðu Færeyingar og Grænlendingar eftir því að gerast aðilar að aðstoðarsamningnum. Embættismannanefndir landanna hafa unnið að því máli á nokkrum fundum og náðu samkomulagi á síðasta ári. Aðstoðarsamningurinn milli Danmerkur, Finnlands, Færeyja, Grænlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar var síðan undirritaður í Kaupmannahöfn hinn 7. des. 1989 og er þess vænst að samningurinn verði fullgiltur af aðildarríkjunum á fyrri hluta þessa árs, þannig að hann geti tekið gildi fyrir mitt ár.
    Eins og fram kemur í grg. er aðalbreytingin frá gildandi samningi sú að nýi alþjóðasamningurinn nær einnig til Grænlands og Færeyja. Af öðrum breytingum má nefna breyttar reglur um fyrningu, sbr. 14. gr. samningsins, og nýjar reglur um samtímis skattrannsókn tveggja eða fleiri ríkja þar sem aðildarríkin hafa sameiginlega eða samtengda hagsmuni, sbr. 12. gr. samningsins. Samningurinn gerir, eins og gildandi samningur, ráð fyrir gagnkvæmri aðstoð við rannsókn skattamála, skiptum á upplýsingum og aðstoð við innheimtu skatta. Auk þess er gert ráð fyrir að aðstoðað verði við birtingu ýmissa skjala og skipst á eyðublöðum í sambandi við skattamál. Samningurinn tekur m.a. til tekjuskatta og eignarskatta bæði til ríkissjóðs og sveitarfélaga, erfða- og gjafaskatta, skatta af vélknúnum ökutækjum, virðisaukaskatts, söluskatts og almannatryggingagjalda.
    Herra forseti. Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.