Beiðni um skýrslu um nýtt álver
Mánudaginn 09. apríl 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti hefur gert ráðstafanir til þess að hæstv. utanrrh. svari fyrirspurn hv. 1. þm. Reykv. og ég hygg að hann komi í salinn innan örstutts tíma.
    Hv. 1. þm. Reykv. spurði hæstv. utanrrh. um framlagningu frv. vegna samninga um nýtt álver, hvort það frv. verði lagt fram í dag ( FrS: Í dag eða á morgun.) þar sem síðustu forvöð séu til að leggja fram þingmál.