Um dagskrá
Mánudaginn 09. apríl 1990


     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Dagskrá þessa fundar hefur nú legið frammi síðan fyrir helgi og öllum hefði mátt ljóst vera að 8. mál á dagskrá er Hvalveiðimál og Andramál, skýrsla utanrrh. Nú hefur það komið í ljós á síðustu mínútum að menn eru ekki sáttir við að ræða þetta mál að svo stöddu og mun forseti því hitta þá sem það mál varðar núna innan tíðar og verður þess vegna að fara yfir í 9. mál á dagskrá á meðan.