Jöfnun orkukostnaðar
Mánudaginn 09. apríl 1990


     Ragnhildur Helgadóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Frú forseti. Ég hef tekið eftir því að það gerist hvað eftir annað þegar hæstv. forseti hringir bjöllu sinni vegna atkvæðagreiðslu að sagt er af forsetastóli að þingmenn séu beðnir um að koma til starfa. Í þessu felst yfirlýsing um að þeir sem ekki eru í þingsölum séu þar með ekki að störfum. Ég vildi aðeins benda á þetta því ég þykist vita að það vaki alls ekki fyrir hæstv. forseta að væna menn um að þeir séu ekki að þingstörfum, jafnvel þótt þeir séu ekki þá stundina inni í þingsal. Það er heldur óþægilegt fyrir þingið og leitt til afspurnar að nokkrum sinnum á dag sé sagt af forsetastóli að þingmenn sem ekki eru í salnum séu ekki að störfum. Það er síst til þess fallið að auka skilning þjóðfélagsins á störfum Alþingis.