Virðisaukaskattur
Þriðjudaginn 10. apríl 1990


     Flm. (Árni Johnsen):
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum. Þar er lagt til að í 1. gr. laganna komi viðauki, nýr töluliður, nr. 12: ,,Sala á flotvinnubúningum sem fullnægja kröfum sem Siglingamálastofnun ríkisins setur um slíka búninga.``
    Frv. fjallar um breytingu á lögum til þess að tryggja það að virðisaukaskattur verði ekki innheimtur af flotvinnubúningum fyrir þá sem þurfa að nota slíkan búnað á landinu og er þar helst um sjómenn að ræða. Það skýtur auðvitað skökku við, þegar flest skylduð öryggistæki sjómanna eru undanþegin virðisaukaskatti, að innheimtur skuli skattur af þeim búnaði sem löggiltur er en ætlast er til að sjómenn afli sér að eigin frumkvæði. Það er ekki skylda að útgerðir á Íslandi, fiskiskipa, togara eða flutningaskipa, hafi slíkan búnað um borð á sinn kostnað, en þarna er um að ræða búnað sem hefur sannanlega bjargað mörgum mannslífum á undanförnum árum. Á síðustu missirum hefur það bjargað lífi sjómanna ítrekað að þeir hafa verið klæddir í flotvinnubúninga þegar þeir hafa fallið fyrir borð á hafi úti.
    Flotvinnubúningana er sem sagt ekki skylt að hafa um borð í fiskiskipum en Siglingamálastofnun hefur viðurkennt flotgallana sem öryggistæki með reglugerð frá 28. júlí 1989. Þess má geta að Siglingamálastofnunin er eini umsagnaraðilinn á landinu um öryggisbúnað sjómanna.
    Fjölmennur fundur eiginkvenna sjómanna í Vestmannaeyjum vakti fyrst athygli á því fyrir fáum vikum hve óeðlilegt væri að leggja virðisaukaskatt á það öryggistæki sem flotvinnubúningurinn er og getur skipt sköpum um lífsmöguleika sjómanna. Nemendur Stýrimannaskólans í Reykjavík fylktu í kjölfarið í baráttu fyrir þessu máli og segja m.a. í skjali sem þeir hafa afhent fjmrh., forseta
Sþ. og alþingismönnum, með leyfi hæstv. forseta: ,,Við getum ekki sætt okkur við að greiða virðisaukaskatt af möguleikum okkar til að lifa.``
    Konur sjómanna um land allt hafa verið í fararbroddi fyrir þessu máli. Þær hafa vakið athygli á mikilvægi málsins og hvatt til þess að efla öryggi sjómanna. Þá má minna á að dr. Jóhann Axelsson, prófessor í lífeðlisfræði, hefur lýst því yfir út frá rannsóknum á ofkælingu að flotgallar, flotvinnubúningar, geti ráðið úrslitum um lífslíkur sjómanna sem lenda í hrakningum.
    Siglingamálastofnun Íslands hefur nú þegar viðurkennt þrjár tegundir flotvinnubúninga sem uppfylla kröfur um einangrun og flothæfni. Það eru öll rök sem mæla með því að flotvinnubúningar séu undanþegnir virðisaukaskatti. Þeir eru viðurkennt öryggistæki og rík ástæða er til þess að hvetja til notkunar þeirra og því eðlilegt að lækka svo sem mögulegt er kostnað sjómanna við öflun slíkra öryggistækja. Björgunarbúningar sem eru um borð í skipum landsmanna og eru skyldaðir á kostnað útgerða henta ekki sem vinnugallar en það gera

flotvinnubúningarnir sem reynslan hefur sýnt á undanförnum árum, eins og ég hef áður getið, að hafa ráðið úrslitum um björgun mannslífa, ekki aðeins í þeim tilvikum þegar menn hafa fallið fyrir borð heldur einnig þegar sjómenn hafa varpað sér fyrir borð til að bjarga félögum sínum sem áttu ekki möguleika sjálfir á því.
    Það er auðvitað óviðunandi í sjálfu sér að skattleggja öryggi sjómanna sem búa við mesta slysatíðni allra starfsgreina í landinu og slík lagabreyting sem hér er lögð til er knýjandi til þess að efla og auðvelda öryggi sjómannastéttarinnar í landinu.
    Það er kannski ástæða til þess aðeins að skilgreina betur þennan mun sem er á björgunarbúningum og flotvinnubúningum. Björgunarbúningarnir eru að öllu jöfnu geymdir við ákveðnar aðstæður í hverju skipi tilbúnir til þess að menn geti farið í þá ef þeir hafa einhvern fyrirvara á því að hugsanlegur voði steðji að. Þeir eru þungir og þeir eru þannig gerðir að í þeim vinna menn ekki almenn störf til sjós. Það gera menn hins vegar auðveldlega í flotvinnubúningunum og fjmrn. hefur bent á í umfjöllun um þetta mál að útgerðir gætu keypt flotvinnugallana fyrir sjómenn. Ef útgerðirnar gera það geta þær fengið frádráttarliði í sínu bókhaldi, en auðvitað er óeðlilegt að þarna þurfi að vera einhverjir milliliðir. Það er óeðlilegt að sjómaður þurfi að koma til útgerðarmanns og biðja hann um að kaupa fyrir sig flotgalla og borgi honum og þarna sé útgerðarmaðurinn orðinn milliliður. Það er flókið og það er óeðlilegt.
    Einnig er að mínu mati mjög mikilvægt að sjómenn sjálfir eigi þessa flotvinnugalla. Þetta er spurning um að rétt stærð sé á réttum manni eins og sagt er, að þeir flotvinnubúningar henti sem menn vinna í. Það skiptir máli ef menn lenda í sjónum hvort gallinn passar þokkalega á þann sem í honum er eða ekki. Ef gallinn er t.d. allt of stór tapast strax mjög mikið einangrunargildi og það er auðvitað eingöngu til þess að veikja gæði og möguleika þessa búnaðar.
    Það kann að koma að því síðar að sjómenn fái svokallaða fatapeninga út frá sínum kjarasamningum til þess að greiða niður þessa flotvinnugalla og það er auðvitað mikilvægt að hvetja á allan hátt til þess að sem flestir sjómenn noti
þessa flotvinnugalla að öllu jöfnu. Það er í rauninni mitt mat að skylda ætti sjómenn til þess að nota þessa galla. Þeir eru orðnir það liprir og þeir eru svo mikilvægt öryggistæki, að mínu mati, að það ætti að hafa forgang í dag í öryggismálum sjómanna. Björgunarbátar, björgunarvesti og allur almennur viðurkenndur björgunarbúnaður um borð í bátunum er undanþeginn þessu gjaldi og það skýtur auðvitað skökku við að sjómannastéttin skuli ekki njóta þess réttlætis að eiga kost á að kaupa án sérstakrar skattheimtu þessa flotvinnugalla sem eru á sinn hátt eins konar gúmmíbjörgunarbátur sem menn eru klæddir í. Menn sem eru klæddir í flotvinnugalla og lenda í köldum sjó eiga að geta lifað 6--8

klukkustundir í sjónum við eðlilegar kringumstæður. Auðvitað er þetta misjafnt en þetta er almenna viðmiðunin sem hefur komið út úr rannsóknum á gildi þessara galla. Ég er í rauninni sannfærður um að þessu máli verður vel tekið. Þetta mál hefur fengið sérstaka umfjöllun í öllum sjávarplássum landsins og er baráttumál alls fólks sem byggir sitt á afkomu til sjávar og helst er þetta mikið baráttumál þess fólks sem á sína ástvini á sjónum. Það er því von mín að þetta mál fái almennt jákvæða og skjóta afgreiðslu.
    Að lokinni umræðu í hv. Nd. óska ég eftir að málið verði sent til fjh.- og viðskn.