Frsm. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá félmn. á þskj. 909 um frv. til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum, nr. 8/1986.
,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Umsögn um það barst frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Lagt er til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.``
Undir þetta nál. rita allir nefndarmenn sem eru Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Anna Ólafsdóttir Björnsson, Alexander Stefánsson, Jón Kristjánsson, Eggert Haukdal og Sólveig Pétursdóttir, en Alexander Stefánsson ritaði undir álitið með fyrirvara.