Stimpilgjöld
Föstudaginn 20. apríl 1990


     Fyrirspyrjandi (Anna Ólafsdóttir Björnsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir fsp. sem er að finna á þskj. 650.
    Tilefni þessarar fsp. er ábending frá starfandi lögmanni sem í starfi sínu hefur orðið var við mismunandi túlkun þinglýsingadómara annars vegar í Reykjavík og Kópavogi og hins vegar í Hafnarfirði varðandi skyldu sambúðarfólks, gifts og ógifts, til að greiða stimpilgjöld af sambúðarsamningi sem tekur til fasteigna aðilanna. Mismunandi túlkun í þessum sveitarfélögum veldur því í reynd að gjald fyrir þessa þjónustu getur verið allt frá nokkrum hundruðum kr. upp í tugi þúsunda kr. eftir því hver túlkun á skrifstofu fógeta er. Því er nauðsynlegt að fá upplýsingar um hver túlkun þessara laga er í sveitarfélögum víðs vegar um landið.
    Oft er það svo að sambúðarfólk, hvort sem er í hjónabandi eða óvígðri sambúð, stofnar til eigna saman, kaupir sér t.d. húsnæði. Hending getur ráðið því hvort bæði eru frá upphafi skráð fyrir þeirri eign sem þar um ræðir. Flestir kannast víst við þann vana að skrá karla fremur en konur fyrir slíkri sameign þó ekki sé það algilt. Ef fólk ákveður að báðir aðilar vilji vera skráðir fyrir eign er oft farin sú leið að leiðrétta skráningu eignanna með yfirlýsingu. Hér er átt við yfirlýsingu varðandi umskráningu á eignaraðild íbúðar, t.d. við sambúðarslit þegar annar sambúðaraðilinn yfirtekur íbúð eða skuldir búsins, eða og ekki síður þegar sambúðarfólk óskar eftir leiðréttingu á skráningu fasteigna þeirra þannig að hún verði skráð á nafn beggja. Algengt er að sambúðarfólk vilji leiðrétta þinglýsingu eignaraðildar að íbúð þess þegar annað hvort eða bæði uppgötva þann mismun sem er á réttarstöðu þeirra innbyrðis þegar aðeins annar sambúðaraðilinn er þinglýstur eigandi íbúðarinnar en eignin hefur orðið til fyrir sameiginlega vinnu og fjárframlag þeirra beggja. Slík viðbót við fyrri þinglýsingu eða yfirlýsingu er oft og tíðum fyrst og fremst leiðrétting, ekki eiginleg breyting á eignarhaldi. Fsp. sem ég beini hér til hæstv. dómsmrh. er því svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,1. Hver er ástæða misræmis í túlkun bæjarfógeta í Reykjavík og Kópavogi annars vegar og hins vegar í Hafnarfirði um skyldu hjóna og sambúðarfólks til að greiða stimpilgjöld af yfirlýsingu sambúðarfólks vegna fasteigna sem annar aðilinn er skráður fyrir þegar óskað er eftir að nafni hins sé bætt við þannig að skráning taki til beggja aðila?
    2. Hvernig er þessum málum háttað annars staðar á landinu?
    3. Hvernig ber að mati dómsmálaráðherra að túlka lög um stimpilgjöld í þessu tilliti?``