Fyrirspyrjandi (Ingi Björn Albertsson):
Hæstv. forseti. Ég leyfi mér að leggja fram fsp. til hæstv. dómsmrh. á þskj. 783 um fíkniefnaneyslu unglinga. Tilefni þessarar fsp. eru fréttir sem birst hafa í blöðunum og sérstaklega viðtal sem haft var við 16 ára gamlan fíkniefnaneytanda í Breiðholti eftir að stór hópur ungmenna hafði verið handtekinn, eða 25 manns í það heila. Margt athyglisvert kemur fram í viðtali við þennan 16 ára gamla ungling þar sem hann m.a. segir að þessi 25 krakka hópur sem handtekinn var sé aðeins dropi í hafinu af öllum þeim sem eru í fíkniefnum í tilteknu hverfi. Hann telur að lögreglan viti ekki um hinar ýmsu eiturlyfjaklíkur sem þar eru. Hann kemur víða við og lýsir því yfir að unglingar verði, eins og hann segir sjálfur, snarvitlausir af notkun sniffs og hass og af völdum þeirra efna lendi þeir iðulega í blóðugum slagsmálum niðri í bæ og hafi ekki stjórn á sér. Hann kemur einnig inn á verðlagið á slíkum eiturlyfjum og getur þess að nóg efni séu nú á markaðinum og verð hafi lækkað þar af leiðandi.
Síðan talar hann um að efni sé hægt að kaupa á mörgum stöðum, hann gæti til að mynda keypt á fjórum stöðum þessa dagana ef hann kærði sig um og það frá mismunandi innflytjendum.
Og í síðasta lagi segir þessi unglingur að í hans bekk reyki sjö krakkar hass að staðaldri en um 20 þeirra hafi prófað það í þessum eina bekk. Og að hans áliti noti fjórði til fimmti hver nemandi í níunda bekk í tilteknum skóla þetta eiturlyf.
Þetta viðtal kallaði á viðbrögð. Í Dagblaðinu daginn eftir, þann 21. mars sl., segir Arnar Jensson, yfirmaður fíkniefnadeildar, í athyglisverðu viðtali
að tilgangur með handtökuaðgerðum eins og í fyrri viku sé að stöðva neyslu eins og kostur er. Þarna er ég vissulega sammála, það ber að reyna að stöðva neyslu með öllum ráðum, en að mínu mati hlýtur tilgangurinn fyrst og fremst að vera sá að stöðva framboð á eiturefnum. Minna framboð hlýtur að leiða til minni neyslu.
Arnar telur að hlutfall fíkniefnaneytenda sé ekki eins hátt og fram kemur í því viðtali sem ég vitnaði til áðan en segir þó að það geti átt við í einhverjum einum bekk í einhverjum tilteknum skóla.
Daginn eftir, 22. mars, kom lítil frétt í Dagblaðinu sem lét lítið yfir sér þar sem fíkniefnadeild lögreglunnar var beðin að rannsaka hassneyslu í Menntaskólanum við Hamrahlíð vegna þess að þar áttu að fara fram tónleikar með enskri hljómsveit sem neitaði að spila nema henni yrði útvegað hass. Við þeirri beiðni var góðfúslega orðið, engin vandamál, hassið var útvegað og tónleikarnir fóru fram.
Og rétt í lokin, hæstv. forseti, þá var viðtal föstudaginn 23. mars. Þar er sagt frá fundi lögreglu, ráðuneytis og borgar með landlækni þar sem fram kemur óánægja fundarins með að fíkniefnasalar fái að ganga lausir vegna seinvirks réttarkerfis og halda áfram iðju sinni þrátt fyrir að sök þeirra sé sönnuð.
Þessar fréttir sem ég hef farið hér yfir í stuttu máli
eru tilefni þeirrar fsp. sem ég hef hér lagt fram. Sökum tímaskorts mun ég ekki fara yfir hana enda er hæstv. ráðherra að sjálfsögðu fullkunnugt um efni hennar.