Áburðarverksmiðjan í Gufunesi
Föstudaginn 20. apríl 1990


     Friðrik Sophusson (um þingsköp) :
    Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka virðulegum forseta fyrir það að hafa orðið við beiðni um að fá að ræða hér alvarlegt mál sem allir þekkja og óþarfi er að tala um að þessu sinni enda verður það gert hér á eftir.
    Ég get ekki tekið undir gagnrýni hv. 3. þm. Vesturl., sem að hans áliti byggist á þingsköpum, af eftirtöldum ástæðum:
    Í fyrsta lagi liggur það fyrir að það þarf að veita afbrigði til þess að hægt sé að ræða mál sem koma fram eftir 10. apríl og alveg óljóst hvort þau afbrigði verða veitt.
    Og í öðru lagi langar mig til að spyrja hæstv. forseta að því hvort það sé svo að sé farið fram á utandagskrárumræðu um mjög aðkallandi mál nægi fyrir einhverja aðra hv. þm. að boða það í fjölmiðlum að þeir muni flytja þingmál um sama efni og þá eigi að útrýma umræðunni utan dagskrár. Sé það svo, eins og hv. þm. lét liggja að í sínum orðum, er auðveldur leikur, þegar einhver biður um að fá að ræða aðkallandi mál utan dagskrár, fyrir hvern þingmann sem er að auglýsa það í útvarpi að hann hafi í hyggju að flytja mál um sama efni og skal þá forseti ekki verða við utandagskrárumræðubeiðninni.
    Þessu vil ég biðja hæstv. forseta að gera grein fyrir.