Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Vegna þessara orða hv. 1. þm. Suðurl. vill forseti taka fram að hún á því ekki að venjast að tveir hv. þm. sjái ástæðu til þess að koma í ræðustól til að gagnrýna ákvarðanir forseta. Það hefur ekki komið fyrir fyrr. Ég tel mér skylt að hlýða á þessar raddir og mun þess vegna leyfa mér að taka nokkrar mínútur til að ráðfæra mig við embættismenn þingsins og samforseta mína um hver fordæmi eru þegar slík staða kemur upp. --- [Fundarhlé.]
Vegna þeirrar gagnrýni sem borin var fram hér áðan vill forseti taka eftirfarandi fram: Athugasemdir hv. 3. þm. Vesturl. áttu vitaskuld rétt á sér ef um það hefði verið að ræða að tillögur þær sem hér um ræðir hefðu verið komnar fram. Nú eru þær óvenjulegu aðstæður hér að þingið hefur verið í fríi og hvorug þessara þáltill. hafði verið lögð fram. Forsetar og embættismenn eru því sammála um að forseti hefði vart getað neitað því að þessi umræða færi fram. Því verður þeirri ákvörðun haldið.